Vikan


Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 27

Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 27
KVENFRELSI ÞOKKI. Framhald af bls. 9. þróun, sem maðurinn veldur og þolir, leiði hann að lokum til æðri þroska, þá benda engin rðk til þess, að okkur beri að undanskilja kon- una. ★ sin áhrif á hugarfar konunnar. Einnig karlmanninum hefur það breytt og ekki að öllu leyti til bóta. Karlmannseðlið hafði lengi mótazt við önnur viðfangsefni. íslenzk tunga vitnar enn um það, að ung- ir sveinar voru barðir til bókar, er þeim veitti örðugt að temja sér þá iðju að hokra að bókfræðum. Nú gilda gleraugun og hofmannavikin sem aðalsmerki. Við unum áralöng- um lestri eins og kyrrlátir munkar, og konan hefur sætt sig við þessa breytingu og lagt með oklcur út í hið margrómaða ævintýri, þó að við höfum glatað þeirri arnarsjón og þeim bjarnarkrafti, sem konur dáðu mest fyrr á tið. Þannig mun mat okkar á konunni einnig breytast, og það hefur þegar breytzt. Hún hefur ekki staðið i stað, þó að róttækari breytingar virðist nú fram undan. Eðli hennar hefur ekki glatast og mun ekki glat- ast. Þvi rýmra sem um hana varð, þvi meiri menntun sem hún hlaut, því betur var hún vaxin maka- og móðurhlutverki sinu, og karlmann- inum hefur alltaf þótt hún býsna eftirsóknarverð. Sú tið kann að koma, að rómantisk tilbeiðsla henn- ar á karlmanninum verði hófsam- legri og mat hennar á yfirburðum hans raunsærra. Undan þvi ættum við lcarlmenn eklci að reyna að flýja. Samfélagsþróunin vex einstakl- ingnum yfir höfuð, og hann ræður litlu um hana, kona jafnt sem karl. Samt mótar hún ekki konuna i heild, eins og dautt efni væri. Kon- an sjálf er eitt meginafl byltingar- innar, jafnframt þvi sem hún verð- ur fyrir áhrifum hennar. Samfélags- byltingin er að nokkru leyti hennar verk. Hvorki studiosus severus né ég getum neinu um það spáð, hvern- ig konunni tekst að finna sjálfa sig og vernda sjálfa sig i þeim samfé- lagsháttum. sem þróunin virðist stefna að. Við getum aðeins skynjað með opnum huga það, sem gerist. En ef við trúum þvi, að sú fram- LÆKNIRINN SEGIR. Framhald af bls. 12. Þrár bronkítis. Þrár bronkitis er mjög óþægileg- ur og getur jafnvel verið hættulegur. Hann er algengastur í „lélegum iungum“ og oft samfara öðrum lungnasjúkdómum. Oft virðist sem svo, að þrár bronkítis stafi af þrá- látri ertingu, — til dæmis af mik- illi tóbaksnotkun eða ryki. Sjúkdómurinn þróast yfirleitt stig af stigi. Fyrsta sjúkdómseihkennið er hósti, — hann er verstur á morgn- ana, þegar likamsstarfsemi sjúkl- ingsins er naumast byrjuð eftir svefnhvildina, og honum liður ekki vel, fyrr en hann er búinn að hósta upp slímkekkjum, sem safnazt hafa fyrir í lungunum um nóttina. Svo getur sjúkdómurinn orðið þrálátur, að sjúklingurinn þarf ekki annað en að fá kvef eða annan kvilla, til þess að bronkítiseinkenni komi í ljós. Þetta verður til þess að veikja veggi lungnapipnanna og draga úr teygjanleik þeirra. Þannig er hætta á, að lungnapípurnar vikki óeðiilega mikið, svo að slim og bakteriur geta setzt að í lungunum, án þess að sjúklingurinn geti hóstað þessum óþverra upp. Þetta getur komizt á það stig, að loftgreinarnar eru sifellt bólgnar, víkka smám saman og safna bakter- íum. Þess vegna endar slikur sjúk- dómur oftlega með þvi, að sjúkling- urinn verður að leggjast á spitala. Hægt er með nuddi að „slá“ slím- kekkina burt úr loftpipunum, —eða þá að sjúklingnum er komið fyrir i stöðu, sem auðveldar honum að hósta upp sliminu, — auk þess sem hafinn er hernaður gegn bakter- íunum með penicillini og öðrum bakteríueyðandi lyfjum. Hins vegar nægir ekki að gefa sjúklingnum pen- icillín, — samtímis verður að beita öðrum brögðum til þess að hreinsa lungun. ★ cJJ^d&t-skakÁ^dp^ ■ÚkSilUtyli HALLCéR S kUauiMvM} 2 zr

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.