Vikan - 28.12.1961, Page 29
■■■
Ahlmann eldavélasamstæðan hefur náð
miklum vinsældum vegna þess, að hún:
1. Uppfyllir ströngustu kröfur yðar,
því nú er klukkurofinn bæði á
bökunarofni og eldunarplötum.
2. Hefur sjálfvirkan hitastilli á hrað-
suðuplötum.
sem dregur úr hit-
anum við suðumark niður í hæfi-
legt hitunarstig.
Er úrvals Vestur-þýzk framleiðsla.
Sighvatur Einarsson & Co
. _Skipholti 15 — Sími 24133.
iiökunu lofn
með Grilli
með Klukkurofa
og einnig
með glerhurð
Uraðsuðuplölur
meö klukkurota
AULMANN
II
4
'frUPft&p
HrútsmerkiG (20. marz—20. apr.): Þetta verður
dálítið óvenjuleg vika, einkum hvað allt félagslíf
snertir. Þú og ástvinur þinn lendið í skemmti-
legu ævintýri, sem þið munuð lengi minnast. Það
veldur þér eitthvað áhyggjum þessa dagana, en
það er engu líkara en þú reynir að kvelja sjálfan þig með
þessu — þvi að þú veizt bezt sjálfur, að þetta eru smámunir
' Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þér dettur í
hug að gera eitthvað, sem þér finnst í augna-
blikshrifningu bráðsnjallt, en þú skalt umfram
allt forðast að hrinda því í framkvæmd, þvi að
auðvitað er þetta mesta vitleysa. Þú færð
skemmtilega heimsókn á fimmtudag, og gæti þessi heim-
sókn orðið til Þess að breyta nokkuð áformum þínum.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Það gengur
mikið á fyrir þér i þessari viku, þú verður fullur
af lífsorku og athafnasemi, og er það vel, því að
þér hefur orðið heldur lítið úr verki undanfarið.
Þú lærir eitthvað í vikunni, og getur sá lærdóm-
ur létt þér lífið í framtíðinni, ef þú kant að nýta þér hann.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Það steðja að
þér alls kyns freistingar í vikunni, en líklega
munt þú maður til þess að standast þær — ein
er samt allra verst, og verst er, að vinur þinn
hvetur þig líklega til þess að láta undan henni.
Þú hefur vanmetið sjálfan þig á vissu sviði, en í vikunni
gerist eitthvað, sem sýnir þér fram á, að þú þarft sízt að
vanmeta þig í þeim efnum.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23 ág.): Atburður, sem
gerðist fyrir svosem mánuði, rifjast nú upp fyrir
þér og hvetur þig til athafna. Þessi vika verður
þvi vika mikilla framfara á vissu sviði, og verður
það ekki sízt fyrir tilstilli eins í fjölskyldunni. Þú
skalt fara varlega með peningana um helgina. Sunnudag-
urinn verður afar óvenjuiegur dagur á allan hátt.
Meyjrmerkiö (24. ág.—23. sept.): Saklaus skreytni
sem þú lézt þér um munn fara fyrir skemmstu,
á líklega eftir að draga dilk á eftir sér, og sést
það bezt í þessari viku. Kona, sem þú hefur metið
lítils til þessa, sýnir, að hún er ekki öll þar sem
hún er séð. Tvö kvöld vikunnar geta skipt framtið þína
miklu, ef þú heldur vel á spöðunum. Heillatala 5.
Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú kemur illa
fram gagnvart góðum vini þínum, og á hann það
síður en svo skilið. Þú verður að gera yfirbót hið
fyrsta. Þér verður komið þægilega á óvart um
helgina, liklega verður Amor þar eitthvað á
ferðinni. Taktu ekki mark á því, sem þú heyrir sagt um
einn bezta vin þinn. Þetta er uppspuni frá rótum.
Drekamerkiö (24 okt.—22. nóv.): Það verður
krafizt mikils af þér í þessari viku, og vonandi
munt þú standast þær kröfur með. sóma, annars
gæti verr farið. Þér dettur skringileg hugmynd í
hug í vikunni, sem þú gley ’iir fljótlega, en í raun-
inni er þetta ekki eins mikil fjarstæða og þér kann að virð-
ast í fljótu bragði. Heillalitur blátt.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þú kemur
illa fram gagnvart vini þínum, og stafar það af
þvi að þú vanmetur hann, en það er sannarlega
ekki ástæða til þess — hann vildi þér allt vel.
Þú átt von á góðri sendingu, líklega langt að.
Vajndaðu allt það, sem þú skrifar í vikunni. Þú færð girni-
legt tilboð, sem þú skalt ekki taka, a. m. k. ekki næsta
hálfan mánuð.
GeitarmerkiÖ (22. des—20. jan.): Þetta verður í
alla staðx hin þægilegasta vika, og Þú munt njóta
lífsins i rikum mæli. Gættu þess þó að þetta bitni
ekki á skyldustörfum þinum — það má aldrei
verða. Laugardagurinn er undarlegur dagur, þá
gerist eitthvað, sem á eftir að valda þér miklum heilabrot-
um næstu viku — útkoman verður þó hin skemmtilegasta.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Það verður
lítið lesið úr stjörnunum í þessari viku sakir ann-
arlegrar afstöðu þeii'ra, þó er það víst, að þessi
vika verður síðustu vikum í alla staði afar frá-
brugðin. Líklegt er að einhver stórviðburður ger-
ist um helgina, en ekki er ljóst hvers eðlis hann er. Heilla-
litur bláleitt.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Það hefur bor-
ið allt of mikið á smávægilegum galla í fari þínu
undanfarið, en eins og sakir standa, finnst vin-
um þinum þessi galli allt annað en smávægilegur.
Þú veizt bezt sjálfur, hver þessi galli er. Vendu
þig af þessu hið skjótasta. Þú lest eitthvað í vikunni, sem
gefur þér skemmtilega hugmynd, sem þú skalt framkvæma.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.