Fréttablaðið - 21.12.2009, Side 62

Fréttablaðið - 21.12.2009, Side 62
50 21. desember 2009 MÁNUDAGUR AVIATOR Pétur Jóhann var í feiknalegu stuði ásamt þingmanni Framsóknarflokksins, Guð- mundi Steingrímssyni og spúsu hans, Alexíu. Kvikmyndin Bjarnfreðarson var frumsýnd á laugardags- kvöldið í Háskólabíói. Fullt var út úr dyrum í stóra salnum og þegar myndin byrjaði að renna yfir hvíta tjaldið mátti heyra hlátrasköll óma um allan salinn. „Maður skyldi aldrei afskrifa Georg alveg, maður á ekki að loka neinum dyrum. Ég er laus við hann í bili og get fengið að hafa hárið mitt í friði sem er núna fyrst að verða eðlilegt,“ segir Jón Gnarr sem var að borða sænskar kjötbollur í IKEA og safna atkvæðum fyrir nýja stjórnmálaaflið sitt. Hann leikur auðvitað sjálfan Georg Bjarnfreðarson sem allt snýst um í myndinni. „Ég sakna Georgs ekkert og ég hef enga þörf fyrir að vera hann nema kannski hvað fjármálin varðar, það er fínt að vera Georg í kreppunni,“ segir Jón. - fgg Georgs verður ekki sárt saknað Jörundur Ragnarsson og Sara Margrét hlökkuðu mikið til að sjá persónurnar sínar, Daníel og Ylfu Dís, lifna við á hvíta tjaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Leikkonan Katla Margrét og Jón Ragnar spókuðu sig um meðal gesta í Háskólabíói. Sigurður Þ. Árnason og Halldóra Edda Jónsdóttir voru fín á frumsýningunni. Víkingur Kristjánsson og Halldór Rut voru spennt fyrir Bjarn- freðarsyni. Þeir Gunnar Sigurðsson og Jóhannes í Bónus hafa haft í nægu að snúast að undanförnu en þeir mættu á frumsýningu Bjarn- freðarsonar ásamt Guðrúnu og Þór Hinrikssyni. Gamanleikarinn góðkunni, Magnús Ólafsson, og Tómas Geir Harðarson voru meðal gesta. Ólafur Darri fór á kostum í Fangavaktinni og hér er hann ásamt Lovísu Ósk. Hugrún, Logi og Steinunn voru flott á Bjarnfreðarson.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.