Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 25
fyrir-
liggjandí
KAUP
menn
KAUP
félög
Úrval
kjílefnfl
Kr. Þorvaldsson & Co.
Grettisgötu 6 Sími 24478.
*
tjóUubiúi
A <s
•vt
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Hamingjan verð-
ur þeim, sem fæddir eru í byrjun apríl afar hliðholl,
og reyndar þarf enginn neinu að kvíða, sem fæddur
er undir Hrútsmerkinu. Fimmtudagur skiptir kon-
ur miklu. Að likindum ferð þú að heiman um helg-
ina, en sú ferð verður styttri en þig óraði fyrir, og endalok
þess máls verða mjög nýstárleg og skemmtileg. Talan 6 kem-
ur einkennilega við sögu. Heillalitur rautt.
Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þér hættir dálitið
við að láta smáglappaskot angra þig og það er engu
líkara en þú viljir ekki koma auga á hinar ljósu
hliðar lifsins í þessari viku. Þó verður atvik sem
gerist um helgina til þess að koma þér í skárra skap.
Reyndu að sinna áhugamálinu, sem þú eignaðist eftir áramót.
Það getur fært þér mikla gleði. Föstudagur og laugardagur eru
beztu dagar vikunnar.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júni): Þú kynnist
persónu í vikunni, sem gæti orðið þér að miklu liði,
ef kunningsskapur ykkar helzt. Þó gæti tortryggni
þín í garð þessarar persónu spilit mikið fyrir. Á
vinnustað gerist atvik, sem kemur þér i einhvern
vanda, en endlok þess máls verða ekki eins ógurleg og þú
heldur. Þú ferð í samkvæmi í vikunni, þar sem þú færð undar-
legar fréttir um vin þinn.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júli): Þér hættir dá-
lítið tii fljótfærni í þessari viku, og getur fljótfærni
þin jafnvel orðið til þess að þú missir af tækifæri,
sem þig hefur lengi dreymt um. Hugsaðu þig þvi
vandiega um, áður en þú leggur í nokkur stórvirki.
Vinur þinn verður fyrir óréttlátri gagnrýni, og getur þú orðið
til Þess að rétta hlut hans.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Vikan er þér mjög
hliðholl hvað peninga snertir — iiklega græöist þér
íé óvænt. Þó gæti gleymska þin orðið til þess að
þú veröur aí auðfengnum gróða. Mundu að endur-
nýja happdrættismiðana þína. Þeir, sem fæddir eru
2. og 3. ágúst ættu umfram allt að fara varlega í hjartans
málum. Þú færð skemmtilega gjöf í vikunni.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú skalt ekki
hafa þig allt of mikið í frammi í vikunni, því að
stjörnurnar benda á, að þér geti orðið á stórt glappa-
skot, ef þú leggur i einhver stórvirki. Þú kemst að
leyndarmáii af einskærri tilviljun, og það væri leið-
inlegt, ef þú færir lengra með það. Heima við munt þú una
þér bezt í vikunni. Þú færð liklega skemmtilega heimsókn.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú verður fyrir
áhrifum af nýjum félaga og verður það til þess að
að þú ferð að vinna að nýju og skemmtilegu verk-
efni. Ef þú hyggur á einhverjar breytingar, er þetta
einmitt vikan til þess. Amor verður eitthvað á ferð-
inni, en líklega verður þú sjálfur lítið fyrir örvum hans, heldur
sérð þú mátt hans allt i kringum þig.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú verður á báð-
um áttum i vikunni er þú þarft að taka þýðingar-
mikla ákvörðun. Réttast væri að yfirvega málið í
svo sem viku, því að það er verra en ekki að taka
ákvörðun í flýti án þess að velta málinu fyrir sér.
Það gæti komið þér illilega í koll. Þú kynnist kunningja kunn-
ingja þíns, og þú munt komast að þvi að þetta er allt önnur
persóna en þú hafðir haldið.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Það verða nokk-
uð margar hindranir á vegi þinum i þessari viku,
en allt bendir til þess að þú sigrizt á öllu mótlæti,
svo að vikan verður þér mjög ánægjuleg. Þú verður
óvenju afkastamikill og fjörugur i vikunni, og ættir
þú að grípa tækifærið og vinna upp Það, sem miður hefur
farið undanfarið. Á vinnustað berast Þér skemmtilegar fréttir.
Heillatala 7.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Mánudagur,
þriðjudagur og miðvikudagur verða miklir heilla-
dagar, en hinsvegar verða hinir dagar vikunnar
skelfilega tilbreytingarlitlir. Eitthvert ósamkomulag
verður annað hvort á vinnustað eða heima við, og
getur þú einn með háttvísi og skynsemi orðið til þess að sætta
alla málsaðila. Vinur þinn veldur þér einhverjum vonbrigðum
— en þetta var óviljaverk af hans hálfu.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú skalt ekki
taka allt of mikið mark á ráðleggingum kunningja
þinna varðandi breytingar þær á högum þínum, sem
þú hefur í hyggju, heldur treysta einvörðungu á
eigin dómgreind í þeim efnum. Líklega kemur þú
einhversstaðar fram opinberlega eða þú talar yfir einhverjum
mannfjölda, og þá ríður á að vera hógvær og gæta tungu
sinnar — vertu umfram allt ekki persónulegur.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Það verður ýmis-
le'gt til þess að angra þig í þessari viku, en það er
að miklu leyti sjálfum þér að kenna, því að svart-
sýni þin er naumast heilbrigð. Þú gerir allt of mikið
veður út af smáglappaskotum. Mundu að standa
við loforð það, sem þú gafst vini þínum í vikunni sem leið. Það
myndi koma sér illa fyrir hann ef þú brygðist honum.