Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 27
staðinn. Framari af var það silung-
urinn, sem rennt var fyrir, seinna
stórfursti vatnanna, laxinn. Stærst-
an liefur Adam fengið hann i Laxá
í Þingeyjarsýslu, 27 punda hæng, á-
„Silver Gray“ númer (i. Annars
stendur húsið hans aðeins nokkra
faSma frá veiðivatninu mikla, Ölf-
usá, þar sem liann hefur dregiö í
land margan fallegan fisk um dag-
ana.
Adam hefur alltaf mikið að gera
i iðn sinni og hlifir sér hvergi. Hann
hefur aldrei sett upp vettlinga um
ævina, vinnur berhentur úti, þó tiu
stiga gaddur sé, og finnur þó ekki
til kulda. „Enda eru ekki til þeir
hanzkar í landinu, að ég komizt í
þá!“ segir hann, „ekki föt heldur,
nema þau séu saumuð eftir máli.
Ég nota flibba númer átján og
hálft.“
Árið 1930 heimsótti Adam fornar
slóðir á Sjálandi, ættingja sina og
vini þar, dvaidi með þeim í firnm
mánuði, en fór þá aftur að langa
til íslands, og sncri ánægður heim.
Síðan hefur hann ekki farið, —
þangað til í sumar. Ég hef heyrt
hann hafi farið í sumar og verið
hjá bróður sínum í Danmörku á
sextugsafmæli sinu um daginn. En
ég á þess von að hann verði ekki
mjög lengi í siglingunni, býst held-
ur við að maður sjái hann aftur
áður en langt um liður, og velkom-
inn heim skal hann vera. Þetta er
svoddan snillingur. Hann er flóð-
mælskur, talar kröftuga og kjarn-
góða islenzku með lítið eitt dönsk-
um hreim og vitlausum endingum.
Við óskum honum öll til hamingju
á sextugsafmælinu.
Guðmundur Daníelsson.
Hvað kostar dyggðin?
Framhald af bls. 21.
réttri skoðun. Og menn saurgast i
aurkasti, einnig af þvi sem þeir
sjálfir kasta. Hér ásannast, að
skamma stund verður hönd höggi
fegin. Með strangari sjálfsstjórn
hefði kannske náðst varanlegri
árangur.
Þvi að kostnaðurinn við siðgæðið
er liófsemd og sjálfsafneitun. Vernd-
andi þáttur siðgæðisins er fólginn
1 þvi, að lágstæðar hvatir, sem gina
við hagnaðarvon Ifðandi stundar,
taki ekki ráðin af siðgæðisvitund
og sjálfsvirðingu. Oft er það sjálfs-
virðingarkenndin ein, sem styrk'ir
okkur gegn freistingunni gjaldað
róg við illmæli og lausung við lygi,
og verða helzt fyrri til í slikum
viðskiptum eins og Machiavelli
kennir.
En krafan getur orðið strangari.
Sannleiksástin t. d. getur oft kost-
að sjálfsafneitun, sem nálgast sjálfs-
fórn. Maðurinn er gæddur þeim
undursamlega hæfileika að geta dá-
ið vitandi vits og af ásettu ráði
fyrir hugsjón. Öll æðri trúarbrögð
bera svip af þessum einstæða hæfi-
leika mannsins til sjálfsfórnar. Óð-
inn undirgekkst pínu hengingarinn-
ar og fórnaði öðru auga sinu til
þess að öðlast þá vizku, sem ein
megnaði að sporna við geigvæn-
legum örlögum guða og manna. Og
sjálfsfórn Jesú er túlkuð sem frið-
þægingarverk, ætlað öllu mann-
kyni til endurlausnar frá jarðnesk-
um breyzkleika. Þessi endurlausn-
arverk tákna þó ekki lokasigur, sem
hæfi mannkynið yfir baráttuna
milli hins illa og góða. Þvert á móti:
Allt til Ragnaraka berst maðurinn
fyrir hinu góða og gegn hinu illa.
