Fréttablaðið - 21.12.2009, Qupperneq 18
18 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Hjá Handverkshúsinu
færðu allt til að skapa
þitt eigið handverk.
Vélar, verkfæri, hráefni
og námskeið - jafnt fyrir
byrjendur sem og lengra
komna.
Kíktu í heimsókn,
heitt á könnunni!
Vefverslun:
handverkshusid.is
Reykjavík
Bolholt 4, Sími: 555 1212
Akureyri
Kaupangi Sími: 461 1112
VA LHÖL L BÁSAR
Mjúk kláðafrí ullarnærföt úr 100% Merino ull.
100% Merino ull sem heldur vel hita á
líkamanum og dregur raka frá húðinni.
fyrir börn fyrir fullorðna
Verð bolur: 5.800 kr.
Verð buxur: 4.500 kr.
Verð bolur: 10.500 kr.
Verð buxur: 9.100 kr.
Kláð
afrí
ull
Kláð
afrí
ull
SPÓI
Góð 100% Merino ullarnærföt sem halda
barninu þurru og hlýju.
fyrir ungbörn
Verð bolur: 3.200 kr.
Verð buxur: 2.800 kr.
Kláð
afrí
ull
SKATTAR Tryggingagjöld, sem eiga
að skila ríkissjóði um sextíu millj-
örðum í tekjur á næsta ári, gefa af
sér rúma fjörutíu milljarða í ríkis-
sjóð á þessu ári.
Tryggingagjöld leggjast ofan á
allar launa- og hlunnindagreiðslur
til launafólks í landinu. Þau voru
5,34 prósent í byrjun árs, hækk-
uðu í sjö prósent í sumar og hækka
í 8,35 prósent á næsta ári, sam-
kvæmt frumvarpi sem nú er til
meðferðar á Alþingi.
Tryggingagjöld eru sett saman
úr almennu tryggingagjaldi, sem
er 4,54 prósent, og atvinnutrygg-
ingagjaldi, sem nú er 2,21 prósent
en var 0,65 prósent þar til í sumar.
Frá áramótum verður atvinnu-
tryggingagjaldið 3,81 prósent.
Atvinnutryggingagjaldið renn-
ur í Atvinnuleysistrygginga-
sjóð og stendur undir greiðslu
atvinnuleysisbóta. Rökin fyrir
þeim hækkunum sem orðið hafa
á gjaldinu liggja í því hve mikið
atvinnuleysi hefur aukist. Á þessu
ári skilaði atvinnutryggingagjaldið
rúmum fimmtán milljörðum í ríkis-
sjóð. Útgjöld Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs námu hins vegar um 26
milljörðum. Hallinn var brúaður
með láni frá ríkissjóði.
Með þeirri hækkun í 3,81 prósent
af launaveltu í landinu, sem Alþingi
er nú með í undirbúningi, er stefnt
að því að atvinnutryggingagjaldið
skili um 28,3 milljörðum króna árið
2010 og á það að nægja til þess að
standa að öllu leyti undir kostnaði
við greiðslu atvinnuleysisbóta.
Almenna tryggingagjaldið, sem
er 4,54 prósent, á að skila um 31
milljarði á næsta ári. Þar af eiga um
tuttugu milljarðar króna að renna
í almenna lífeyristryggingakerfið.
7,7 milljarðar fara í Fæðingar-
orlofssjóð en samkvæmt lögum er
skylt að láta allt að 1,08 prósent-
um af tryggingagjaldstofni í þann
sjóð. Einnig munu um 2,3 milljarð-
ar renna til lífeyrissjóðanna og
jafna milli þeirra byrði af greiðslu
örorkulífeyris.
Öll þessi verkefni eru stórir
þættir í velferðarkerfinu. Að því
leyti stingur einn útgjaldapóstur,
sem er beintengdur innheimtu
tryggingagjalds, í stúf.
Staðlaráð, sem hefur sjö starfs-
menn og vinnur að því að inn-
leiða staðla í íslensku atvinnulífi,
fær sem endranær sína hlutdeild í
tryggingagjaldi næsta ár; 0,07 pró-
sent af öllum greiddum launum í
landinu munu skila Staðlaráði 50,4
milljónum króna í tekjur næsta ár,
samkvæmt frumvarpi til fjárlaga.
peturg@frettabladid.is
Tryggingagjald látið
kosta atvinnuleysið
Sextíu milljarða tekjum ríkisins af tryggingagjöldum verður varið til ýmissa
verkefna velferðarkerfisins, nema fimmtíu milljónum sem renna til Staðlaráðs.
ATVINNULEYSISSKRÁNING Af sextíu milljarða tekjum af tryggingagjaldi næsta ár er áætlað að 28,3 milljarða þurfi til að standa
undir greiðslu atvinnuleysisbóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KERTAVAX HANDA LASARUSI Juan
Carlos Valderried þakinn kertavaxi úr
kertum sem hann heldur á í fórnar-
athöfn, sem haldin var í Havana á
Kúbu til heiðurs heilögum Lasarusi,
dýrlingi holdsveikra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKÓLAR „Við verðum næstu daga að
flytja kassana og strax 28. desem-
ber verður fólk að koma sér fyrir,“
segir Kristín Hulda Sverrisdóttir,
flutningastjóri hjá Háskólanum í
Reykjavík.
Fyrstu deildir skólans eru nú að
flytja úr húsnæði skólans í Höfða-
bakka og úr Kringlunni 7 og 1, þó
ekki úr gömlu prentsmiðjubygg-
ingunni sem skólinn heldur enn
um sinn. Deildirnar sem eru að
flytja eru að sögn Kristínar tækni-
og verkfræðideild, tölvunarfræði-
deild og viðskiptadeild. Skrifstofa
rektors og fjármálasviðið flytja
einnig núna. „Lagadeild, kennslu-
fræði- og lífheilsudeild og Opni
háskólinn verða eftir þar til í júní.
Þá verða allir loks saman á einum
stað,“ segir Kristín.
Starfsmenn eru að taka saman
föggur sínar á gömlu stöðunum
og verið er að leggja lokahönd á
tæknimálin á nýja staðnum. „Skól-
inn verður síðan opnaður eftir
áramót og við byrjum að kenna
11. janúar. Sá dagur er opinber
flutningadagur og þá ganga nem-
endur og kennarar fylktu liði af
gamla staðnum á þann nýja,“ segir
Kristín Hulda Sverrisdóttir. - gar
Flutningar hafnir í nýbyggingar Háskóla Reykjavíkur í Nauthólsvík:
Skrifborð á nýjum stað fyrir áramót
KRISTÍN HULDA SVERRISDÓTTIR Allt er
að verða tilbúið fyrir fyrstu flutningana í
nýjar byggingar Háskólans í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÆREYJAR Starfsfólki færeyska
Lögþingsins í Þórshöfn var illa
brugðið þegar það undirbjó
þingfund í síðustu viku. Ástæð-
an var sú að því tölvukerfi
hússins var í lamasessi. Hvorki
hljóðnemar né atkvæðahnappar
virkuðu og svo fór að þingfundi
var frestað.
Ekkert hefur verið staðfest
um orsakir þessa, en ónefnd-
ur þingmaður segir við fær-
eyska dagblaðið Sósíalinn að
tölvustigamenn, eða hakkar-
ar, hafi gert áhlaup á tölvukerfi
löggjafarvaldsins.
Þingið kom þó saman til fund-
ar fyrir helgina. - kóþ
Tölvuþrjótar herja á Færeyjar:
Lögþingið var
hakkað í spað