Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 2
h/ólbnrðAr
Verið öruggur í hröðum ákstii
sparið g hverjum kílómetra.
1 borg og bæ
sanna Firestone
hjólbarðar ágæti
sitt með meiri
endingu og auknu
öryggi. Það borgar
sig ekki að treysta á
slæma hjólbarða þegar
ekið er á miklum hraða
á slæmum vegi. Góð end-
ing hjólbarðanna er þar
að auki mjög mikilvæg, og
staðreyndin er sú að Firé-
stone hjólbarðar eru ódýrari
en ýmsar lélegri gerðir.
VERIÐ TIL FYRIRMYNDAR f AKSTRI, hugsið
um farþega og fótgangandi. Það er yðar,
forréttindi að vera öruggur í umferðinni.
Tir*$tone merkið tryggir gæðin.
Lougovegi 178 Simi 38000
Foriíðan
Þið sjáið, að við höfum haft mikið
við og gert eina stórfenglega upp-
stillingu í tilefni af áramótunum.
Þegar öllu er á botninn hvolft, þá
eru lika áramótin skemmtilegasta há-
tíð ársins, enda öllu á botninn hvolft
og nýjar heitstrengingar gefnar. Þá
stíga menn í stokk og strengja þess
heit að hætta að reykja, að hætta að
drekka, að hætta að borða of mikið,
að hætta að sofa yfir sig, en fá sér
svo bæði „smók“ og afréttara, Þegar
þeir vakna um hádegið, fyrir riku-
legan hádegisverð á nýársdag. Menn
eru nú einu sinni mannlegir og aldrei
mannlegri og breizkari en um ára- t
mótin.
Þessi bráðfallega stúlka á forsíðu-
myndinni heitir Guðbjörg Björnsdótt-
ir. Hún er fædd og uppalin í Reykja- \
vík og hefur tekið gagnfræðapróf frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar ein-
hverntíma í náinni fortíð. Hún hefur
líka verið í Tízkuskólanum og tók
þátt í tízkusýningum á Reykjavíkur-
sýningunni sællar minningar. Guð-
björg afneitar því með öllu, að hún
ætli að ganga einhverjar tízkubrautir
í framtíðinni. Hún segist vera afskap-
lega stillt og prúð og helzt hafa áhuga
fyrir heimilishaldi og prjóna- og
saumaskap. Hún segist helzt kjósa
sér að verða góð húsmóðir og halda
mikið kyrru fyrir heima. Guðbjörg f
er trúlofuð og sá ljónheppni kærasti
heitir Pétur Valbergsson. Annars er
Guðbjörg af ágætu, vestfirzku kyni;
móðir hennar, Oddný Ólafsdóttir, er
frá Látrum i Aðalvík og faðir henn-
ar, Björn Jóhannesson, sjómaður, er
frá Bolungarvík. ,
Til þess að búningur ungfrúarinn-
ar yrði sem ákjósanlegastur miðað
við þennan tíma sólarhrings sem
gamla klukkan sýnir, miðað við ára-
mót, kampavin og forsíðuna á Vik-
unni, þá þótti eðlilegast að hún i-
klæddist náttfötum með einhverju
lúxussniði og við völdum bleik
Carabella-náttföt af sömu gerð og
Ungfrú Yndisfríð úthlutaöi heppnum
lesendum um skeið. Þau eru með
þessum yndælis blúndum sem fara
vel við flugelda og klingjandi glös á
gamlárskvöld og Guðbjörg Björns-
dóttir segir skál — skál fyrir nýja
árinu. Við tökum undir það með
henni og skálum við ykkur, lesendur
Vikunnar með þökk fyrir einstaklega
gott samstarf á þessu ári, sem nú er
að syngja sitt síðasta vers.
2 VIKAN
ÞINGEYINGAR SVARA
FYRIR SIG . . .
Kæra Vika. .
Mig langar til að skrifa þér út af
þessari asnalegu grein Helga Sæm.
Þið ættuð að verja þessu plássi, sem
þið hafið undir þennan asna og
hans asnalegu greinar, sem enginn
heilvita maður les (LETURBREYT-
ING PÓSTSINSIl) i annað skemmti-
legra.
Sárt brann mér, er hann fór að
hreyta ónotum í Þingeyinga og tala
nm ryk á bókasafni Húsavikur og
Þingeyinga. Ég vona, að ég sé ekki
eini Þingeyingurinn, sem tekur upp
hanzkann fyrir sinn landshluta. En
eitt get ég sagt þessum vesaling, að
til eru fleiri fyndnir Þingeyingar en
Egill okkar Jónasson. Og að hann
gæti verið Sunnlendingur fyrir sína
kímni er vitleysa, því hvergi finnst
fyndinn Sunnlendingur á íslandi.
