Fréttablaðið - 21.12.2009, Side 54

Fréttablaðið - 21.12.2009, Side 54
42 21. desember 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is JANE FONDA ER 72 ÁRA Í DAG. „Það er aldrei of seint. Aldrei of seint að byrja upp á nýtt. Aldrei of seint að verða hamingjusamur.“ Jane Fonda er bandarísk leikkona, rithöfundur, pólitískur aðgerðasinni og líkamsræktarfrömuður. MERKISATBURÐIR 1913 Fyrsta krossgátan lítur dagsins ljós í New York World. 1929 Fyrsta varðskip Íslendinga, Þór, strandar á Sölva- bakkafjörum við Húna- flóa. 1930 Ríkisútvarpið hefur út- sendingar. 1945 Ölfusárbrú við Selfoss er formlega opnuð og leys- ir af hólmi brú frá árinu 1891. 1948 Írland fær sjálfstæði. 1952 Kveikt er á Óslóartrénu á Austurvelli í fyrsta skipti. 1988 Farþegaflugvél springur yfir Lockerbie í Skotlandi. 270 manns farast, þar af ellefu á jörðu niðri. Á þessum degi árið 1969 var Árnagarður form- lega vígður en Handrita- stofnun Íslands var þar til húsa ásamt kennslu- og skrifstofuhúsnæði fyrir Háskóla Íslands. Árið 1972 var lögum um Handritastofnun Ís- lands breytt og fékk hún þá heitið Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Kennsla hófst í húsinu haustið 1969. Árnagarður var í smíðum í tvö ár en húsið er hönnun arkitektanna Kjartans Sigurðssonar og Garðars Halldórssonar sem unnu að húsinu í samvinnu við starfsmenn húsameistara ríkisins. Húsið var reist í snarhasti til að hægt væri að hýsa forn handrit sem komu til landsins tveim- ur árum síðar, í apríl 1971. Byggingin er á fjórum hæðum, samtals 829 fermetrar. Við vígslu hússins af- henti formaður bygginga- nefndarinnar, dr. Jóhannes Nordal, þá- verandi seðlabanka- stjóri, menntamálaráð- herra húsið fyrir hönd ríkisins. Ráðherrann, Gylfi Þ. Gíslason, afhenti svo eigendum húsið og voru það Einar Ólafur Sveinsson, prófessor í íslenskum fræðum og for- stöðumaður Handritastofnunar, og Magnús Már Lárusson, prófessor og rektor Háskóla Íslands, sem tóku við húsinu fyrir hönd stofnana sinna. ÞETTA GERÐIST: 21. DESEMBER 1969 Húsnæðið Árnagarður vígt Friðargangan, sem farin hefur verið undanfarin ár niður Laugaveginn á Þorláksmessu, stendur nú á tímamót- um þegar gengið verður þrítugasta árið í röð. Ingibjörg Haraldsdóttir, friðarsinni og einn af skipuleggjend- um göngunnar, segir þátttökuna hafa verið mjög góða frá upphafi. „Friðarhreyfingar um allan heim hafa staðið að svona göngum í gegnum tíðina en í fyrstu voru göngurnar farnar gegn kjarnorkuvánni á níunda áratugn- um. Fyrstu árin stóðu Samtök herstöðv- arandstæðinga að göngunni en síðan bættust við ýmsir friðarhópar eins og til dæmis listamenn, eðlisfræðingar og læknar,“ segir Ingibjörg. „Þegar fjara fór undan kalda stríðinu og eftir fall Berlínarmúrsins urðu göngurnar að almennum friðargöngum. Í ár eru það Ungliðahreyfing Hjálpar starfs kirkjunnar, Change- maker, Félag leikskólakennara, Frið- ar- og mannréttindahópur BSRB, Friðar- og mannréttindanefnd Æsku- lýðssambands þjóðkirkjunnar, Heims- ganga í þágu friðar og tilveru án of- beldis, Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Friðarhópur búddista - SGI á Íslandi og Samtök hernaðarandstæð- inga sem standa að göngunni. Hóp- urinn er fjölbreyttur að sögn Ingi- bjargar og fólk sameinast í göngunni í sameiginlegri von um frið. „Fólk er yfirleitt mjög upptekið á þessum tíma, við að undirbúa jóla- matinn og kaupa gjafir, og margir líta á þátttöku í göngunni sem sitt framlag til að bæta heiminn. Það að ganga með kerti saman er bæði hátíðlegt og fólki finnst þetta skipta máli. Og sameiginleg von göngufólks er sú að hægt sé að leysa vandamál heimsins með viðræðum en ekki vopnaskaki.“ Ingibjörg segir að veðurspáin sé góð og þau geti búist við tvö til þrjú þúsund manns en margir bæt- ist í gönguna á miðjum Laugaveg- inum á meðan aðrir gangi alla leið frá Hlemmi. Gangan leggur af stað klukkan 18 og verða kyndlar seldir á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur á Ingólfstorgi þar sem Einar Már Guð- mundsson rithöfundur flytur ávarp en meðlimir Hamrahlíðarkóranna undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur munu eins og undanfarin ár syngja í göngunni sem og við lok hennar. juliam@frettabladid.is GENGIÐ TIL FRIÐAR: FER FRAM Í ÞRÍTUGASTA SINN Á ÞORLÁKSMESSU Ganga sem gefur fólki mikið BÝST VIÐ FJÖLMENNRI GÖNGU Veðurspáin í ár gefur fyrirheit um góða þátttöku. Ingibjörg Haraldsdóttir, einn skipuleggjenda göngunnar, segir hana fastan lið í jólaundirbúningi margra fjölskyldna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AFMÆLI REGÍNA ÓSK ÓSKARSDÓTTIR söngkona er 32 ára. RAY ROMANO leikari er 51 árs. JULIE DELPY leikkona er fertug. KIEFER SUTHER- LAND leikari er 43 ára. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gísli Sveinsson Aflagranda 40, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 22. desember kl. 11.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Auður Guðmundsdóttir Hilmar Viggósson María Anna Gísladóttir Jóhann Gunnar Helgason Guðríður Jóhanna Gísladóttir Sveinn Gíslason Ester Jóhannsdóttir barnabörn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Sveinsdóttir frá Kambi, lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 17. desember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. desember kl. 15.00. Sveinn E. Magnússon Guðrún Guðmundsdóttir Sigurbjörg I. Magnúsdóttir Viðar Jónsson Oddný S. Magnúsdóttir Ingimundur Guðmundsson Einar Magnússon Margrét Steingrímsdóttir Helga Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Arnór Sigurðsson frá Hnífsdal, verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju í Grafarholti þriðjudaginn 22. desember kl. 11.00. Guðmunda Arnórsdóttir Björn Ástmundsson Málfríður Arnórsdóttir Sigurður Arnórsson Sigríður Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún J. Hjartar hjúkrunarheimilinu Sóltúni, áður Flyðrugranda 8, Reykjavík, sem lést mánudaginn 14. desember, verður jarðsungin frá Neskirkju, mánudaginn 21. desember kl. 13.00. Jóna Björg Hjartar Paul van Buren Sigríður Hjartar Stefán Guðbergsson Elín Hjartar Davíð Á. Gunnarsson Egill Hjartar barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Halldór Friðriksson Smáratúni 7, Keflavík, lést miðvikudaginn 16. desember. Hann verður jarð- sunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. desem- ber kl. 13.00. Sigríður Vilhelmsdóttir Óla Björk Halldórsdóttir Sigríður Björg Halldórsdóttir Kristján Sigurpálsson Sævar Halldórsson Susie Ström Þórunn María Halldórsdóttir Axel Jónsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.