Vikan - 13.04.1961, Side 12
Bronchitis er óþægi-
legur og ekki hættu-
laus sjúkdómur
m
Hósti — oft mjög kvalafullur — eru
fyrstu einkennin á bronchitis.
Hinar stóru loftpípur, sem liggja
niður í lungu, greinast, þegar niður
i lungu er komið, í hárfínt pípunet,
— sem minnir einna helzt á trjá-
greinar. Allar þessar hárfínu grein-
ar eru klæddar sérstakri slímhúð og
örsmáum hárum, sem hindra slím-
myndun í lungunum.
Bronkítis er bólga í slfmhimnu
þessara loftgreina. Þetta er yfir-
borðsbólga og þess vegna ekki
nærri eins hættuleg og lungnabólga.
Bráður bronkítis hefst yfirleitt með
venjulegu kvefi, sem smitar niður
í lungnagreinar. Þetta er algengast
um Lörn og aldrað fólk.
Sjúkdómseinkennin eru fyrst og
fremst hósti. Hóstinn er þurr, einna
líkastur hundbofsi, og honum fylgja
sárir verkir, sem koma af þvi, að
maður beinlinis finnur loftstraum-
inn rifa í hina bólgnu slímhimnu.
Yerkirnir eru sárari eftir því, sem
hóstinn er þurrari, — það er að
segja, að sjúklingurinn hósti engu
slími. Ekki eru sjúkdómseinkennin
ávallt greinileg meðal fullorðins
fólks, til dæmis þarf ekki að fylgja
hiti né andarteppa.
Börn, sem fá bronkítis, ættu á-
vallt að liggja rúmföst. Sama máli
gegnir um fullorðna, ef þeir fá hita.
Venjulega líður þetta svo hjá á einni
eða tveimur vikum, án þess að nokk-
uð sé að gert, en ef hitinn er óeðli-
lega hár, eru læknar vanir að gefa
sjúklingnum pencillin í nokkra
daga.
Dag- og nætur-hóstasaft.
Hóstasaft getur verið nauðsynleg,
en ekki er sama, hvernig hún er not-
uð. Eiginlega er greint á milli tvenns
konar tegunda af hóstasaft. Sú teg-
und, sem losar slím og fæst yfir-
leitt án lyfseðils, linar oftlega þján-
ingar sjúldingsins, vegna þess að
hún gerir hóstann „rakari“, — það
er að segja, að hóstinn rífur ekki
jafnmikið. Þessi tegund hóstasaftar
er manninum mjög holl, ef aðeins
hinu óeðlilega slími er hóstað upp.
Þess vegna má aðeins nota slímlos-
andi hóstasaft á daginn, þegar sjúkl-
ingurinn getur hóstað upp slíminu.
Ef þessi tegund er tekin á næt-
urnar, er liætt við, að sjúklingurinn
geti ekki sofnað, — en ef svo skyldi
fara, að sjúklingurinn sofnaði, er
hætta á, að slimið safnist fyrir i
lungnagreinunum og auki einungis á
bólguna.
í þeirri tegund hóstasaftar, sem
dregur úr hósta, er venjulega dálítill
morfínskammtur. Tilgangurinn er
að draga úr hóstanum og draga
þannig úr því álagi, sem hvilir á
slímhimnunni. Þetta er sem sagt
næturmeðal. Þar sem í þessu lyfi er
morfín, fæst það einungis gegn
framvísun lyfseðils og verður þvi
ekki íekið inn nema að læknisráði.
Menn ættu að varast að gefa smá-
börnum hóstastillandi lyf. Bf of
mikið er dregið úr liósta barnanna,
er hætt við, að of mikið slím safn-
ist fyrir i lungum þeirra, en það
götur jafnvel orðið þeim lífshættu-
'egt.
Framhald á bls. 27.
Myndin hér fyrir neðan sýnir loftæðarnar í heilbrigðu lunga — á mynd-
inni við hliðina sjást
loftæðarnar sýktar af
króniskum bronchitis,
sem bólgna af slími, sem
safnast í þær.
Húsið nr. 20 við Tómasarhaga. íbúðin, sem hér um ræðir, er á
miðhæð.
Kristleifur Jónsson aðalféhirðir ásamt dóttur sinni í skrifstofunni.
Séð úr borðstofu og inn í eldhús. Takið eftir skilrúminu til hægri.
Það er létt og skemmtilegt.
12 VIKAN