I am sorry. — Og svo verjið þið
plássi undir þetta fifl. í sannleika
sagt væri ég í ykkar sporum löngu
búinn að dangla hraustlega i aftur-
endann á greyinu. En í orðsins
fyllstu merkingu — maðurinn er
ekki normal. Jón H.
P. s. Hvernig er skriftin? Þakka
birtinguna.
Ég þori ekkert að segja um
kímnigáfu Þingeyinga, en ef
dæma má af þessu bréfi, vantar
suma þeirra ekki stóryrðin. —
Var einhver að minnast á tóma
tunnu? — Skriftin er þingeysk,
hvað sem það nú þýðir.
Reykjavík, mánuði fyrir jól, 1961.
Greinin hjá Helga geð mitt kætti,
í gríni er maðurinn fjarska slyngur,
en fram í ættir þó ætla mætti,
að ef til vill væri hann Þingeyingur.
Með beztu kveðjum.
Fullkominn Þingeyingur.
(eins og þeir eru allir).
ALDURSMUNUR .
Kæri Póstur.
Getur þú gefið alvarlegt svar við
alvarlegri spurningu? Ég er 19 ára
gömul og er ástfangin af manni, sein
er 35 ára. Hann er ungur í anda,
og mér geðjast mjög vel að honum.
Vinstúlkur mínar segja, að þessi
aldursmunur geri ekkert til. En for-
eldrar mínir, sem vilja mér allt gott,
telja þetta alveg fráleitt, það muni
koma 1 ljós síðar. Ég met foreldra
mína mikils, þau hafa ætíð verið
mér góðir ráðgjafar, og þess vegna
er ég nú í öngum mínum. Mér þykir
mjög vænt um manninn, og ég veit,
að hann ber sama hug til mín, en
ég vil þó ekki stíga neitt alvarlegt
víxlspor.
Hvað finnst þér, Póstur góður —
eða „sérfræðingum“ þinum. Er ó-
skynsamlegt að giftast, þegar um
svona mikinn aldursmun er að
ræða? Hvað segir reynslan? Ég
þekki engan, sem ég gæti spurt, og
þvi leita ég nú til þín ... og þakka
þér fyrirfram fyrir skilmerkilegt
svar.
Þín Anna María.
Ef þið elskizt af heilum hug,
finnst mér sannarlega ekkert að
því þótt þið gangið í það heilaga.
Og f rauninni er þessi aldurs-
munur ekki ýkjamikill — þess
eru mörg dæmi, að hjónabönd
hafa orðið farsæl, þótt aldurs-
munurinn hafi verið mun meiri.
Hugsaðu þig samt vel um, áður
en þú tekur nokkra ákvörðun.
Þú verður 34 ára, þegar hann
heldur upp á fimmtugsafmælið
sitt. Með þessu er ég engan veg-
inn að draga úr þér kjarkinn —
en við verðum að taka allt til
greina. Af bréfi þínu má ráða, að
þú ert sjálf enn í miklum vafa.
Á meðan þú ert þannig þenkjandi
væri það sannarlega „alvarlegt
víxlspor“ að giftast þessum
manni. Þú skalt kynnast honum
betur, áður en þú tekur endan-
lega ákvörðun.
Svar til Dóru Biarkar, sem ekki
kyssti, þegar hún var beðin um
það en sér nú eftir öllu saman
— en nú er kossinn ekki lengur
í boði.
í guðanna bænum, farðu nú
ekki að taka þetta of alvarlega.
Strákar á þessum aldri taka feg-
inshendi öllum þeim kossum, sem
þeim bjóðast. Ekki þar fyrir —
strákurinn gæti verið pínulítið
„skotinn“ í þér, en ekki skaltu
gera þér neinar tálvonir um þá
framtíð, sem þið eigið í vændum.
Viltu ekki reyna að kynnast pilt-
inum svolítið betur. Fólk kynn-
ist engan veginn nógu vel á
„rúntinum“.
ÖFUND....
Elsku Vika mín.
Ég þakka þér allt á liðnum árum,
og nú langar mig til að leita ráða
hjá þér .við vandamáli, sem ég kann
ekki vel við.
Þannig er mól með vexti, að bezta
vinkona mín á frekar fátæka for-
eldra, en minir eru vel efnaðir, og
get ég veitt mér það, sem mig lang-
ar i. Nú síðustu vikurnar hef ég
tekið eftir, að hún er farin að öf-
unda mig, og það ber svo mikið
á þessu, að fólk er farið að taka
eftir því. Hún reynir að níða mig
á allan hátt og er alltaf að tala um
hve heimsk ég sé, en hingað til hef
ég tekið alveg ágætis próf, ef það er
það, sem hún meinar.
