Vikan


Vikan - 04.01.1962, Blaðsíða 3

Vikan - 04.01.1962, Blaðsíða 3
Vikan innbundin ... Kæri Póstur. GeturSu sagt mér, hvort hægt er að láta binda Vikuna inn? Ef svo er, hvar væri það gert, og hvað myndi það kosta? Kó þorn. Flestar bókbandsstofur í Reykja- vík myndu taka að sér að binda inn Vikuna. Líklega myndi það kosta um 5—600 krónur. Pokar xrndir augum . . Kolbrún skrifar okkur í öngum sínum — hún er með skelfilega Ijóta poka undir augunum, sem hún vill umfram allt losna við. Hún segir m. a. í bréfinu: „... kannski ætti ég að fara til augnlæknis, en Vika mín, þú átt ráð við svo mörgu, að ég treysti þér eins vel.“ Ég þakka það álit, sem þú hefur á úrlausnum Vikunnar, en anzi er ég hræddur um, að úrlausn við þessu myndi flokkast undir skottulækningar — auðvitað, skaltu fyrst fara til augnlæknis eða e. t. v. húðsjúkdómalæknis. Ef læknastéttin veitir þér ekki úrlausn, væri kannski reynandi að leita til skottulæknis Vik- unnar. Pizza. Kæri Póstur. Viltu vera svo góður að fremja hér smá Salómonsdóm. Deilan snýst um rétt, sem á erlendri tungu nefn- ist „pizza“, og sem ég vil halda fram, að sé ítalskur. Vinur minn, sem vill eigna Frökkum allar dá- semdir þessa heims, heldur því hins vegar fram, að hann sé fransk- ur. Hvað segir þú? Guttormur. Þú munt hafa á réttu að standa, Guttormur, en vinur þinn er ekki sá eini, sem vill frenskja rétt þennan, því að Frakkar kvu nú sjálfir orðið nefna hann „Pain á páté“. Það byrjaði í strætó ... Elsku^ bezti póstur minn. Ég er 14 ára og hef lesið Vikuna, síðan ég lærði að lesa og alltaf eytt minum eigin vasapeningum í hana. Nú langar mig svo að biðja þig um róð. Ég er skotin í strák, sem fer alltaf í sama strætó og ég i skól- ann. Hann talar aldrei við mig, heldur starir á mig alla leiðina með þessum dásamlegu dádýrsaugum sínum. í skólanum (hann er í 4. bekk, en ég í 2.) er hann alltaf að labba framhjá mér og vinlconum mínum, og þær segja, að hann sjái ekkert nema mig. Hvað á ég að gera til að láta hann vita, að ég sé spennt fyrri honum? Mig dreymir hann orðið á liverri nóttu. Ein í rusli. Segðu mér nú ekki, að þrátt fyrir þín fáu ár hafi guð ekki gefið þér einhvern skerf af kvenlegri kænsku. Ef pitturinn sýnir þess svona glögg merki, að hann sé hrifinn af þér, þarf hann bara á örlftilli uppörVoin að halda (þ. e. a. s. sé hann venjulegur 16—17 ára piltur). Misstu vasa- klút í strætó fyrir framan nefið á honum, eða láttu líða yfir þig í skólaportinu, þegar þú veizt af honum í nánd. Vertu bara viss um, að einhver annar sé nálægt, ef ske kynni að ... Ótgefandi: VXKAN H.F. Ritstjóri: Gfali SigurðsRon (ábm.) AuglýBÍngttstjóri: Jóhaunes Jörundssoh. Framkvæmdttstjóri: - Hilmar A. Krístjánsaon. Ritstjórn og ouglýsingar: Sklpholti 33. Slmar: 35320, 35321, 35322. Póst- hólf 149. Afgrelðsia og dreiflng: Blaðadreifíng, Míklubraut 15, simi 36720. Dreifingarstjóri: óskar Karls- son. VerB 1 lausasölu kr. 15. Askrift- arverð er 200 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyriríram. Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. „Sjenerandi“ varir. / næsta blaði verður m.a.: # Gangan langa. — Mergjuð saga eftir danska skáldið Paul Örum. V París Match í Reykjavík. Þetta stærsta vikublað heimsins sendi á sínum tíma ljósmyndara til íslands í tilefni af fiskveiði- deilunni og nú hefur Vikunni tekizt að ná í nokkrar þessara m,ynda, sem sýna meðal annars forseta íslands í Sundlaugunum. ■¥• Sjónarvottur. — Spennandi sakamálasaga eftir Charlotte Miller. V Einstæður göngusveinn á þangfjöru drottins. Séra Jakob Jóns- son i aldarspegli. ¥ Koma tvíhneppt föt bráðlega aftur? Viðtal með myndum við Harald Örn klæðskera í Bankastræti, m. a. um karlmanna- fatatízkuna. # Ný framhaldssaga, sem hefur vakið geysimikla athygli er- lendis: .Clark Gable, eiginmaður minn, eftir síðustu eiginkonu hans, sem nú lifir hann, Kathleen Gable. Sögunni fylgir fjöldi mynda úr einkalífi þeirra hjóna. # í leit að