Fréttablaðið - 21.12.2009, Page 78
66 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Það andar ansi köldu milli
annars vegar forsvars-
manna Frostrósatón-
leikanna og Jólagesta
Björgvins hins vegar.
Oft hefur verið
grunnt á því góða
milli þeirra Samúels Kristjáns-
sonar hjá Frostrósum og Ísleifs B.
Þórhallssonar sem hefur annast
skipulagningu Jólagesta Björgvins
enda báðir barist hart um áhorf-
endur á jólatónleika sína. Og nú
virðist hafa soðið upp úr.
Forsagan er sú að eftir Frostrósa-
tónleikana í Laugardagshöll nú fyrir
skemmstu fór á kreik sá orðrómur
að sést hefði til Ísleifs og Björg-
vins Halldórssonar á tónleik-
unum og að annar þeirra hefði
verið með myndbandsupptöku-
vél. Fréttablaðið hafði í kjölfarið
samband við Samúel, sem sagðist
geta staðfest þennan orðróm og
að fjöldi vitna væri til frásagnar.
Hann vildi hins vegar ekki tjá sig
neitt meira um málið og mann-
eskjan sem á að hafa séð til þeirra
fyrst vildi ekki koma fram undir
nafni. Samúel hélt því hins
vegar fram í samtölum við
Fréttablaðið að fjöldi
vitna hefði séð þegar
Ísleifur og Björgvin
létu sig hverfa
þegar upp um þá
komst.
Þegar þetta var hermt upp á Ísleif
B. Þórhallsson sagði tónleika-
haldarinn að þetta væru ekkert
annað en lygar og rógburður sem
fjölskylda Samúels, en hún á og
rekur fyrirtækið sem heldur Frost-
rósir, væri að dreifa út um borg og
bý til að koma höggi á sig og sína
tónleika. Þessi saga væri algjör fjar-
stæða, þeir hefðu keypt miða og
ætlað að horfa á þrjú lög og fara
svo. Þessu vísaði síðan
Samúel algjörlega á
bug. Sem sagt orð gegn
orði og baráttan um
jólaskap landsmanna
á næsta ári verður
væntanlega
ekkert annað en
hatrömm. - fgg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2. glansa, 6. óð, 8. fæðu, 9.
lúsaegg, 11. guð, 12. gnótt, 14. mont,
16. tveir eins, 17. að, 18. drulla, 20.
bókstafur, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT 1. skothvellur, 3. í röð, 4.
asfalt, 5. beita, 7. ruglun, 10. gegnsær,
13. hrygning, 15. litur, 16. rúmá-
breiða, 19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gljá, 6. ær, 8. mat, 9. nit,
11. ra, 12. gnægð, 14. grobb, 16. ll,
17. til, 18. aur, 20. ká, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. pæng, 3. lm, 4. jarðbik,
5. áta, 7. ringlun, 10. tær, 13. got, 15.
blár, 16. lak, 19. rú.
allt hitt dótið.
Sigríður Klingenberg
Ve m
Sm óla.
jólaspá...
Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið hefst
4. Janúar. Skráning hafin í síma 695
8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org
Verð 14.900 kr.
Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið
Meðgöngujóganámskeið
Stakur tími 1.500 kr. • Mánaðarkort 10.900 kr.
• 3 mánaðakort 23.900 kr. • 6 mánaðakort
36.000 kr. • 10 tíma klippikort 10.000 kr.
Meðgöngujóganámskeið 10.500 kr.
Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt
þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport.
Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport)
Sími: 695 8464 og 772 1025
www.jogastudio.org
Ný og persónuleg jógastöð
PERSÓNAN
„Hann hefur alltaf verið svona,
skapgóður, glaður, fjörugur og
uppátækjasamur á skemmti-
legan hátt. Hann var alltaf að
gera kvikmyndir sem krakki.
Maður kom kannski heim og þá
var Örlygsstaðabardagi í gangi
í fullum skrúða. Mér finnst bara
mjög eðlilegt að hann skuli vera
að gera þetta allt saman.“
Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur er
móðir Ara Eldjárns. Hann er meðlimur í
Mið-Íslandi og hefur gefið út gamandisk-
inn Grín skrín.
