Vikan


Vikan - 14.12.1961, Síða 43

Vikan - 14.12.1961, Síða 43
hrópaSi Óli glaður og reis með á- kafa upp af koddanum. — En þú hefur gleymt að opna allar litlu dyrnar. — Já, ég hef gleymt því, vilt þú nú ekki gera það fyrir mig. Byrj- aðu númer eitt, svo tvö og við skul- um vita hvort jólin eru ekki á spjaldinu minu. Svona já, gott, 20 — 22 — 23 — — Og 24, jólin eru hérna, hróp- aði Óli, — sjáðu. í þessu var barið harkalega á hurðina. — Nú, nú, sagði gamli maður- inn, — hver er nú á feröinni? Hann fór fram og kom strax aftur og maður með honum. Óli þekkti þar lögregluþjóninn, sem hann talaði við niðri í bæ. — Já, þarna ertu þá litli kútur, sagði hann þegar hann sá Óia, ■— það var gott. Svo sneri hann sér að gamla manninum, og sagði þótta- lega: Það er margbúið að auglýsa eft- ir honum í útvarpinu, hefurðu ekki heyrt það? — O nei, ég hef ekki opnað út- varpið, messan byrjar ekki fyrr en klukkan sex. — Jæja, sagði lögregluþjónninn. — Það er bezt ég fari með dreng- inn heim til foreldranna, ég er á bíl. — Ætli það sé ekki bezt að Óli litli verði hér dálítið lengur, sagði gamli maðurinn. — Það er rétt að láta lækni lita á hann áður en hann verður hreyfður, því þegar hann kom hingað var hann helkaldur og dauðþreyttur, það er mesta mildi ef hann sleppur við lungnabólgu. Mér þætti vænt um að þú létir VILJA EKKI ALLIR GERA BÖRNUM SÍNUM ÞAÐ BEZTA? AUÐVITAÐ OG ÞVÍ NOTA ALLIR BARNATALKIJMIÐ FRÁ PAGLIERI. heildsölubirgðir: Snyrtivörur SIMI 17177. foreldrana vita um þettat, ég væri sjálfur búinn að þvi ef ég hefði þorað að skilja hann einan eftir. — Gott og vel, sagði lögreglu- þjónninn, og strunsaði út. Og svo rétt á eftir komu þau mamma og pabbi og síðan læknir- inn. Allir voru svo glaðir að sjá Óla, því allir héldu að Óli væri týndur. Læknirinn skoðaði hann í krók og kring, mældi hitann og sagði svo: — Það er ekkert að stráknum, en það held ég að sé mest að þakka þessum heiðursmanni. Hann geröi nákvæmlega það sem gera þurfti, annars er ekki að vita hvernig far- ið hefði. Mamma tók i höndina á Bjarna og pabbi lagði höndina á öxl hans og sagöi: — Bjarni, ég á bara engin orð, þú hefur bjargað drengnum min- um, því skal ég aldrei gleyma. Bjarni sagði ekkert, leit bara til Óla og brosti. Svo fóru allir heim í stóra biln- um hans pabba, líka Bjarni gamli í kofanum. Óli hafði sannarlega fund- ið jólin. Miólkurpósur fer ú í heim. Framhald af bls. 27. fram á það, að lionum yrðu greidd nærkonustörfin með þvi að ég yrði látinn bera nafn hans, en það vildu foreldrar mínir ekki. Ég var því skírður Eysteinn Austmann og var síöara nafnið til þess að minna mig á það, að ég hhefði fæðst út af Aust- fjörðum. Ég fæddist fyrir tímann. Móðir mín hafði orðið mikið sjó- veik og það flýtti fyrir fæðingunni. Og svo fór, að hún veiktist af liða- gigt upp úr þessu og lá í tvö ár. Ég óx svo úr grasi í Reykjavík og fór á tilsettum tíma í barnaskóla. Ég fór í æfingadeild kenaraskólans og þar var Jónas Jónsson frá Hriflu kennari. Hann var góður kennari, áreiðanlega sá bezti, sem ég hef kynnzt. Þarna var ég í fjóra vetur. Á sumrum var ég í sveit, suður i Garðahverfi, hjá móðursystur minni, og hafð imeðal annars þann starfa að flytja mjólk til Reykjavikur. Með mér var í þessum sendiferðum Ragnar Gnðlaugsson, sem nú rekur Hressingarskálann og Hótel Val- höll og fleiri veitingastaði að ég held. Við ókum mjólkinni i hest- vögnum og gekk þetta sæmilega hjá okkur. Við áttum að vera fljótir í ferðum og þó varð allt að standa nákvæmlega heima. Ég held að okk- ur hafi tekizt hvort tveggja vel. Þeg- ar farið var að vinna i hafnargerð- inni áttum við í dálitlum erfiðleik- um. Þá var lögð járnbrautarlína frá Öskjuhlíð og niður i Alliancekrók. Við komumst fljótt að þvi, að hest- arnir voru hræddir við hvæsið í eim- reiðinni og skröltið i grjótvögnun- um, sem hún hafði í eftirdragi. Það kom fyrir, að þeir fældust tvisvar, fyrst ef svo hittist á að lestin var að koma eða leggja af stað af Öskjuhlíð þegar við komum á leið í bæinn, og einnig vestur við Ána- naust ef við vorum staddir þar um leið og lestin fór þar um. En brátt vöndust hestarnir við þetta og allt fór vel. Eftir að ég hafði lokið barnaskóla- námi og hafði náð tilskyldum aldri, var ég fermdur, 30. apríl árið 1910, og var því 14 ára. Það var séra Ólafur frikirkjuprestur, sem það gerði. Engar sérstakar minningar á ég frá þessum tímamótum í lífi ungl- inganna, enda var um flest annað hugsað en hátiðir. Þá brann maður í skinninu eftir því, að komast i vinnu og mest langaði mig á sjóinn. Mig dreymdi um það að komast í siglingar og bcið þess með óþreyju að ég yrði svo gamall að ég gæti stokkið um borð í einlivern dallinn, sem hingað kæmi og ráðið mig í siglingar — og þá ætlaði ég að sigla um öll heimsins liöf og koma ekki aftur heim fyrr en ég væri búinn að sjá öll lönd jarðar. Um þetta leyti dreymdi aila drengi um það, að komast á liin nýju Eim- skipafélagsskip. Um 1925 dreymdi alla drengi um það að verða bif- reiðastjórar, og undanfarið hefur þá alla dreymt um að verða flugmenn. En okkur drengina frá 191G dreymdi um Eimskipafélagsskipin. Ofurlitill vonarneisti leyndist í brjósti mér um það, að ef til vill hefði ég meiri möguleika á þvi að komast á Gull- foss, en aðrir drengir. Svo var mál með vexti, að faðir minn hafði verið formaður hjá Pétri i Hrólfsskála, föður Sigurðar, skipstjóra á Gull- fossi. Ég stundi því upp við föður minn, að mig langaði að fara á skipið og hann taldi það ekki frá- VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.