Vikan - 14.12.1961, Blaðsíða 31
A. K. Þjóðviljinn.
Ari Kárason hefur starfað sem fastur
ljósmyndari við Þjóðviljann í rúmt ár,
en var áður verzlunarmaður. Hann hef-
ur stundað ljósmyndun í mörg ár, sem
áhugamaður. Notar aðallega 6x6 Ref-
lex-vél.
Sv. Þ. Morgunblaðið.
Sveinn Þormóðsson er nú fastur starfsmaður hjá
Morgunblaðinu, og tekur einkum íþróttamyndir fyrir
blaðið.
Það eru ekki nema tæp þrjú ár síðan hann fór að
taka myndir, en það varð með þeim hætti að það
vantaði ljósmyndara til að mynda keppni í handbolta
að Hálogalandi. Sveinn var þar dyravörður, og hafði
nýlega eignazt myndavél. Hann tók að sér að reyna
við myndatökuna. Svo vel tókst honum, að nokkur dag-
blöðin keyptu þegar af honum myndir. Hann hefur
síðan haldið áfram uppteknum hætti, og hefur aðalega
starfað fyrir Morgunblaðið, og núna síðast svo til
eingöngu.
Eins og kunnugt er, brenndist Sveinn illa á þjóðhá-
tíðinni í Vestmannaeyjum í sumar, er hann var þar
staddur til að taka myndir.
Sveinn notar aðallega Retina Reflex (35 mm.) og
Rolleiflex.
G. E. Tíminn.
Guðjón Einarsson er prentari að
iðn, og vann í prentsmiðjunni Eddu,
en hafði mikinn áhuga fyrir ljós-
myndun og tók mikið af myndum.
Ritstjórn Tímans fékk hann til að
taka fyrir sig iþróttamyndir, og
var það hans sérgrein i 5 ár, er
hann tók allar slíkar myndir fyrir
blaðið. Frá því um s.l. áramót hefir
Guðjón verið fastráðin sem blaða-
ljósmyndari við Tímann.
<31. M. VÍSIR.
Ingimundur Magnússon fékk áhuga
fyrir ljósmyndatöku 18 ára gamall, og
smitaðist þá af tvíburabróður sinum,
Kristjáni. Ingimundur hefur tekið mik-
ið af íþróttamyndum, sérstaklega af
knattspyrnu, og var mikið hjá Tímanum
um skeið i sambandi við slíkar myndir.
Nú er hann fastráðinn hjá Visi sem
fréttaljósmyndari. Hann er annars út-
lærður húsasmiður og hefur unnið við
það starf þar til nú. Ingimundur notar
mest Rolleiflex.
K. M.>
Kristján Magnússon var hjá Tíman-
um um tima en er nú „free lance“ eins
og þeir eru nefndir, sem eru ekki fast-
ráðnir hjá neinu blaði, en hafa samt
myndatökur að aðalstarfi og selja
hvaða blaði sem er. Kristján er hús-
gagnabólstrari, en féklc snemma áhuga
fyrir ljósmyndun. Hann er einnig snill-
ingspíanóleikari og lék í mörg ár með
K.IÍ.-sextettinum. Notar aðallega 35
m.m. ljósmyndavélar.
VIKAN 31