Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.04.1961, Qupperneq 3

Vikan - 13.04.1961, Qupperneq 3
álfsmánaðar sumarleyfisferð óbyggðir íslands. Fyrir nokkrum árum voru óbyggðaferðir svo til óþekkt fyrirbrigði utan smalamennskur og aðrar þær ferðir, er nauðsyn rak til. Má segja, að óbyggðir landsins hafi komizt í tízku fyrir ágætt starf Ferðafélags íslands og svo það, er sterkar fjallabifreiðir voru teknar í notkun og gerðu þessi ferðalög möguleg. Nú leitar fjöldi fólks inn á öræfin að sumariagi til þess að finna þá kyrrð og ró, sem óþekkt er i þéttbýli, og til þess að nema og undrast þá tign, sem íslenzk náttúra býr yfir. Það væri sannarlega skemmtilegt að geta veitt fleiri les- enduin Vikunnar kost á slíku sumarleyfi, sem óbyggðaferð getur verið, en það er ekki unnt að sinni. Hins vegar gæti verið, að hinn lieppni vildi veita öðrum örlitla hlutdeild í happi sínu með því að taka myndir i ferðinni og segja frá henni í blaðinu. Sólarupprás í Herðubreiðarlindum. Wm 1 fáum orðum sagt: Gissur er á Þing- völlum og veit nú ekki vel, hvernig hann hefur komizt þangað, en allt að einu er þaO staðreynd, að þar er hann. Líklega hefur hann lent á kendirii með strákunum, og svo hefur verið ekið eitthvað út í loftið. Rasmína veit auðvitað ekkert um þetta, og hún bíður sennilega með kökukeflið, þegar honum þóknast að koma heim. í bili langar hann ekkert til þess, en annað veld- ur honum áhyggjum: Hann hefur týnt skjalatösku með verðmætum skjölum á leið- inni, og þeim verður hann að ná, hvað sem það kostar. Hann man ekkert, hvort hann fór Hellisheiði, Mosfellsheiði eða Uxa- hryggjaleiðina, en við höfum komizt að því eftir ýmsum krókaleiðum, að það mtm standa hér í blaðinu, hvaða leið hann fór. Það mun vera einhvers staðar fyrir framan miðju, skotið inn í texta, en þið ættuð nú að vera svo elskuleg að leita og láta okkur vita með því að skrifa blaðsíðutalið á seðil- inn hér að neðan. -Jr GETRAUNASEÐILL NO. 3. Gissur fór Heimilisfang

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.