Hallgrímur Helgason fær frábæra
dóma fyrir bók sína 10 ráð til að
hætta að drepa fólk og byrja að
vaska upp í danska blaðinu Berl-
ingske Tidende, eða fimm stjörn-
ur. Í umfjölluninni er bókin borin
saman við glæpasögu Yrsu Sigurð-
ardóttur, Ösku, þar sem Hallgrím-
ur hefur vinninginn. „Hallgrímur
Helgason leikur sér að glæpa-
sagnaforminu og fær íslensku
glæpasagnadrottninguna Yrsu
Sigurðardóttur til að fölna í sam-
anburðinum,“ skrifaði gagnrýn-
andinn. Áður hafði bók Hallgríms
fengið fjórar stjörnur í Politiken
og fimm stjörnur í Jyllandsposten.
Í sjónvarpi sagði menningarrit-
stjóri Jyllandsposten hana eina af
tveimur bestu bókum haustsins.
Hallgrímur er að vonum ánægð-
ur með þessa góðu dóma. „Þetta
gladdi mann, sérstaklega af því
að hún fékk misjafnar viðtök-
ur hérna heima. Maður var far-
inn að hafa áhyggjur af þessari
bók,“ segir hann kátur.
Hann hefur áður
fengið góða dóma í
Danmörku, síðast
fyrir bókina Rok-
land. „Danmörk
hefur reynst mér
bara mjög vel á
undanförnum
árum, Danmörk
og Þýskaland
eru sterk-
ustu vígin
erlendis.“
Hallgrímur vill ekki meina að
hann sé að ryðja íslenskum glæpa-
sagnahöfundum úr vegi, þrátt
fyrir samanburðinn hjá Berlings-
ke Tidende við Yrsu. „Það var ekki
hugsunin. Ég held ég sé frekar
undir áhrifum af þessari krimma-
bylgju. Ég hefði aldrei skrifað
skáldsögu með morðingja í aðal-
hlutverki nema út af þessari
bylgju.“ - fb
Danir bera saman Yrsu og Hallgrím
HALLGRÍMUR HELGASON
Hallgrímur er mjög ánægður
með viðtökurnar í Danmörku
við bók sinni en hún er í
Berlingske Tidende sögð fá
verk Yrsu Sigurðardóttur til að
fölna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta eru fimmaurabrandarar fyrir lengra
komna,“ segir Pétur Örn Guðmundsson – Pétur
„Jesús“ í Buffinu – um boli sem hann hefur hafið
framleiðslu á. Hann kallar fyrirtækið Kríp í dós.
„Maður hefur verið að skrifa niður alls konar hug-
myndir í gegnum tíðina en ég hef aldrei gert neitt
í því. Núna ákvað ég að kýla loksins á þetta,“ segir
hann. Pétur hefur búið til fimm tegundir af bolum
til að byrja með. „Þetta eru meðal annars bolirnir
Ég kemst í hátíðarsaab og Afi María. Einn er stílað-
ur upp á krakkana og er með mynd af krókódíl með
dekkjum og það stendur „Krókóbíll“ á honum. Ein
týpan enn er af Jesú að tala voða mikið fyrir fram-
an eitthvert fólk og undir stendur „Kristsmas“.“
Pétur er ekkert á leiðinni að hætta í söngnum,
jafnvel þó að bolasalan gangi vel – „Þetta er nú bara
smá aukabúgrein. Mig langar þó alveg til að gera
miklu meira af þessu enda er til fullt af misgóðum
og missúrum hugmyndum. Myndirnar hef ég ýmist
látið teikna fyrir mig eða teiknað sjálfur. Munurinn
sést vel þar sem ég teikna sjálfur eins og tveggja
ára sofandi barn.“
Pétur segir áhugasama geta pantað boli á netinu
– Facebook-síðan heitir Kríp í dós – og bolirnir eru
einnig til sölu í Bónusvídeósjoppunni í Hraunbæ
í Árbæ. „Systir mín er með þá sjoppu, sko,“ segir
Pétur. - drg
Buffari selur fimmaurabrandara
BARA AUKABÚGREIN Pétur Örn hress í kríp í dós-bol en á
þeim eru fimmaurabrandarar sem Pétur hefur skrifað niður í
gegnum tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ragnar Bragason, leikstjóri kvik-
myndarinnar Bjarnfreðarson,
sendi ráðamönnum þjóðarinnar
kaldar kveðjur þegar hann flutti
stutta tölu á undan frumsýn-
ingu myndarinnar í Háskólabíói.
