Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 10
21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Gott
í gogginn
fyrir Ringjara.
Við sendum
tilboð beint
í símann.
Tilboð dagsins:
Gott 1
Gott 2
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út
50% afsláttur af lítilli pizzu
með 2 áleggstegundum.
50% afsláttur af matseðli.
Gos er ekki innifalið í tilboði.
Gildir í dag mánudag
Gildir í dag mánudag
Domino's
Serrano
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
3
3
9
50%
afsláttur
Lítil pizza m.
2 áleggsteg.
50%
afsláttur
af máltíð
fyrir einn
Ringjarar fara inn á ring.is
og óska eftir að fá MMS með
tilboðum send í símann.
AKRANES Fjárhagsáætlun Akranes-
kaupstaðar fyrir næsta ár er
jákvæð og var í vikunni sam-
þykkt af bæjarstjórn. Áætlað eig-
infjárhlutfall er 45 prósent. Ráðist
verður í verklegar framkvæmdir
fyrir 120 milljónir. Áætlaðar lang-
tímaskuldir eru um 2,5 milljarð-
ar króna, en áætlað eigið fé 4,2
milljarðar.
„Okkar staða er mjög góð. Við
byrjuðum að gera ráðstafanir
strax í fyrrahaust þegar hrunið
gekk yfir og stoppuðum þær fram-
kvæmdir sem hægt var að stoppa.
Við fórum í hagræðingaraðgerðir
og fengum starfsfólkið og sviðin
og skólana til að vinna með okkur.
Ég tel að það sé ríkasta ástæðan
fyrir því hvað við komumst vel út
úr þessu,“ segir Gísli S. Einarsson
bæjarstjóri.
Farið hafi verið í gegnum allan
rekstur bæjarins og sú skoðun hafi
skilað verulegum hagnaði.
„Við erum því með handbært
fé upp á 155 milljónir í stað þrjá-
tíu, sem við gerðum ráð fyrir. Við
munum greiða niður skuldir fyrir
286 milljónir en tökum engin lán,“
segir hann.
Spurður um erlendar skuldir segir
hann rétt að ekki hafi verið gengið
frá afleiðulánum við Landsbankann.
Hins vegar telji hann ekki að gerð
verði krafa um að greiða þau upp.
Þau lán eru í fyrrgreindri heildar-
tölu skulda, 2,5 milljarðar. - kóþ
Bæjarstjórinn þakkar góða afkomu skjótum viðbrögðum við erfiðleikunum:
Akranes stendur af sér hrunið
KOMINN AÐ LANDI Gísli bæjarstjóri seg-
ist stoltur yfir því hversu vel hafi gengið.
Starfsfólk bæjarins eigi stóran hlut í því,
en öll laun yfir 300.000 krónum voru
skert eftir hrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ENGLAND Lestarsporinu milli Englands og Frakk-
lands var lokað á sunnudag vegna viðgerða eftir að
lestir biluðu í Ermarsundsgöngunum á föstudag.
Fjórar lestir biluðu í göngunum milli Bretlands
og Frakklands. Talsmaður Eurostar-fyrirtækisins
segir ástæður bilunarinnar enn ókunnar en tvö
þúsund farþegar sátu fastir í göngunum í um tólf
klukkustundir án matar, vatns og loftræstingar.
Ermarsundsgöngin hafa verið lokuð síðan á
föstudag og er gert ráð fyrir að bilunin tefji för
sextíu þúsund farþega milli landanna um helgina.
Eurostar hefur beðist afsökunar á þessum töfum
og bauð viðskiptavinum sínum endurgreiðslur
vegna óþægindanna.
Mikið frost hefur verið í Frakklandi undanfarið
og vilja sumir meina að rafbúnaður lestanna hafi
orðið fyrir truflunum þegar þær fóru úr kuldanum
í hitann í göngunum. „Þetta er ráðgáta. Það sem
gerir málið svo dularfullt er að þessar bilanir
skulu núna fyrst vera að koma fram. Lestirnar
hafa keyrt í öðrum eins kulda í fjölda ára,“ var
haft eftir Nigel Harris, ritstjóra tímaritsins Rail
Magazine. - sm
Tvö þúsund manns sátu fastir í göngum milli London og Parísar á föstudag:
Ástæða bilana enn ókunn
BILANIR Lestir sem fóru á milli Lundúna og Parísar biluðu í
neðanjarðargöngum milli borganna. Búist var við að bilunin
hefði tafir í för með sér fyrir sextíu þúsund farþega.
NORDIC PHOTO/AFP