Vikan - 04.01.1962, Síða 2
j '
A.v.. ,. . v« .<•
.........................................
'' •••••'' •• ÍS ' "i
; - -
||Ȥ|p|||
„.i.m ii
■
: ::■:•. .-xx;
Sjl Iwe fjðlkreytt tái fylp STARMIX
athugið sérstaklega
rjómaísþeytarann
Starmix er ný tegund, og ein fullkomnasta hrærivélin sem er á
markaðnum. — STARMIX er Vestur-Þýzk framleiðsla og mest
selda hrærivél Vestur-Þýzkalands.
SÖLUUMBOÐ ÚTI Á LANDI:
Ólafsvík: Kaupfélagið Dagsbrún.
Hellissandi: Kaupfélag Hellissands.
Súgandafirði: Kaupfél. Suðureyrar.
Akranes: Kaupfél. S.-Borgfirðinga.
Hólmavík: Kaupfél. Steingrímsfj.
Akureyri: Verzl. Tómasar Björnss.
Eskifirði: Kaupfélagið Björk.
Fáskrúðsfirði: Kaupfél. Fáskrúðsfj.
Hafnarfirði: Kaupfél. Hafnfirðinga
AÐALUMBOÐ í REYKJAVÍK:
Valafell
Garðarstræti 2.
Sími 16976.
Ávaxtapressa.
Grænmetis-skeri
3 hnífum.
með Ávaxta-þeytari.
Hakkavél.
Rjóma-ís-þeytari.
Forsíðan
Guðrún Bjarnadóttir úr Njarðvík-
um hefur verið á forsíðu hjá okkur
áður; nánar tiltekið á bílablaði
Vikunnar, sem út kom 26. október
s.l. Þar var ferill hennar og lífs-
saga rakin og er ekki unnt að bæta
miklu þar við. Guðrún hefur haldið
áfram að eiga heima í Njarðvíkum
og hún vinnur enn í Slippnum hjá
föður sfnum það bezt við vitum.
Þessi forsíðumynd var tekin með
lækkandi sól á bleikum haustdegi.
Við fórum með Guðrúnu í Sportver
við Skúlatorg til þess að velja henni
flíkur — ekki svo að skilja, að hún
kæmi fatasnauð sunnan úr Njarð-
víkum, — heldur var það ætlunin
að taka nokkrar m^ndir af henni
í mismunandi klæðnaði og þarna
sáum við til dæmis íþróttabúninga,
litsterka og mjög klæðilega. Það
stóð aftan á þeim Frani eða Þróttur
eða eitthvað þvíumlíkt, sem er af-
skaplega gott og blessað, en við vor-
um samt ekki ánægðir og spurðum,
hvort ekki væri hægt að spretta
stöfunum af og setja aðra — þið
sjáið á forsíðunni, hvaða stafi við
völdum. En svona eru menn alltaf
eigingjarnir. Við vildum endilega
eigna okkur Guðrúnu, fremur en
hún væri talin frá þeim í Þrótti eða
Fram.
—■ Hafðu engar áhyggjur. Þessi til-
raun hefur þann kost framyfir þær
bandarísku og rússnesku, að við
erum 100% vissir um að þú komir
niður aftur.
2 VIKAN