Fyrirhugaður niðurskurður ríki-
stjórnar Samfylkingar og Vinstri
grænna á Kvikmyndamiðstöð og
þar af leiðandi kvikmyndasjóði
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
hefur mætt harðri andspyrnu
kvikmyndagerðarmanna, sem
telja að með honum verði atvinnu-
greininni hreinlega slátrað.
Menningamálaráðherrann Katr-
ín Jakobsdóttir hefur lýst því yfir
að hún muni reyna að fá þessum
niðurskurði breytt.
Ragnar, sem hingað til hefur
verið þekktur fyrir að liggja
ekki á skoðunum sínum, dró ekk-
ert undan í ræðunni þótt í saln-
um hefðu setið forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherrann Steingrímur J.
Sigfússon og utanríkisráðherr-
ann Össur Skarphéðinsson. Katr-
ín Jakobsdóttir, menningar- og
menntamálaráðherra, var hins
vegar ekki meðal gesta og Katr-
ín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
forfallaðist á síðustu stundu.
Ragnar gaf Fréttablaðinu góð-
fúslegt leyfi sitt til að birta brot
úr ræðunni, sem þótti ansi mögn-
uð að mati viðstaddra: „Leiknar
kvikmyndir og sjónvarpsefni
eru þjóðleikhús þjóðarinnar allr-
ar, nær til fólks í Reykjavík, Sel-
fossi og á Súðavík. Að meðaltali
nýtur hálf þjóðin hvers leikins
sjónvarpsþáttar eða kvikmynd-
ar sem framleidd er. En fyrir
mig og marga hérna inni fellur
skuggi á þennan dag vegna þeirra
fyrirhuguðu hörmunga sem
yfirvofandi eru. Í uppsiglingu
er íslenskur kvikmyndavetur.
Stjórnvöld hafa ákveðið að ráð-
ast sérstaklega á kvikmynda-
gerð í landinu og slátra henni á
altari niðurskurðar meðan aðrar
listgreinar fá að vera að stærstu
leyti óáreittar,“ sagði Ragnar í
ræðu sinni og vísaði meðal ann-
ars til Írlands, þar sem kvik-
myndagerð hefði fengið að standa
nánast óáreitt þrátt fyrir djúpa
efnahagskreppu.
Ragnar kvaddi með þeim orðum
að niðurskurðurinn væri óskilj-
anlegur gjörningur sem byggð-
ur væri á vanþekkingu. „Hvern-
ig er hægt að komast að því að
skera niður í grein sem margfald-
ar hverja krónu sem ríkið legg-
ur í hana? Ég ætla að vona að þið
njótið þessarar sýningar í kvöld,
á þessari kvikmynd sem við sem
gerðum erum afskaplega stolt af.
Hún gæti orðið eitt síðasta blómið
í dalnum í langan tíma.“
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: Í UPPSIGLINGU ER ÍSLENSKUR KVIKMYNDAVETUR
Ráðherrar fengu kaldar
kveðjur á frumsýningu
HERÓP Ragnar ásamt þeim Charlotte Böving, Jóni Gnarr og Benedikt Erlingssyni.
Ragnar sendi ráðamönnum þjóðarinnar kaldar kveðjur á frumsýningu þjóðarinnar og
sagði þá vera að slátra kvikmyndagerð á altari niðurskurðar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Hermann Hreiðarsson,
leikmaður Portsmouth.
2 Kammersveit Reykjavíkur.
3 Arbeit macht frei eða vinnan
gerir yður frjáls.