Vikan


Vikan - 09.02.1961, Blaðsíða 15

Vikan - 09.02.1961, Blaðsíða 15
Gamansaga eftir Carlo Draeger — Ég veit það, Harry, svaraði hin konan blíðlcga. En komdu með okkur núna. HLÝJAN í rödd hennar og svip varð tií þess, nð Eirikur kom fyllilega til sjálfs sín aftur. Þegar þar við bættist heift og fyrirgangur hinnar fyrrnefndu, lét hann til leiðast að lofa þeim að ýta sér inn ! bílinn, sem beið. Settust Þær sín hvorum megin við hann, og síðan var ekið á harðaspretti til borgarinnar. Hann kenndi, að hin grama var engin önnur en kvik- myndastjarnan Dollý Moon. Hin hógværa hét Birta Fair og var upprennandi stjarna leiklistarinnar. Maðurinn við stýrið var enginn annar en hinn kunni kvikmyndastjóri, Rastenius, með álnarlangan vindil uppi i sér. — Hver fjandinn gengur að þér, Harry? sagði sá með vindil- inn. Hvernig hefur þú náð að hjóla alla leið hingað og verða á undan okkur? HARRY I-IEART kom á fleygiferð inn á þjóðveginn í bláa draumabilnum, nógu snemma til að sjá Þær Dollý og. Birtu ýta Eiríki inn í bifreið sina. Hann skildi hvorki upp né niður 1 neinu. Fyrst datt honum í hug að leika njósnara og fylgia þeim eftir. En svo skaut upp hjá honum annarri hugmynd, og hann stöðvaði bílinn við hliðina á hjóli hins brottnumda. Hann steig út og starði á hjólið, eins og það gæti gefið ein- hverja skýringu á þvi, er gerzt hafði. Svo leit hann á klukkuna. Nú átti hann að vera kominn niður í kvikmyndaver, átti að vera búinn að hafa fataskipti og farða sig. Og hér stóð hann nú í moldvörpulitri kápu og gráum buxum og glápti á reiðhjól, sem að minnsta kost.i ekki sagði honum neitt af neinu. — Hvers vegna stendurðu þarna og horfir á hjólið þitt? spurði kvenrödd, og Harry Heart varð litið inn í tvö falleg, brún augu. — Flýttu þér nú inn, maturinn er tilbúinn, hélt hún áfram. -— Þetta hljóta að vera einhver mistök, sagði Harry Heart. Þér munuð taka mig fyrir einhvern annan. Nafn mitt er Harry Heart. Framhald á bls. 32. Kvikmyndaleikarinn kunni ágætlega við konu skrifstofumannsins. ' Verða flugvellir úrelfir? Eftir þvi sem þoturnar stækka, hefur það orðið mikið vandamál, að geta lent eða tekið sig á loft á venjulegum flugvöllum. Lausnin hefur verið sú að gera tiltölulega fáar risa-flughafnir, þar sem þess- ar vélar hafa viðkomu. Nú er ensk uppfinning á góðum vegi með að gera þessar löngu flugbrautir ó- þarfar. Hún er fólgin í því, að blæstrinum frá þrýstiloftsmóturún- um er bqint niður, og ])á þarf ekki að sökum að spyrja, að vélin hefur sig til flugs ióðrétt upp i loftið og þarf ekki stærri flugvöll en blett- inn, sem hún stendur á. Þegar liún er komin hæfilega hátt, er þrýsti- loftinu beint aftur, og tekur þá vél- < in viðbragð áfram. Með þessu móti ætti að draga stórlega úr slysahættu, sem alltaf er mest við flugtak og lendingu. Ef þetta reynist lausnin í fram- tiðinni, horfir öðruvísi við um lagningu nýs flugvallar fyrir y Reykjavík. Þá geta þeir verið ró- ' legir á Álftanesinu. Bessastaðir verða áfram bústaður forseta ís- lands, og fínu einbýlishúsin í Gálgahrauni verða ekki rifin. ^ ‘Jm vikan 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.