Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 20
KNATTSPYRHUIEIKURIHN
Hjá skóginum, sem tröllapabbi,
tröllamamma og fjórtán óþægu
tröllabörnin eiga heima í, er fallegt
lítið þorp. í þorpinu var, meðal ann-
ars, mjög gott fótboltalið, sem allir
þorpsbúar voru mjög hreyknir af.
Þetta frétti tröllapabbi og þá varð
hann leiður og klóraði sér í höfð-
inu.
— Fótbolti, svoleiðis vitleysa,
tautaði hann.
— Eins og það væri eitthvað sér-
stakt að sparka í bolta á grasflöt.
Og hvað fólkið þarna niðri í þorp-
inu er merkilegt með sig, bara af
því að fótboltaliðið vann alla leiki
sem það tók þátt í. Nei, þeir þyrftu
svo sannarlega að komast niður á
jörðina.
— Já, þú og börnin, þið leikið
ábyggilega miklu betur fótbolta,
sagði tröllamamma. Þú ættir bara
að fara og skora á þá í keppni, og
sigra þá rækilega, þá kæmi liklega
annað hljóð í strokkinn.
— Þú segir nokkuð, sagði trölla-
pabbi. Svo fór hann niður i þorpið
og í knattspyrnuklúbbinn. Hann
sagði þeim að vera tilbúnum næsta
sunnudag, því þá kæmu tröllin úr
tröllaskóginum og ætluðu að keppa
við þá.
Fyrst voru knattspyrnumennirnir
tregir til, en þegar tröllapabbi gerði
grín að þeim og sagði að það væri
af því að þeir þyrðu ekki, já, þá
samþykktu þeir.
Svo stóð það 1 blöðunum, að næsta
sunnudag ætluðu tröllin að leika á
móti knattspyrnumönnunum frá
þorpinu og sætamiðar seldust upp
á sextán og hálfri minútu, því þetta
var það forvitnilegasta, sem skeð
hafði í bænum í lengri tima.
Svo rann sunnudagurinn upp og
allt fólkið kom tímanlega á völlinn
til að missa nú ekki af neinu. Það
var mikið klappað, þegar knatt-
spyrnulið þorpsins gekk inn á völl-
inn, en allt var mjög hljótt, þegar
tröllapabbi birtist með tíu af börn-
um sínum. Tröllapabbi gekk nefni-
lega að markinu og stillti sér þar
upp ... já, eins og borgarstjórinn
sagði:
— Hann nær bara alveg upp í
þverslána, og sjáið þið, þegar hann
réttir út langa handleggina með
þessum risastóru höndum ... Nei,
þetta er hræðilegt, menn okkar hafa
ekki tækifæri til að koma boltanum
í mark hjá honum, hann fyllir alveg
út í það.
— Hvað í ósköpunum eigum við
að gera, kjökraði lögreglustjórinn.
Það er svo hræðilegt ef liðið okkar
tapar fyrir tröllunum. En ég get
ekki séð að þau hafi brotið neinar
leikreglur, svo ég get ekki stöðvað
leikinn.
— Tröllabörnin léku mjög vel.
Þau þeyttust fram og aftur á milli
hinna ringluðu manna frá þorpinu
og notuðu halann til að sparka með.
Það stendur nefnilega ekkert um
það i knattspyrnulögunum, hvort
nota megi hala til að sparka með
eða ekki. Tröllapabbi stóð í mark-
inu, öruggur með sjálfan sig og
'glotti. Tröllabörnin höfðu að vísu
ekki gert neitt mark ennþá, en það
höfðu hinir ekki heldur. Þeir gátu
það alls ekki vegna tröllapabba.
Þá datt konu borgarstjórans dá-
litið í hug.
— Komið þið aðeins með mér,
sagði hún við mann sinn og lög-
reglustjórann, þegar fyrri hálfleik
var lokið. Og svo fór hún niður að
sætunum, sem voru rétt fyrir aftan
markið hjá tröllapabba.
Þegar leikurinn byrjaði aftur,
kallaði hún til tröllapabba.
— Hr. tröllapabbi ... ég verð að
heilsa aðeins upp á yður, sagði hún.
En hvað þér eruð dúglegur og mik-
ið eigið þér dásamleg börn.
Við þetta varð tröllapabbi svo
glaður að hann sneri bakinu við fót-
boltavellinum til að hlusta betur.
— Já, þó ég segi það sjálfur,
sagði hann, þá held ég líka að ...
Og þá heyrðist BUUUUM í net-
inu við hliðina á tröllapabba. Loks-
ins var þá tækifæri til að gera mark
. *”&*»****&»«»>!>
fyrir aumingja mennina úr þorp-
inu. Og allt ætlaði að drukkna i
fagnaðarlátum.
— Þetta skeði svo eldfljótt, hróp-
aði tröllapabbi, og svo breiddi hann
aftur úr hinum volduga búk sín-
um, þannig að hann þakti allt mark-
ið. Nú ætlaði hann sko að passa
sig betur ...
— Þá er röðin komin að þér,
hvíslaði borgarstjórafrúin að manni
sínum.
— Ahemm ... Ahemm ... borg-
arstjórinn hóstaði til að vekja at-
hygli tröllapabba, en það heppnað-
ist ekki, þá hrópaði hann:
— Heyrðu, tröllapabbi, ég vona
að þú látir það ekki á þig fá, þó
Framhald á bls. 42.
4« f-:: -■ . h
Barnagaman
Fyrsti
fylgihnöttur
jarðar.
Það eru uppi margar ólíkar skoðanir um það, hvernig fyrsti fylgi-
hnöttur jarðarinnar — tunglið — hafi komizt á sporbraut sína. Teiknari
nokkur reyndi að útskýra það með þessum teikningum, en myndirnar
rugluðust saman hjá okkur, og þess vegna er það, að við biðjum ykkur
um að raða þeim saman í rétta röð, svo að einhver meining verði i
þessu öllu saman. Hve fljót eruð þið að því?
'9 So a ‘V ‘D :S9J í-tessacj i jsegnj ge egia jBUJipmCjv :jbas
Hvað sér bjöminn?
Hvað heldur þú að björninn sé að horfa á? Giskaðu á. Fáðu
þér sfðan blýant og athugaðu málið betur. Þú gerir það þannig
að þú byrjar við punkt númer 1, og dregur strik yfir að
punkt númer 2, síðan til númer 3 og svo koll af kolli allt
til 17. Síðan skaltu lita myndina.
Emma C.MSKeam I
20 VIKAN