Elsku Vika min, nú leita ég til
þín og vona, að þú birtir svarið sem
fyrst.
Virðingarfyllst.
Siddý.
P.s. Hvernig er skriftin?
„Bezta vinkona þín“ segirðu. Það
er leiðinlegt til þess að vita, að
þú eigir þá beztu vinkonu, sem
níðir þig og smáir. Þetta gæti
liðið hjá, fyrr en varir, en ef hún
er eins góð vinkona þín og þú vilt
vera láta, ættir þú skilyrðislaust
að ræða þetta við hana í einlægni.
Ekki getur þú „gert að því“ þótt
forsjónin hafi verið þér hliðholl
— og öfund vinkonu þinnar er
í hæsta máta barnaleg og óeðli-
leg. Ef þetta líður ekki hjá, vona
ég sannarlega, að þú megir eign-
ast aðra „beztu vinkonu“, því að
forsendan fyrir langvinnri vin-
Útgcfnndi: VIKAN H.F.
RUatjóri:
Gf*li Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingastjóri:
Jóhannes Jörundnson.
Framkvæmdastjóri:
Hilmar A. Kristjánsson.
ítitstjðrn og auglýslngar: Skipholtt
33. Slmar: 35320, 35321, 35322. Póst- i
hólf 149. AfgrelBsla og dreifing: |
BlaBadrelting, Miklubraut 15, aiml ■
38720. Drelílngaratjóri: Óskar Karlí
. son. VerB I lausasðlu kr. 15. Askrift-
arverö, cr 200 kr. ArsþriBjungsle
greiðlst íyrirfram. Prentun;
h.f. Myndamót: Raígraf h.f
/ næsta blaði verður m. a.:
¥ Hvað bíður okkar árið 1962? Spádómar um heimsmálin á
næsta ári eftir Þór Baldurs.
¥ Haust, smásaga eftir Guðmund Halldórsson.
¥ Ramses II. Einn merkasti faraó Egypta, sem gerði sig ódauð-
legan með risastórum höggmyndum við Nílarfljót.
¥ Harmleikur á heljarslóð, — hrakningasaga fyrsta leiðangurs-
ins, sem farinn hefur verið til Norðurpólsins. Leiðangurs-
menn lögðu af stað frá San Francisco 1879 á skipinu Jeanettu,
en áður en varði var skipið sokkið og raunir þeirra hófust,
er enduðu með dauða margra þeirra.
V Clark Gable — ný framhaldssaga um líf kvikmyndaleikarans.
¥ Skipbrot. Smásaga eftir Robert Raymond.
V Framhaldssagan: í leit að lífsförunaut. — Sögulok.
# Má selja kjöt og kjaftastóla á kvöldin? Grein og viðtöl við
ýmsa menn um lokunartíma sölubúða og tilvonandi breyting-
ar á honum.
áttu er fyrst og fremst, að hún
sé gagnkvæm.
FERÐALANGAR . . .
AUGLYSINGALESTUR í RÍKIS-
ÚTVARPINU?
Bezta_svarið (ekki lengra en
svo sem ein vélrituð síða) verður
verðlaunuð með 100 krónum.
Sæll, Póstur minn!
Þar sem þú hefur reynzt mörgum
sönn hjálparhella, snúum við okk-
ur til þín I von um aðstoð.
Við erum hér, þrjár yngismeyjar,
sem langar til að kanna ókunn
lönd, og þar sem efnahagurinn er
heldur þröngur, sýnist okkur helzta
úrræðið að fá okkur vinnu erlendis.
Við vildum helzt fara til Noregs eða
Sviþjóðar og viljum vinna næstum
hvað sem er. — Nú viljum við biðja
þig um að spgja okkur, hvert bezt
er að snúa sér í leit að upplýsingum
um vinnu. Við yrðum þér eilíflega
þakklátar, ef þú gætir hjálpað okk-
ur. Eins þætti okkur vænt um að fá
svar fljótlega.
Með fyrirfram þökk.
Þrjár i ferðahug.
Það vill oft verða nokkrum erf-
iðleikum bundið fyrir landann
að fá vinnu erlendis — en ekki
myndi saka að tala við einhvern
í sendiráði þessarra landa hér.
Þar munuð þið fá allar nánari
upplýsingar.
SPURNING VIKUNNAR
Þar sem bréfritarar hafa undan-
farið látið sér svo annt um Ríkis-
útvarpið okkar, væri ekki fráleitt
að bera að þessu sinni upp spurn-
ingu, sem fram kom i hréfi í síðasta
Pósti: Á AÐ LEGGJA NIÐUR