Vikan - 14.12.1961, Side 25
Órói
Óróa má búa til af ýmsum gerö-
um og eru hér sýndar tvær þeirra,
hjörlu og jólatré. Það er sama fest-
ingin á þeim báðum, en það eru
tágaslengur, þrjár með hjörtunum
og tvær, sem jólatrén hanga á.
Þetta er fest á stengurnar á mismun-
andi liátt. Hjörtun eru úr rauðum
glanspappír og eru höfð misstór,
en sum þeirra eru búin úr málm-
þræði, sem er beygður með töng og
endarnir látnir mætast að ofan og
bundnir saman með tvinna. Hafið
þræðina nógu langa, svo þægilegt
sé að vinda þá um stengurnar og
limið þá fasta með glærum lim-
pappír. Hjörtun í miðjunni eru
stungin hvort inn i annað. Það er
skorið eftir punktalínunni upp i
annað hjartað og niður í hitt. Bind-
ið rauða slaufu um samskeyti tág-
anna og hengið þetta upp. Jólatrén
eru búin þannig til, að á grænan
pappír eru gerðir fjórir hringir með
8 cm radíus og er hverjum þeirra
skipt i þrennt. Þeir eru klipptir út
og búin til smá kramarhús, sem
limd eru saman. Á langan grófan
þráð er bundinn stór hnútur á end-
ann (það má líka þræða í gegnum
perlu) og tréð er þrætt á og annar
hnútur bundinn fyrir ofan tréð áður
en næsta tré er þrætt á. Fallegt er
að líma litla stjörnu fyrir ofan hvert
tré. ★
Hér sjáið þið óvenju skemmtilega skreytingu á
jólaborðið.
Litlu dúkarnir í jólatrésformi eru saumaðir eftir
meðfylgjandi sniði, úr frekar þykku grænu bómull-
arefni og bryddir með hvítum skáböndum. Teiknið
sniðið á tvöfallt bómullarefnið og ath. að tvöfalda
brúnin komi við miðju á sniðinu og liggi þráðrétt
Sniðið saumfarslaust.
Takið nú hvíta skábandið, brjótið það tvöfalt,
þannig að neðri helmingur sé örlítið breiðari en
sá efri.
Brjótið þannig þá lengd sem mátuleg er kring
um dúkinn.
Bryddið nú dúkinn með skábandinu, byrjið að
neðan, eða þar sem lítið ber á samskeytum.
Hafið skábandið þannig að breiðari brúnin
komi alveg inn í brún skábandsins, þræðið fast og
saumið með hvitum tvinna tæpt i brún í saumavél.
Gangið vel frá endum og samskeytum. Strauið
frá röngu. Saumið fleiri dúka eins.
Jólakarlinn er búinn út á keilulaga pappahylki
sem losnað hefur undan vefgarni, sé það ekki fyrir
hendi er auðvelt að búa það til úr pappa, sem
þægilegt er að sveigja. Ath. að samskeytin að aftan
séu vel föst. Málið hylkið með bláum eða rauðum
þekjulit.
Skreytið siðan pappahylkið eftir myndinni.
Teiknið andlit með sterkum litum og límið
bómull eftir smekk.
Festið skinn — eða „plusræmu fyrir húfuskraut“.
Auðvelt er að búa til þessa saumakörfu
og efnið er tekið úr tuskupokanum. Hún
má vera einlit eða mislit eftir vild. Farið
er eftir teikningunni og er hver ferhyrn-
ingur gerður 5x5 cm. Eftir mótinu er svo
klippt, bæði efnið og pappi. Efnið er haft
tvöfalt og látið það vera einum cm. stærra,
eða saumfar. Saumað er saman frá I—S
á myndinni, snúið við og pappanum stung-
ið inn, og síðan saumaðar saman hinar
hliðarnar. Hjörtun eru klippt út í filt eftir
mynztrinu og saumuð innan á hliðarnar
og látin vera opin að ofan svo þau mynda
vasa. Hliðarstykkin eru svo saumuð sam-
an á þremur hliðum, snúið við og papp-
anum stungið inn og fjórði saumurinn
saumaður saman. Lykkja er sett á hvert
stykki og hnappur á stykkið á móti til að
hneppa henni á. Að lokum eru hliðarnar
saumaðar við botninn í höndunum, hnöpp-
unum hneppt og jólagjöfin er tilbúin.
VIKAN 25