Vikan


Vikan - 02.03.1961, Blaðsíða 28

Vikan - 02.03.1961, Blaðsíða 28
Trúið mér! Hér er blaöiö, sem húöin finnur ekki fyrir Pér hafið aldrei fengið slíkan rakstur sem petta nýja blað gefur yður. Það er ótrúlegt hve skeggið hverfur án pess að pér vitið af. Með pví að nota nýja Bláa Gillette Extra blaðið er sem ekkert blað hafi verið í vélinni. 5 blöð aðeins Kr. 18.50 þér verðið að reyna það ! ® Gillette er skrásett vörumerki PÓSTURINN. Framhald af bls. 16. dansstaSi, þar sem stúlkur hafa verið í sumar- kjólum innan um svartklœddar frúr. En þetta gerir kannski ekki svo mikið til, ef fötin eru þokkaleg, þó að einföld séu. Leikhús finnst mér, að mættu gera hærri kröfur, til gesta Sinna. Þangað fer maður ekki svo oft, að manni finnst ekki eitthvað hátíðlegt við það. Nú vil ég segja ]rér svolitla sögu. Ég brá mér í leikhúsið á sunnudagskvöldið var til að sjá I)on Pasquale. Ég skemmti mér eftir von- um, en mir fannst verulega spilla stemmningu ' /öldsins, að krakkar, sem voru þar, voru búin hreint eins og þau kæmu beint frá leik af götunni. Ein telpa, um ]iað bil 10 ára, var einfaldlega í peysu og síðbuxum, önnur í peysu, pilsi, bláum sokkabuxum og sægrænum liosum þar uian yfir. Enn ein var þar klædd liversdagsfötum ineð heljarmikla hliðartösku á öxlinni, sem henni fannst hún vera ákaf- lroa i’in uieð. Kannski á bara að brosa að þessu eða láta sem maður taki ekki eftir neinu, en mér finnst, að mæður beri ábyrgð á klæðn- aði barna sinna og ættu ekki að senda börn sín svona til fara i leikhús. Smekklega klædd börn eru ekki hvað sízt yndi augna okkar. Með kærri kveðju. Móðir. Ég er hjartanlega sammála. Seint á siðasta ári birtum við annað bréf svipaðs eðlis og lögðum ]>ar áherzlu á forakt póstsins á trassaskap í klæðaburði. Það er vitað mál, enda engin mj speki, að fötin skapa mann- inn, — ekki einasta þannig, að hann liti betur út snyrtilega klæddur, heldur verður hann um lcið ósjálfrátt meiri persóna og ber meiri virðingu fyrir sjálfum sér. Það jnjðir: Hann kemur betur fram út á við og verður viðkunnanlegri. Þær mæður, sem hengja ýmis konar drapl á börnin sin, sbr. hliðartöskuna, og halda, að þau séu þar með orðin fin, hljót að vera eitthvað klár- vígar með sitt eigið útlit. BAST. Framhald af bls. 23. KARFA. Byrjið á að sauma botninn saman, saum- ið með þunnum bastþræði og stoppunál (sjá mynd). Botninn er um 7x12 cm. Hæð körfunnar er um 6% cm. Hliðarnar vikka dálítið út. Hankinn er myndaður þannig, að 2 fléttur eru saumaðar saman hlið við hlið, 20 cm á lengd. Snyrtið nú körfuna með því að klippa alla lausa bastenda og lakka hana síðan með þynntu sellulósilakki. Látið körfuna þorna vel, Þá harðnar hún af lakkinu. Látið í körfuna að lokum lítinn bút af köflóttu lérefti. BRÚÐUYAGN. Byrjið á að sauma körfu eins og II. mynd sýnir. Karfan er um 14 cm á lengd, 8 cm á breidd og 6 cm á hæð. Bezt er að kaupa tilbúin tréhjól eða nota gömul, ef til eru. En einnig má búa til hjól með Því að klippa þau út úr hörðum, þunnum pappa. Klippið síðan gat í miðju, og saumið yfir þau með basti, eins og I. mynd sýnir. Ágætt er að festa hjólin með því móti að þræða Þau upp á alúmín-bandprjón (eða vir), sem er mátulega langur fyrir breidd botnsins, beygja endann síðan dálítið nið- ur, svo að hjólin detti ekki fram af. Saumið prjóninn fastan undir miðjan botninn. Stingið nú tágabútum niður í körfuna, sem eiga að mynda handfang og skerm. Yfirdekkið þá með basti. Snyrtið nú vagn- inn á sama hátt og körfuna. Takið að lok- um köflótt léreftsefni, um 10x32 cm á stærð, sem saumað er yfir vagninn sem skerm- ur. Saumið dálitla blúndu yfir samskeytin að framan. Hér kemur ungfrú Yndisfríð, yndislegri en nokkru sinni áður og léttklædd að vanda. Hún er alltaf að týna einhverju, blessunin og þá finnst henni auðveldast að snúa sér til ykkar, lesendur góðir, enda hafið þið alltaf brugðizt vel við. Nú hefur hún týnt hönzkunum sínum þegar hún þarf að skreppa út, en samt fullyrðir hún, að Þeir séu einhvers staðar í blaðinu. Ef þið viljið hjálpa henni, þá fyllið út seðilinn hér að neðan og sendið til Vikunnar, póst- hólf 149. Ungfrú Yndisfríð dregur úr réttum lausnum og veitir verðlaun: Stóran konfekt- kassa að þessu sinni. Merkið bréfin með „Ungfrú Yndisfríð 9“. Hanzkarnir eru á bls......... Nafn Heimilisfang Sími ......... Síðast er dregið var úr réttum lausnum, hlaut verðlaunin: UNNUR B. GlSLADÓTTIR, Ásgarði 67, Reykjavík. 32 vméM

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.