Fréttablaðið - 21.12.2009, Page 45
MÁNUDAGUR 21. desember 2009
TÍRA eru hekluð endurskinsblóm, handunnin í
Hafnarfirði úr íslenskum lopa og endurskins-
þræði, þannig að engar tvær TÍRUR eru eins. Í
miðjunni er svo sjálflýsandi hnappur til að auka
enn á endurskinið. Hönnuðirnir eru mósaíklista-
konan Alice Olivia Clarke og maðurinn henn-
ar, Kári Eiríksson arkitekt, sem reka saman
aok-design en hugmyndin hefur verið í vinnslu í
nokkur ár.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég tók eftir því að
fólk er ósýnilegt í myrkrinu hér á Íslandi og ég
sá að það vantaði falleg endurskinsmerki,“ segir
Alice. „Ég er myndlistarkona og geri stór mósaík-
verk, til dæmis það sem er í bókasafni Hafnar-
fjarðar, og Kári hannaði Hótel Búðir, til dæmis.
Við tvö, sem erum vön að gera svona stóra hluti,
slógum saman og gerðum eitthvað lítið og fallegt
sem gerir eitthvað gott.“
Tírurnar voru fyrst kynntar á pop-up markaði
í Hugmyndahúsi háskólans og skemmst frá því
að segja að þær seldust nánast upp og greinilega
margir sem vilja sameina öryggi endurskins-
merkjanna og fallega hönnun. Nú eru Tírurnar
fáanlegar í epal. - bb
Heklaðar ljósTÍRUR lýsa
upp fólk í myrkrinu
Alice Oliviu Clarke blöskraði hvað Íslendingar eru ósýnilegir í myrkrinu og ákvað að hanna falleg endur-
skinsmerki. Þau eru hekluð úr íslenskum lopa og með sjálflýsandi hnapp í miðjunni.
TÍRURNAR eru handgerðar úr íslenskum
lopa og engar tvær eru eins.
Listakonan Alice Olivia
Clarke hefur hannað end-
urskinsblóm úr íslenskum
lopa sem hún kallar Tírur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
VÖNDUÐ FÓÐRUÐ
DÖMUSTÍGVÉL
ÚR LEÐRI Í ÚRVALI
Til dæmis:
Engjateigur 5 - 105 Reykjavík - S: 581 2141 - www.hjahrafnhildi.is
Smáauglýsingar
Fréttablaðsins
eru einnig á visir.is