Sjálfsfórn guðdómsins er okkur
liins vegar hvöt og vísbending. að
sjálfsafneitun sé samofin öllum
æðri lifsháttum. ★
Yikan og Tæknin.
Framhald af bls. 5.
skýrslur um hvernig þau reynast.
Enda er sá galli á þeim, að þau
koma varla til greina i litlum fólks-
hílum.
í Svíþjóð hefur að undánförnu
mikið verið að ]dví unnig og mark-
víst, að fá bílaeigendur tii að setja
öryggisbelti í bíla sína ■— og nota
þau — og er talið óvefengjanlega
sannað, að þau dragi úr s'ysahættu
við árekstur að stórum mun. Þegar
eru á markaðinum nokkrar mismun-
andi gerðir af slíkum öryggisbelt-
um, en sérfræðingar álita að nota-
gildi þeirra sé yfirleitt mjög svipað.
Dr. Backström, sem fyrr er nefnd-
ur, leggur áherzlu á það. að J)að hafi
aldrei komið i ljós við rannsókn
á árekstrum, að nokkur hafi lilotið
meiri meiðsl fyrir það, að hann var
spenntur öryggisbelti, hins vegar
hafi það sannazt svo ekki vcrði ve-
fengt, að þau hafi hvað, eftir annað
bjargað frá varanlegum örknm'nm
og jafnvel bana, og er þá hafður
samanburður við slys af árekstrum
við sem svipaðastar aðstæður og
aðdraganda, þar sem engum örygg-
isbeltum var til að dreifa.
Hér á landi hefur litt verið á
þessi ðryggisbelti minnzt, og fáir
munu þeir, eða jafnvel engir, sem
nota þau. Virðist þó fyllilega tima-
bært að farið sé að vinna að út-
breiðslu þeirra og notkun hér; þeir
eru ekki það fáir, bilaárekstrarnir,
sem verða hér nú á ári hverju, og
það mörg alvarleg slys, sem af þeim
hljótast. ★
Nýársmatseðill.
Framhald af bls. 19.
S'teikt þunn flesksneið látin yfir
hverja rúllu. Soðin hrisgrjón og
grænmeti borið með.
Eplaábætir (Triffli).
5 makkarónukökur, ávaxtasafi,
vin, aldinmauk, epli (ferskjur
eða aðrir niðursoðnir ávextir).
2 egg, 2 msk. sykur, 2 dl rjómi,
3 blöð matarHm, vanilja eða
sitrónusafi.
Eplin eru flysjuð, skorin í fjóra
parta og soðin i sykurvatni þar til
þau eru meyr en heil. Kæld. í stað-
inn fyrir epli er ágætt að nota nið-
ursoðna ávexti.
Makkarónurnar eru látnar á botn-
inn í skálinni, bleyttar með ávaxta-
safa og vini. 1 msk. af góðu tnauki
látin þar yfir.
Eggjarauðurnar eru hrærðar með
sykrinum og 1—2 msk. af ávayta-
safa. Matarlimið er lagt í bleyti og
brætt yfir gufu, hrært saman við
eggjarauðurnar. Þegar það fer að
þykkna er þeyttum rjómanum, van-
illunni og stifþeyttum hvítunum
blandað út i.
Hellt yfir kökurnar og skreytt
með eplunum. Súkkulaði rifið yfir.
Ábætinn er einnig fallegt að bera
fram i smáskálum (sjá mynd).
rúasncsku hjólburðarnir cru
mikið endurbsttir og hafa
unnið cér, verðugt lof þeirra
bifreiðacigenda sem oft þurfa
að aka 6 misjöfnum vcgum
cða hreinum veghysum,
slitþol þeirra cr ótrúlegt,
enda cr bsði efni og vinna
miðað við að framleiðslan
sé betri en áður þekktist
Munið að spyrja þá, sem
reynzlu hafa af þessum frá-
bæru hjólbörðum einmitt
hér, við hin erfiðu skilyrði,
í landbúnaði, þungaflutning-
um og einkaakstri.
BETRA VERÐ - MEIRI GÆDI
MARS TRADING COMPANY
Kkipparstíg 20 - sími 17373.
yiKAN 27