lífsförunaut. Sú vinsæla saga er nú senn á enda og endar í blaðinu þar á eftir. * Ný, stórglæsileg verðlaunakeppni: — Verðlaunin: 40 fermetr- ar af Axminster gólfteppi og vinnandinn getur sjálfur valið sér mynztur. Verðmæti vinnings: 20 þúsund krónur. ¥ Vikan og tæknin: Hlustað eftir tilkynningum utan úr geimnum. * í fullri alvöru: Að gera hið illa og ljóta hversdagslegt. * Með á nótunum: Sagt frá jazzkvöldi í Tjarnarkaffi. Kæra Vika. Þú, sem kannt ráð við öllu, reyndu nú að hjálpa mér. Svo er mál með vexti, aS ég er búin aS gera allt, sem ég get, til þess aS fá mjúkar og rakar varir, en þær ein- hvern veginn skrælna alltaf upp. Ég hef borið krem yfir varalitinn, en það er bæði svo „sjenerandi“ og óþægilegt, að ég yrði mjög þakklát fyrir annað og betra ráð. Didda G. Feitir varalitir eru langbezta ráð við þurrum vörum. Þó að notkun þeirra fylgi sá ókostur, að maður þarf að mála sig oftar, eru þeir langtum æskilegri en hinir svo- kölluðu „kossekta“ varalitir. Ja, þessar mæður ... Kæri Póstur. Ég á heima í fjölbýlishúsi í út- hverfi bæjarins innan um mikið af barnafólki. Finnst mér alveg hræði- legt til að vita, hversu langflestar hinna ungu mæðra þurfa að öskra á börn sín sí og æ. Gera þær sér ekki ljóst, að þetta er ekki leiðin til að fá börn til að hlýða, heldur stæla börnin fyrirdæmið, sem móð- irin gefur þeim. Ég á sjálf 4 börn, mjög vel upp alin segja allir, og þó hef óg aldrei svo mikið sem hækkað róminn við þau. Sigurveig Pálsdóttir. P. s. Hvernig er skriftin? (Ég er 36 ára gömul). Skriftin ber vott um, að þéK hafið aldrei öskrað um ævina. Duldar hugsanir. Ég skammast mín svo að skrifa þetta, en ég get ekki orða bundizt, og mig langar svo að vita, hvort öðrum konum er eins innanbrjósts og mér. Ég er 27 ára gömul og búin að vera í hamingjusömu hjónabandi í bráðum ár. Ég elska manninn minn mjög heitt, en ég verð að viðurkenna, að ég verð alltaf mjög spennt, þeg- ar ég finn, að öðrum karlmönnum lizt vel á mig. Það er meira að segja elns og einhver fiðringur fari um mig. I>að er ekki svoleiðis, að ég gæti átt vingott við annan mann, en ég brýt oft heilann um það, hvernig það mundi vera að láta ann- an mann kyssa sig. í biblíunni stendur, að siðlausar hugsanir séu eins syndsamlegar og raunverulegt siðferðisbrot, svo mér líður oft mjög illa út af þessum hugsunum mínum. Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvort aðrar konur hugsuðu svona. E. S. Húsavík. Kæra frú E. S. Bæði menn og konur fara nú oft í búðir án þess að verzla, ekki satt? Svar til Ingólfs. það er þó hún, sem á eftir að sitja uppi með þig næstu 50—60 árin. Kæra Vika. Ég á heima á fjölbýlishúsi og hef það verk með höndum að rukka inn sameiginlegan hitakostnað einu sinni í mánuði. En það er ein ibúð þarna, sem slæmt er við að eiga. Fólkið beitir allskonar brögðum til þess að komast hjá því að greiða fyrir hitann. Nú er orðin þó nokk- ur skuld þarna og ég hef orðið að leysa þetla út í bili. Hvað er hægt að gera i svona máli? Það sýnist furðulegt að nokkrum skuli til hugar koma að geta sloppið við að borga fyrir upp- hitun, en svona fólk er nú einu sinni til og þess vegna hefur Al- þingi látið frá sér fara lög um sambýli. Sanikvæmt þeim eign- ast íbúar sanibýlishúss veð í ibúð manns, sem ekki greiðir sjálfsagðan, sameiginlegan kostn- að. Fáðu þessi lög og sýndu fólk- inu og talaðu við lögfræðing um málið, ef hitt dugar ekki. Mér heyrist á öllu, að þú sért alls ekki viss um þína eigin af- stöðu til þessa máls. Þú þarft auðvitað að vita nákvæmlega hvað þú vilt, áður en þú tekur ákvörðun sem þessa. Það er úr sögunni, að foreldrar ákveði fyr- ir börn sín hvað þau eigi að verða, og ef foreldrar þínir eru eins skilningsgóðir og þú talar um, hljóta þeir að gera sér það ljóst. Áftur á móti fyndist mér öllu eðlilegra, að þú ræddir mál- in við unnustu þína og leyfðir henni að leggja orð í belg, því

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.