Vikan - 13.04.1961, Page 15
MARZ
MERKU R
SOLIN
Þegar Venus er svo til í beinni línu milli jarð-
ar og sólar, sjáum við Venus ekki, vegna þess
að þá snýr stjarnan dökku hliðinni aS okkur.
Venus er sú jarSstjarna, sem kemur næst
jörSu í göngu sinni umhverfis sól. Þegar hún
er næst jörSu, skilja aSeins 42 milljónir kiló-
metra stjörnurnar aS, og er það ekki langt, ef
miðað er við alheiminn, þar sem allar vega-
lengdir eru mældar i Ijósárum, þ. e. vegalengd-
inni, sem ljósið fer á einu ári. Til samanburðar
má geta þess, að ljósið getur farið nálægt 8
sinnum umhverfis jörðu á einni sekúndu.
Vegna þess að Venus er milli jarðar og sólar,
sést hún aldrei um miðnætti. Sést hún annað-
hvort nolckru fyrir miðnætti og kallast þá kvöld-
stjarnan eða þá nokkru eftir miðnætti og kall-
ast þá morgunsljarnan. Grikkir nefndu hana
Phosphorus, þegar hún birtist aS kvöldi til,
en Hesperus, þegar hún birtist að morgni til.
Venus snýst ekki umhverfis sól á sama fleti
og jörðin. Ef svo væri, þá mundi Venus ávallt
sjást sem svartur depill á sólskífunni, þegar
hún væri í beinni línu milli jarðar og sólar.
Þetta kemur þó stundum fyrir. SíSast gerðist
þetta árið 1882, en næst kemur þetta fyrir 7.
desember 2004.
Því fjær sem jarðstjörnurnar eru sólu, þvi
lengri eru árin á þeim, þ. e. sá timi, sem það
tekur stjörnurnar að fara einn hring umhverfis
sól. Ár Venusar er töluvert styttra en ár jarðar,
255 dagar.
Menn hafa beitt alls konar rannsóknarað-
ferðum til þess að komast að því, hve dagurinn
á Venus er langur. Eins og menn vita, þá er
dagur sá tími, sem það tekur stjörnu að snú-
ast einn hring um sjálfa sig. En hve mikið sem
menn hafa lagt á sig til þess að komast að nið-
urstöðu, þá vita þeir ekkert með vissu enn þá.
Telja jafnvel sumir, að dagurinn á Venus sé
jafnlangur og Venusárið og aS stjarnan snúi
alltaf sömu hliS að sólu, svipað og tungl
jarðar gerir gagnvart jörðu. Flestir hallast þó
að þeirri skoðun, að dagurinn á Venus sé jafn-
langur og nokkrar vikur á jörðinni og um 6 til
7 Venusardagar séu í ári á Venus. ÁstæSan til
þess, að ekki skuli vera unnt að ákveða lengd
dagsins, er fyrst og fremst sú, að menn sjá
ekki niður á'yfirborð stjörnunnar.
Vegna þess að lofthjúpur Venusar hylur yfir-
borð stjörnunnar, þá er hann i raun og veru
það á stjörnunni, sem menn þekkja bezt. Með
litrófsrannsóknum nútimans má öðlast tölu-
vert örugga vitneskju um þau efni, sem loft-
hjúpar stjarnanna eru samsettir úr. ÞaS, sem
vekur mesta atliygli í lofthjúp Venusar, er hið
mikla magn af kolsýru (koldioxið), sem er i
honum. Hún er jafnvel svo algeng, að sumir telja
hana aðallofttegundina i loftdjúpi Venusar.
Venus endurkastar 60% af sólarljósinu, sem
fellur á hana. Þar sem endurkastshæfnin er svip-
uð og í regnskýjum jarðar, var ekki óeðlilegt,
að menn teldu, að það væru regnský, sem hyldu
ásjónu Venusar. Menn urðu því meira en lítið
undrandi, þegar þeir með rannsóknum gátu
ekki fundið neinn vott vatnsgufu. Súrefni hefur
ekki heldur fundizt á Venus.
Hitinn sólar megin á Venus hefur reynzt vera
50 til 60 stig á Celsíus, en i skuggan-
um er hitastigiS mínus 20 gráður á Celsíus.
Nú hefur kolsýran i loftdjúpi Venusar
svipuð áhrif og gler í gróðurhúsi. Má því gera
ráð fyrir að hitastigið við yfirborð stjörnunnar
sé töluvert hærra.
Venus hefur verið kölluð „tvíburasystir jarð-
ar“, vegna þess hve margt er líkt með þeim.
Þegar farið var þó að rannsaka Venus, kom
í ljós, að að mörgu leyti eru stjörnurnar mjög
Framhald á bls. 26.
i
þessu tautaði ég.
— Elsku Palla mín, þú mátt til
með að hjálpa mér. — HvaS get ég
eiginlega gert?
ÞaS kom svolítið hik á hana, en
svo sagði hún: — Elias og bróSir
þinn eru góðir vinir. Ef hann kæmi
nú í heimsókn til ykkar eitthvert
kvöldið, gæti ég litið inn af tilviljun.
Þá gætum við rætt málið og leið-
rétt þennan heimskulega misskiln-
ing. Finnst þér þetta ekki nolckuð
góð hugmynd?
— Nei, síður en svo, sagði ég.
En Ella sat við sinn keip, og það
er svo erfitt að neita henni.
Þór, bróðir minn hristi höfuðið,
þegar ég sagði honum frá þessu.
— Elías? sagði Iiann; — ég hitti
hann aldrei. Honum finnst það á-
reiðanlega skritið, ef ég fer allt i
einu að bjóða honum heim. — Eli-
as er aS selja tryggingar fyrir eitt-
hvert tryggingafélag. Segðu honum,
að við ætlum að liftryggja okkur,
þá kemur hann eins og skot, sagði
ég.
Þór féllst á þetta.
Á laugardagskvöldið kom Elías
meS fulla tösku af skjölum og bækl-
ingum. Hann var að útlista fyrir
okkur ýmsar hagkvæmar tryggingar
sem við ættum kost á fyrir mjög
lágt iðgjald, þegar dyrabjöllunni
var hringt.
Það var auðvitað Ella.
— En hvað hittist vel á, kvak-
aði ég — við ætlum einmitt að fara
að drekka kaffið. Elías er hjá okkur,
— þú kannast við hann, er það
ekki?
— Jú, sagði Ella og geystist inn
í dagstofuna og heilsaði.
— Ég ætla aðeins að skreppa og
ná í svolítið af kökum handa okk-
ur með kaffinu, sagði ég, — Þú
ættir að fara fram í eldhús, Þór,
og láta vatn í ketilinn.
— Með ánægju, sagði hann. —
Og á næsta augnabliki voru Ella og
Elías ein eftir i dagstofunni. Það
var góður spölur í næsta bakarí.
Ég var heldur ekkert að flýta mér,
því að nú reið ó, að elskendurnir
fengju að sættast i friði.
Þegar ég kom inn i forstofuna að
hálftíma liðnum, staldraði ég að-
eins við og hlustaði. Allt var hljótt.
Þetta lilaut að vera góðs viti, en af
því að ég vildi helzt ekki koma að
þeim í faðinlögum, beygði ég mig
Framh. á bls. 31.
VIKAH 15