Vikan


Vikan - 02.03.1961, Síða 5

Vikan - 02.03.1961, Síða 5
mun sterkari eru þau. Framliðnir menn starfa í einhverjum þessara æðri líkamsgerva, og þess vegna er þeim kleift að meðhöndla samsvar- andi líkamsgervi okkar, án þess að við skynjum það. Eftir því sem þeir starfa á hærri sveiflusviðum og eru fullkomnari, þeim mun sterkari er lækningamáttur þeirra. Mér er kunnugt um, að læknar þessir nota oftlega alls konar geisla i miklu rikari mæli en meðalalæknar nú á timum gera. Þannig laga þeir og bæta sveiflur, sem hafa truflazt og komizt úr lagi. Eitt sinn, er ég var veikur, varð ég mjög var við þess- ar sveiflur, og var það jafnt, hvort sem ég hafði opin eða lokuð augu. Þessi Ijósagangur var ákaflega tið- ur og virtist hafa styrkjandi áhrif. Einnig hef ég heyrt þess getið, að þeir tækju hina efri líkama til upp- skurðar og næmu burt sýkt líffæri og settu jafnvel ný í staðinn. — Smyglgóss, nei, nei, þetta er bara barinn. — Síðan ég byrjaði að lesa bæk-. urnar yðar þarf ég ekki lengur á svefnpillum að halda. — Ef þau fá ekki hvort annað, fær bókasalinn bókina í hausinn |-----------III------------ I Nashyrningurinn Nýstárlegt leikrit í Þjóðleikhúsinu eftir Eugene Ioneco. Guðlaugur Rósinkrans, þjóðleikhússtjóri, Benedikt Árnason, leik'- stjóri og Disley Jones, leiktjaldamálarinn enski, ræða saman um módel af sviðinu. Um 10. marz frumsýnir Þjóð- leikhúsið eitt mest umdeilda leikrit síðari tíma og er það ..Nashyrn- ingurinn" eftir Eugene Ioneco. Það er talið að ekkert leikrit sé leikið í jafnmörgum leikhúsum um þessar mundir í Evrópu og Nas- hyrningurinn. Sumir segja: „við skiljum það ekki“, en aðrir full- yrða, að það sé eitt stórbrotnasta leikrit síðari tíma. En hvað, sem öllum ummælum líður þá fer fólk og sér leikinn og vist er um það að fá leikrit hafa verið jafnvel sótt á siðari árum. Síðustu árin hefur Eugéne Ioneco verið nefndur ýmsum nöfnum. Hann hefur verið kall- aður hræsnari, snillingur, byrj- andi, hrekkjalómur og höfundur ádeiluleikrits. Það urðu uppþot í Dússeldorf í Þýzkalandi er leikrit hans, „Sköll- ótta söngkonan", var frumsýnt og i Lyons lá við uppþoti er eitt merk- asta verk hans, „Stólarnir“, var sýnt. Oll verk Ioencos hafa átt akafa aðdáendur og öll orðið fyrir áköfum árásum. Um „Nashyrninginn" segir Ion- eco: Af hverju læt ég persónurnar í leiknum, að undantekinni einni, breytast í nashyrninga? Vegna þess að þeir eru heimskustu og grimmustu dýr jaröarinnar og einnig þær ljótustu. Við sáum fólk- ið breytast i nashyrninga i Þýzka- landi á valdatímum nazista. Þar breytti fólkið sjálfu sér og varð að hryllilegum eyðileggjandi villi- dýrum. Þess vegna er þessu leikriti tek- ið svona vel í Þýzkalandi. Nú er verið að sýna það í sextiu borg- um þar. Þjóðverjarnir þekktu sjálfa sig. Ég skrifaði leikinn til að hvetja fólk til að verjast múg- sefjun. Maðurinn á ekki að ör- vænta þó hann standi einn. Hann getur haft á röngu ag standa, en hann getur líka haft á réttu að standa. Einstaklingurinn á sjálfur að finna lausnina. Þannig farast höfundi orð um efni leiksins, og ennfremur segir hann: Berenger, söguhetjan mín, i Nashyrningnum er hálfgert barn. Hann er sá eini, sem heldur réttum sönsum. Hann veit að eitt- hvað illt er að ske, en hefur mann- lega samvizku sem geymir ýmsan grundvallarsannleika mannkyns- ins. Eúgene Ioneco er fæddur í Rúmeníu og hlaut menntun sína þar. Hann fluttist til Frakklands árið 1938 og hefur síðan verið bú- settur i París. Öll verk hans eru skrifuð á frönsku og er rithöf- undurinn nú 48 ára að aldri. Helztu leikrit hans eru: Nashyrn- ingurinn, Stólarnir, Kennslustund- in, Sköllótta söngkonan, Morðing- inn, fyrir utan mörg fleiri. Óhætt mun að fullyrða, að af nútíma leikritahöfundum, þá sé mest sýnt eftir Ioneco og munu leikrit hans nú vera sýnd um allan heim. Leikstjóri og leikarar. Benedikt Árnason setur Nas- hyrninginn á svið í Þjóðleikhús- inú. Þetta er fjórðá leikritið, sem Benedikt sviðsetur í Þjóðleikhús- inu en hann setti á svið tvö leik- rit s.l. vetur eins og kunnugt er. Hjónaspil og Ást og stjórnmál. Lárus Pálsson leikur aðalhlut- verkið þann eina sanna, sem ekki breytist í nashyrning. Aðrir leik- arar eru: Róbert Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson, Haraldur Björnsson, Jón Aðils, Jóhann Páls- son, Ævar Kvaran, Herdis Þor- valdsdóttir, Bessi Bjarnason, Emilía Jónasdóttir og margir fleiri. Þýðingin er gerð af Ernu Geirdal. Óhætt mun að fullyrða að Nas- hyrningurinn á eftir að vekja mikla athygli hér á sviði Þjóð- leikhússins, eins og leikurinn hef- ur alls staðar gert þar sem hann hefur verið sýndur. Þetta er um- fram allt frumlegt og nýstárlegt leikrit. Við bíðum og sjáum. Enskur leiktjaldamálari gerir tjöldin í Nashyrningnum. Enski leiktjaldamálarinn Disley Jones hefur gert leiktjöldin við Nashyrninginn. Hann er einn af yngri leik- tjaldamálurum í London og kom- inn í fremstu röð í sinni listgrein i heimalandinu. Disley Jones hef- ur gert leiktjöld fyrir margar stórsýningar í West-End og má í því sambandi nefna söngleikinn Gigi, sem vel er þekktur hér. Ann- ars er D. Jones ekki við eina fjöl- ina felldur i list sinni því hann hefur á undanförnum árum gert leiktjöld við óperur, balletta, söngleiki, revíur og leikrit alvar- legs eðlis. Mörg undanfarin ár hefur hann gert sviðsútbúnað fyrir allar sýn- ingar í Arts-ieikhúsinu í London og í Lyric-leikhúsinu, þar sem hann er aðstoðarleikhússtjóri. Að undanförnu hefur Disley Jones séð um alla tilhögun og inn- réttingu á veitingasölum Klúbbs- ins hér i bæ. og hafa hans list- fengu vinnubrögð vakið athygli margra. Leiktjöld hans i Nashyrn- ingnum verða mjög nýstárleg og frumleg og í fullu samræmi við verkið sjálft. Sviðsmynd úr Nashyrningnunum. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.