Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2009, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 21.12.2009, Qupperneq 30
30 21. desember 2009 MÁNUDAGUR ➜ ÍSLENSK FYRIRTÆKI Í KÍNA E xpo 2010 hefst í maí á næsta ári en allt þarf að vera tilbúið 1. apríl þegar skólabörnum og öðrum boðsgestum verður boðið á sýningarsvæðið. Þrjú starfa við undirbúning Íslands ytra; Hreinn Pálsson, framkvæmdastjóri þátttöku Íslands, Hafliði Sævarsson og Yan Ping Li. Hafa þau í nógu að snúast við að móta dag- skrá, útvega þá aðstoð sem íslensk fyrirtæki þurfa og sjá til þess að íslenski skálinn verði kominn í rétt horf áður en herlegheitin hefj- ast. Nokkrir starfsmenn eru á Íslandi og senn fjölgar í starfsliðinu ytra. „Við fengum skálann í lok september, til- búinn undir tréverk,“ segir Hreinn en iðnað- armenn vinna hörðum höndum við að koma öllu í rétt horf. Plús Arkitektar og Saga film sjá um útlit skálans og er Páll Hjaltason arkitekt, aðal- hönnuður og listrænn stjórnandi. Skálinn er 500 hundruð fermetrar, þar af er meginsýn- ingarrýmið 300 fermetrar. Yfirskrift Expo 2010 er „Betri borg, betra líf“ og formerki íslenska skálans verða „Hrein orka – heilbrigt líferni“. Útlit hans tekur mið af því, sem og allar áherslur Íslands. Expo er ekki fyrirtækjasýning heldur landa- og þjóðakynning. Engu síður koma fyrirtæki að þátttökunni með einum eða öðrum hætti. „Við njótum stuðnings nokkurra góðra fyrir- tækja sem vinna með okkur og það er ásetn- ingur þeirra að af hljótist samfélagslegur ávinningur,“ segir Hreinn. Styrktaraðilar eru Geysir Green Energy, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur, Icelandair og Iceland spring. Að sögn Hreins eru tæplega tuttugu íslensk fyrirtæki með starfsemi í Kína og hyggjast þau nýta Expo til að treysta viðskiptasambönd og afla nýrra. Hópur þrjátíu annarra fyrir- tækja hyggur svo á landvinninga. „Þau eru með starfsemi á Íslandi og ætla að markaðs- setja sig fyrir Kínverjum á heimssýningunni. Okkar verkefni er að styðja þau og veita þeim ráðgjöf og hjálp við að finna samstarfsmenn í viðskiptalífinu.“ Expo í Sjanghaí verður stærsta og umfangs- mesta heimssýning sem haldin hefur verið. Þátttökuríkin eru tæplega 200, hátt í 60 alþjóðastofnanir taka þátt og er búist við að gestir verði um 70 milljónir. Til samanburðar má nefna að Expo í Hannover árið 2000 sóttu á milli 10 og 20 milljónir og færri sóttu sýn- inguna 2005 sem haldin var í Aichi-héraði í Japan. Hreinn segir heimamenn leggja mikið undir svo allt verði flott og gott. „Það er búið að umbreyta borginni. Hótel, neðanjarðar- lesta- og hraðlestakerfi eru byggð og það er ráðist í stórar og viðamiklar framkvæmdir á nánast öllum sviðum borgarlífsins. Þetta er umfangsmeira en Ólympíuleikarnir í Peking á síðasta ári,“ segir hann. Mörgum þótti nóg um tilstandið þá. Sýningin er fyrst og fremst hugsuð fyrir heimamenn, að sögn Hreins. „Það er ekki horft mikið til ferðamanna þó væntanlega komi nokkrir milljónir til landsins vegna hennar. Aðallega er horft til Kínverja sjálfra, þeir eru markhópurinn. Það á að fá Kínverja alls staðar að úr landinu til að koma til Sjang- haí og upplifa heiminn allan á einum stað.