Fréttablaðið - 21.12.2009, Side 72
60 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Vodafone og Bylgjan kynna
Árlegir Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens verða í Háskólabíói þann 23. desember og hefjast kl. 22.
Hafdís Huld hitar upp fyrir tónleikana.
Miðasala er hafin í verslunum Vodafone og á vodafone.is.
Miðaverð kr. 2.900 kr.
Allar nánari upplýsingar á vodafone.is og prime.is
Þorláksmessutónleikar 2009 í Háskólabíói
KÖRFUBOLTI Stjörnumenn tryggðu
sér toppsætið í Iceland Express-
deild karla út árið með 89-74 sigri
á Blikum í síðasta leik sínum fyrir
jól. Þjálfarinn Teitur Örlygsson
hefur á einu ári stimplað Stjörnu-
liðinu inn í hóp bestu körfubolta-
liða landsins.
„Ég var rosalega ánægður með
þennan síðasta leik fyrir jól á
móti Blikum. Við erum búnir að
vera lélegir í þessum leikjum þar
sem við eigum að vera með betra
liðið. Í þessum leikjum sem allir
hafa búist að við myndum vinna
örugglega þá höfum við bara
verið í vandræðum og það var
einnig þannig eftir jól í fyrra,“
segir Teitur en annað af tveim-
ur deildartöpum liðsins kom ein-
mitt á heimavelli á móti liðinu í
níunda sæti, Tindastól. „Við töl-
uðum um það fyrir Blikaleikinn
að ef við ættum að eiga skilið að
vera í toppbaráttunni þá yrðum
við að vera betri í þessum leikj-
um líka. Mæta á tánum í alla leiki
en ekki bara geta komið okkur í
gírinn fyrir stóru leikina,“ segir
Teitur en Stjarnan hefur unnið
leiki sína á móti liðunum í öðru til
fjórða sæti og sigrarnir á Njarð-
vík og KR skila þeim í efsta sætið
yfir jólin.
Það verður að taka okkur alvarlega
„Við erum búnir að vinna öll liðin
í kringum okkur nema Grindavík
og það er æðislegt. Þetta eru líka
skilaboð til allra í deildinni að það
verður að taka okkur alvarlega því
það er það mikið búið af mótinu,“
segir Teitur.
Teitur Örlygsson tók við Stjörnu-
liðinu fyrir ári þegar lítið gekk hjá
liðinu og aðeins tveir af tíu leikjum
höfðu unnist í deildinni.
„Það var auðvelt fyrir mig að
koma þarna inn þegar staðan var
svona slæm. Liðið var gjörsamlega
í rúst á botninum og sjálfstraustið
var ekkert. Liðið var jafnframt
mun betra en stigataflan sagði,“
segir Teitur en liðið hefur nú unnið
sextán af 22 deildarleikjum undir
hans stjórn. „Núna er mótið hálfn-
að, við erum efstir, ríkjandi bikar-
meistarar og meistarar meistar-
anna líka. Við erum búnir að taka
risaskref fyrir félagið á þessu ári
og ég vil helst ekki að 2009 endi
því þetta er búið að vera alveg
æðislegt ár,“ segir Teitur.
Erfitt að missa Fannar
Stjarnan missti fyrirliða sinn,
Fannar Freyr Helgason, í meiðsli
í byrjun nóvember og tapaði í
framhaldi af því þremur leikj-
um í röð á ellefu daga kafla. „Við
tölum um það þegar mótlætið kom
að við mættum ekki brotna eða
fara inn í einhverja skel eins og
litlir krakkar. Þá þurftu menn að
spýta í lófana og gefa í og strák-
arnir gerðu það heldur betur. Það
var ofboðslega jákvætt að menn
komu svona sterkir til baka,“ segir
Teitur. Stjörnuliðið vann Njarðvík
og KR í næstu leikjum og komst
í framhaldinu á toppinn í fyrsta
sinn. Teitur segir liðið sitt þó ekki
vera farið að hugsa um Íslands-
meistaratitilinn. „Það hafa verið
menn að koma og segja af hverju
bætið þið ekki við manni og þá
bara vinnið þið þetta. Ég vil bara
meina að hlutirnir eiga ekki að
gerast svona hratt. Ef þetta kemur
svona hægt og rólega þá er þetta
frekar komið til að vera heldur en
að kaupa sér einn titil og svo bara
búið,“ segir Teitur.
„Ég hef heyrt menn segja að við
séum bara einum manni frá því að
vera í sjöunda eða áttunda sæti. Við
misstum okkar miðherja í meiðsli
einmitt þegar við spiluðum bikar-
leikinn. Það var erfiður tími, við
duttum út úr bikarnum og töpum
tveimur deildarleikjum í kring-
um meiðslin hans,“ segir Teitur
en bætir við:
„Ég segi á móti, myndi Snæfell
hafa efni á því að missa Hlyn út,
hvað myndi gerast ef Njarðvík
myndi missa Frikka Stefáns eða
Keflavík myndi missa út Sigga
Þorsteins. Ekkert lið hefur efni
á því að missa svona leikmann,“
segir Teitur.
Shouse til fyrirmyndar
Justin Shouse hefur spilað einstak-
lega vel með Stjörnuliðinu, hann er
stigahæsti leikmaður deildarinnar
og jafnframt í fimmta sæti yfir
flestar stoðsendingar. „Það er búið
að mæða mikið á Justin og hann er
besti maður deildarinnar til þessa.
Ég held að allir séu sammála um
það. Hann var oft í vandræðum
með skapið hjá sér í lok leikja.
Missti hausinn og var á yfirsnún-
ingi. Við erum búnir að vinna í því
og núna er hann algjör kóngur í
fjórða leikhluta,“ segir Teitur.
„Þetta er algjör sigurvegari og
svona járnkarl. Við vorum að spila
við Hamar um daginn og hann er
búinn að spila í 36 mínútur þegar
hann grýtir sér í gólfið á eftir
lausum bolta þó að leikurinn hafi
verið tæknilega unninn. Hann er
til fyrirmyndar. Ef þú ert ekki að
berjast við hliðina á honum lítur
þú bara kjánalega út á vellinum,“
segir Teitur.
Fram undan eru spennandi mán-
uðir þar sem úrslitin ráðast. „Þetta
verður alveg magnað eftir áramót
því ef þú missir einhverja einbeit-
ingu í tvær vikur þá verður þú
kominn niður í sjötta sætið áður
en þú veist af. Við getum tapað
fyrir öllum liðum ef við erum
ekki klárir. Það er bara skemmti-
legt held ég og hjálpar okkur að
vera á tánum. Við vitum að það er
mjög erfitt að vinna okkur þegar
við erum tilbúnir.“ ooj@frettabladid.is
VIL HELST EKKI AÐ ÁRIÐ 2009 ENDI
Teitur Örlygsson er búinn að ná frábærum árangri með körfuboltalið Stjörnunnar á þessu ári. Hann gerði liðið að bikarmeisturum í
febrúar, meisturum meistaranna í októberbyrjun og er nú með liðið í efsta sæti Iceland Express-deildarinnar yfir jólin.
ÁKVEÐINN Teitur Örlygsson segir sínum mönnum til á bekknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL