Vikan


Vikan - 02.03.1961, Blaðsíða 16

Vikan - 02.03.1961, Blaðsíða 16
GOTT UPPELDI. í dýragarðinum í Basel í Sviss fæddist api nokkur og var nefndur Goma. Hann er nú rúmlega ársgam- all og orðinn eftiílæti allra. Forstjóri dýragarðsins tók hann til sín, að vísu ekki eingöngu vegna þess, hve honum þótti hann skemmtilegur, heldur lika af því, að hann aetlaði að gera tilraun, sem væri í þvi fólgin, hvort ekki yrði lengri ævi apans, ef hann yrði látinn lifa menningarlífi okkar. Gorilluapar taka þroska fyrr út en menn, og Goma mun verða full- þroska á tíunda ári. En þess ber líka að gæta, að meðalaldur þeirra er ekki nema 35 ár. ÁST MEÐ GRÍMU Elskendurnir ungu á myndinni eru ekki að gera ■, ð gammni sínu með því að seja upp gasgrímu á . fefnumótum sínum. Þau eiga nefnilega heima í franska bænum Lacq, og þar á staðnum er lítærðar-gasstöð, sem vinnur gasið úr jörðinni. Vegna sérstaklega mikils brennisteinsinnihalds þessa náttúrugass er úrgangurinn mjög eitraður. Þegar vindáttin breytist, leggur eiturgasið yfir einhvern hluta bæjarins, og fólk verður að gripa til gasgrimunnar. Og þannig er um hin borgar- hverfin. Allir bæjarbúar eru á stöðugum verði gagnvart gasinu. Skólabörn hafa gasgrímur liggj- andi fyrir framan sig á borðunum og taka þær með sér, hvert sem Þau fara. Til Póstsins, Vikunni, Reykjavík. Ég vona, a<5 þú sért svo fróður að geta frætt mig um höfund þessarar ágætu stöku: Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlátt yfir storð. Þeirra mái ei talar tunga, — tárin eru beggja orð. Með kærri þökk, Hervör. Hún er eftir ólöfu frá Hlöðum. Þið eyðileggið myndimar. Kæra Vika. Mig hefur lengi iangað til að skrifa ykkur og vekja athygli ykkar á einu atriði í sam- bandi við forsiðuna á heiðruðu blaði ykkar. Undanfarin ár hafa birzt á forsíðunni ákaflega skemmtilegar myndir, gerðar af Halldóri Pét- urssyni, og hefir mig langað til að halda þeim saman og jafvel ramma inn og hengja upp á vegg. En gallinn er sá, að þið eyðileggið alltaf myndirnar með því að klessa VIKAN og dags. o.fl. inn á miðja mynd. í guðanna bænum hættið þessu og takið ykkur til fyrirmyndar til dæmis forsiðu Tidens Kvinder. Allir geta séð, að þetta er Vikan, þótt ekki sé nafnið prentað með risaletri á m'iðja forsíðuna. Þökk fyrir veitta ánægju við lestur skemmti- legs blaðs. Kveðja, E. Gíslad. Svar vifí þessu birtist í 5. tbl., 2. febrúar. Er það á afturlöppunum? Mér finnst þetta blessað útvarp okkar alyeg á afturlöppunum, hvað danslög snertir. Ég las b’-éf í póstinum fyrir nokkru og lýsti bréf- ritari þar yfir óánægju út af spiladósinni, sem er notuð sem þagnarmerki. Gat hann um að sparka henni úr útvarpssal. En ef henni væri sparkað, mætti alveg eins sparka annarri spiladós. Það er sú. sem velur danslögin á sunnudögum. Það er varla liægt að hlusta á þetta bölvað gaul, hvað þá dansa eftir þvi, sem stjórnandinn ■"elur. Svo er það þessi danskennsla, sem enainn skilur. Hvernig væri að leyfa Rigmor Hansson — eða Hermanni Ragnars — að komast að, þar sem hún hefur meiri