Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 39
Frjáls framlög www.jolagjofin.is
904-1000 kr. 1.000
904-2000 kr. 2.000
904-3000 kr. 3.000
kl.19-21
STYRKTARTÓNLEIKAR
ÍSLAND Í DAG Í KVÖLD
Á Íslandi starfa 5 mæðrastyrksnefndir sem hafa
það sameiginlega markmið að klæða og fæða
þá sem þurfa. Áherslan hefur verið á einstæða
foreldra en við hafa bæst eldri borgarar, yngra
fólk og fólk af erlendu bergi brotið.
Fólkinu sem þarfnast aðstoðar hefur fjölgað
verulega. Aðsóknin hefur án efa tvöfaldast,
jafnvel meira.
Mikill styrkur er í því að finna stuðning frá
fyrirtækjum, félagasamtökum og síðast en ekki
síst frá einstaklingum. Nefndirnar sem starfa í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akranesi og
Akureyri treysta áfram á stuðning þjóðarinnar.
jolagjofin.is
gjöfin
JÓLAÞORPINU
ABC - MÆÐRASTYRKSNEFND - RAUÐI KROSSINN - STÍGAMÓT - ENZA
Í OPINNI DAGSKRÁ
BEIN ÚTSENDING kl.18:55-19:25
JÓLAÞORPIÐ Í HAFNARFIRÐI -
njóttu þess með okkur
Jólaþorpið í Hafnarfirði
á sjö ára afmæli. Þorpið
hefur risið á aðventunni á
hverju ári frá 2003 og er nú
orðinn ómissandi þáttur í
jólahátíð Hafnfirðinga og
annarra landsmanna. Þorpið
samanstendur af fagurlega
skreyttum jólahúsum þar
sem boðið er uppá handverk,
hönnun, heimabakaðar kökur,
heimagerð jólakort, konfekt,
sultur og annað góðgæti,
handmáluð kerti, jólakúlur,
myndlist, skartgripi og að
sjálfsögðu kakó og vöfflur.
Margir leggja hönd á plóg
við að gera þorpið sem best
úr garði og t.a.m. skreyta
leikskólabörn Hafnarfjarðar
jólatrén sem umlykja þorpið
með fallegu hlutunum
sem þau hafa búið til á
aðventunni. Tekið var á móti
600 leikskólabörnum sem
stolt lögðu leið sína í þorpið
til að skreyta. Það er því
virkilega fallegt um að litast
í Jólaþorpinu og fjölbreytt
skraut.
Fjölbreytt skemmtidagskrá
er á Jólasviðinu til þess
að létta lund og fá gesti í
jólaskap. Jólasveinar eru alltaf
á ferli og á gægjum enda er
mamma þeirra hún Grýla
allsráðandi í þorpinu, sér um
að allir hagi sér vel og kynnir
skemmtikrafta á sviðið.
Jólaþorpið er stolt
af því að taka þátt í
styrktartónleikunum
Jólagjöfin og vonast til þess
að sem flestir sjái sér fært að
láta eitthvað af hendi rakna til
þeirra góðgerðarfélaga sem
þar taka höndum saman í
söfnun fyrir jólin.
Mætum öll á frábæra tónleika
í þorpinu mánudagskvöldið
21. desember.
Í ár verður opið í Jólaþorpinu
allar helgar til jóla kl. 13-18
og eins verður kvöldopnun
síðustu dagana fyrir jól,
mánudag-miðvikudags kl.
18-22.
Verið velkomin í Jólaþorp
Hafnarfjarðar, Grýla tekur vel
á móti ykkur og allir ættu að
komast í jólaskap.
MÆÐRASTYRKSNEFNDIR