Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 4
Nýr kraftmeiri
VOLVO
1962
PV 544 Favorit kr. 159.500,00
Amazon 75 hp. — 195.000,00
Amazon 90 hp. — 195.000 00
Innifalið í verðinu er:
Ný gerð af vél B18 75 og 90 ha.
12 volta rafkerfi
Asymmenetrisk ljós
Öflugri hemlar
Diskahemlar á AMAZON SPORT
Öflugri tengsli
Stærri miðstöð
Nýtt litaúrval
VIKAM
0$ tæknin
£íðnsto
sekúodan
Þótt bílaárekstrar verði venju-
lega með svo snöggum hætti,
að ekkí veitist ráðrúm til að
átta sig á neinu, er á stundum
um andartaks frest að ræða.
Hvernig er þá hyggilegast að
verja síðustu sekúndunni svo
maður slasist sem minnst?
Áreksturinn er óhjákvæmilegur.
Sökum hálkunnar á veginum er ekki
nokkur leið að víkja bílnum til eins
og með þarf, og eftir tvær til þrjár
sekúndur — örskamman frest, sem
oftast fer til einskis fyrir fum og
ótta — hafa biiarnir skoliið saman.
Ekki þannig. — Það er þýðingar-
laust með öllu, að styðja beinum
örmum við mælaborðið, þvf að arm-
ana brestur kraft við höggið.
Hvernig fáum við bezt hagnýtt
okkur þennan skamma frest?
— Spur-ningin er óneitanlega at-
hyglisverð, og að þvi er ég bezt
veit, hefur svarið við henni aldrei
verið sérfræðilega athugað, segir
einn af kunnustu „bílslysa-sérfræð-
ingum“ Svía, dr. C. G. Backström,
læknir við ríkissjúkrahúsið i
Gautaborg. Hann hefur um margra
ára skeið fengist við rannsókn á
þeim bílslysum, sem orðið hafa í
Svlþjóð, orsðkum þeirra, eðli og af-
leiðingum, og samið merkilegar
skýrslur og lagt fram athyglisverðar
tillögur, byggðar á grundvelli þeirra
rannsókna.
Að sjálfsögðu er slíkri spurningu
ákaflega torsvarað, og oft ber
slysin svo brátt að, að þeir, sem i
bílnum sitja, eiga ekki neinna kosta
völ. Hinsvegar er líka allöft um
skamman frest að ræða, og verður
að teljast líklegt, að þjálfa mætti
svo þau viðbrögð, sem þá mundu
helzt draga úr hættunni, að mönnum
yrðu þau ósjálfráð ef svo bæri
undir.
í fljótu bragði virðist sjálfsagð-
ast, að farþegar í aftursæti gripi
höndum um brún framsætisbaksins,
sér til viðnáms. Sé það tak rétt
tekið, getur það lílca oft komið að
haldi, en þó því aðeins að fram-
sætið sé með „föstu“ baki. Sé um
bak á hjörum að ræða, gagnar það
hinsvegar ekki hið minnsta; ekki
heldur þótt hjarirnar séu með ör-
yggislæsingu, því að hún bilar yfir-
leitt ef um harðan árekstur er að
ræða. Það kemur meira að segja
oft fyrir, að áreksturinn sé. svo
harður, að framsætin rifni upp úr
gólfinu.
Öruggasta úrræðið fyrir farþeg-
Heldur þannig. — Leggizt eins fast
að gólfinu og unnt er. Með þjálfun
má gera það viðbragð ósjálfrátt.
ana i aftursætinu er því í því fólgið,
að reyna að komast eins langt niður
á milli sætanna og þeim er frekast
unnt. Venjulegast verður bíllinn
fyrir því minni skemmdum, sem
nær dregur grindinni eða gólfinu,
og rannsókn á bilslysum hefur leitt
það í ljós, að farþegar, sem annað-
hvort af ráðnum hug fieygðu sér
niður á milli sætanna, eða köstuð-
ust niður á gólfið við áreksturinn,
urðu fyrir furðu litlum meiðslum,
* Miðstöð
* Þvottatæki fyrir framrúðu
* Aurhlífar
* Öryggisbelti
Biðjið um myndalista.
Gunnar Æsgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16. Sími 35200.
Ekki þannig. — Jafnvel þótt sætis-
bökin fyrir framan séu föst, veita
þau lítinn stuðning, því armarnir
kikna við höggið og hendurnar vilja
renna upp af brúninni.
Heldur þannig. — Niður á milli
sætanna, og eins nálægt gólfi og
unnt er. Þá kemur ekki t. d. til
greina að farþegarnir kastist út í
gluggana.
4 VIKAN