reynslu, að mínnsta kosti er hún áreiðalnega búin að kenna leneur. Og hvernig væri að láta hlióm- sveitarstióra velja lögin (t.d. Svavar Gests) ? Ée veit, að margir eru mér sammála um þetta. Vertu blessuð, Vika mín, og þakka þér fyrir allt gott. ... '__' ' " ....... ,v S. og B. P.S. Æskan og lifið er alveg ágætur þáttur i i hlaðinu, en hvernig væri að fá eins og 10 vinsælustu lögin (lista) ? Vifí svörufíum þessu afí verulegu leyti í sífíasta pósti, og læt ég nægja afí visa. til þess svars. Sá tillaga afí láta hiiómsveitar- stióra velia danslögin finnst mér hafa. þó nokkufí til síns máls og væri athugandi furir útvarpifí, þó elcld endilega í stafí 'lunskcnnaranna, heldnr á öfírum tima. — Vifí skulum hafa vinsældarlistann bak vifí rgrafí. ,.Lög fyrir afbrigðilegt, ungt fólk.“ Vikan, Reykjavik. Kæra Vika. Viltu gera svo vel að birta þetta fyrir okkur. Útvarpsþátturinn Lög unga fólksins var á sin- um tíma mjög vinsæll þáttur meðal ungs fólks, enda var það markmið hans að flytja i útvarpinu l>au lög, sem ungt fólk hafði mest gaman af að hevra, og var nafn hans valið i samræmi við það. Nú hefur verið hleypt i þáttinn manni þeim, er Þorkell heitir. Hann hefur komið þar inn lögum, sem allur þorrinn af ungu fólki hefur ekki nokkurn minsta áhuga á, jafnvel þótt út- skýringar fylgi. Markmið mcð þessu hefur sjálfsagt verið að glæða áhuga ungs fólks á hinni svokölluðu æðri tónlist, en það teljum við hafa mistekizt gjörsamlega með þessari ráðstöfun. Þegar svona er ruðzt inn á svið unga fólksins og reynt að troða upp á það ein- hverju, sem það vill alls ekki heyra, fyllist það aðeins réttlátri gremju og slekkur á útvarpinu eða stillir á Kanann. Hann reynir nefnilega ekki að troða upp á mann sinfóníum, þótt kannske sé hann slæmur (ekki þó að okkar dómi), greyið. Og hvaða gagn gerir þá að spila sinfóníurnar í okkar þætti? Krafa ungs fólks er þvi að fá „lög unga fólksins" eingöngu aftur i þáttinn, svo að hann fái borið nafn sitt með rentu og ungt fólk haldi áhuga sínum á honum. Tillaga okkar til úrbóta fyrir það ungt fólk, sem vill hlusta á prelúdiur, er sú, að útvarpsráð stofni nýjan þátt. Nafn hans gæti til dæmis verið Lög fyrir afbrigðilegt, ungt fólk. Hvað segir um þetta, Vilta min? Ég vona innilega, að þú sért á sama máli. Þakka þér svo fyrir Stínu og Stjána og allt það. Blessuð Tveir óánægðir. Nú finnst mér þifí nokkufí vifískotaillir, cinkum þó ósanngjarnir í garfí aumingja Þorkels. Án þess afí ég geti fulhjrt um þafí þgkir mér trúlegast, afí ha.nn hafi verifí fenginn til þess arna, í stafí þess afí honum hafi verifí „hleypt inn í þáttinn". Afí öfíru leyti er ég svona fast afí því sammála. ykkur og vona, afí úr rætist og þifí getifí afí nýju orfíifí ánægfíir mefí þáttinn ykkar. Stína og Stjáni bifíja afí heilsa ykkur. Menningarleysi í klæðaburði. Iíæri Póstur. Er það rétt, að ekki sé til nokkur staður i borginni okkar, þar sem fólk fer ekki nema í sinum beztu spjörum? Ég hef komið á ýmsa Framh. á bls. 32. 16 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.