“ Ákvörðun um þátttöku Íslands í sýningunni var tekin löngu fyrir bankahrun. Í fyrstu var ákveðið að verja rúmum sex hundruð milljón- um króna til verkefnisins en í kjölfar hruns- ins var fjárhæðin lækkuð í rúmar tvö hundr- uð milljónir. Af þeim mun ríkið greiða 140 milljónir en styrktaraðilar hitt. „Við erum Íslendingar og gerum allt vel sem við gerum og látum þessa peninga duga. 140 milljóna króna hlutur ríkisins eru talsverðir peningar á erfiðum tímum en ýmsar ástæður eru fyrir því að ákveðið var að halda þessu áfram. Þar ráða helst pólitísk samskipti og viðskiptatengsl. Við gerum þetta með öðrum og einfaldari hætti en til dæmis hinar Norðurlandaþjóðirn- ar sem hafa raðað sér í kringum okkur á sýn- ingarsvæðinu. Þau verja á bilinu þremur til sjö milljörðum í þátttökuna en við erum með okkar tvö hundruð milljónir.“ Hreinn segir Ísland njóta töluverðrar athygli í fjölmiðlum í Kína þótt við hér höfum af því litlar spurnir. Umfjöllunin er enda á móðurmálinu og Google-leitin því lítt hjálp- leg. „Ísland var eðlilega ekki mjög þekkt hér en eftir efnahagsvandræðin og það sem gekk á og gengur á í kjölfarið er mikið fjallað um landið. Hér var þátttakendaráðstefna um dag- inn og í kaffihléinu báðu tólf sjónvarpsstöðvar um viðtal við íslenska sendiherrann. Meðan á þeim stóð sat breski sendiherrann úti í horni og drakk kaffi. Enginn hafði áhuga á að tala við hann. Kínverjarnir vita því vel af okkur en athygl- in hefur ekki komið til af góðu. Okkar verk- efni nú er að grípa tækifærið og gera eitthvað jákvætt úr þessu, benda á að þótt við höfum gengið í gegnum efnahagshremmingar þá séu tækifærin á Íslandi mörg. Við höfum mennt- að vinnuafl, fallegt land og auðæfi í jörðu. Þessu þarf og þessu ætlum við að koma á framfæri.“ Þjóðir heims sýna sig í Sjanghaí Undirbúningur fyrir heimssýninguna í Sjanghaí á næsta ári er í fullum gangi. Búist er við 70 milljónum gesta og er borgin stóra nánast á röngunni. Björn Þór Sigbjörnsson sló á þráðinn til Hreins Pálssonar sem heldur um stjórntaumana fyrir Ísland. BORGIN MIKLA SJANGHAÍ Gunnar Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, heimsótti Sjanghaí fyrir nokkrum árum. Þessa mynd tók hann, merkilegt nokk, ekki úr flugvél eða þyrlu heldur úr skýjakljúfi. Húsin handan fljótsins virðast lítil en eru býsna há þegar að er gáð. ÍSLENSKI SKÁLINN Tilbúinn undir tréverk. SVONA VERÐUR ÍSLAND Í SJANGHAÍ Ætlunin er að flytja gesti heimssýningarinnar til Íslands í huganum. Til þess verða veggir við inngang klæddir íslensku hrauni, fjallagrös verða í skálanum til að gefa honum keim íslenskrar náttúru og loft hans verður kælt meira en gengur og gerist á heitum sumrum í Sjanghaí. Stuttmynd um Ísland verður varpað á striga og ímynd jökulíss dregin fram. Bakkavör (matvæli) CCP (tölvuleikur) Eimskip (flutningur) Enex (jarðvarmi) Green Diamond (dekkjaframleiðsla) Húsaco (húsbúnaður) Icelandair (flutningar) ICP (sjávarafurðir) iSupply (umboðssala) Lexus (fatnaður) Mind (leikföng) Össur (stoðtæki) Phoenix Seafood (sjávarafurðir) Promens Asia (plastframleiðandi) Samskip (flutningar) Ísland var eðlilega ekki mjög þekkt hér en eftir efnahagsvandræðin og það sem gekk á og gengur á í kjölfarið er mikið fjallað um landið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.