Vikan


Vikan - 04.01.1962, Blaðsíða 13

Vikan - 04.01.1962, Blaðsíða 13
hann varð dauðskelkaður engu að síður. Óttinn — Það var hið eina, sem hann gat nú vænzt sér af hafsins hálfu. Skelfingin og ekkert nema skelfingin. Hann lagðist á bakið, tók öndunarslönguna úr munni sér og lét bárurnar vagga sér. Og svo lét hann sig reka fyrir straumum um ómælis- vídd hafsins og stjörnubjartrar næturinnar, og eilifðin var yfir honum og undir og umhverfis hann á alla vegu. Hann fann ekki til neinnar þreytu. Hann ákvað að hafa sem hægast um sig yfir nóttina, og hann gat lengi haldið lífi hungursins vegna. Öðru máli gegndi um þorstann. Hvernig var unnt að svala þorsta sínum, einn úti á reginhafi? Veiða fisk? Maður gat jóðlað á hráum fiskinum og þannig sogið úr honum vökvann og slökkt sárasta þorstann. Beita skutlinum. Um það bil tuttugu mínútum seinna komst hann i tæri við fyrsta fiskinn. Hann var ljótur, kjaftstór og skoltarnir hvasstenntir. Harry kreppti sig um mjaðmirnar og renndi sér undir yfirborðið. Fiskurinn tifaði uggunum, hélt kyrru fyrir og glápti á hann úr svo sem fimm metra fjarlægð, en skauzt Þá á brott og hvarf sjónum hans í myrkt djúpið. 1 næstu andrá sá hann hvað valdið hafði hinum skyndi- lega flótta fisksins; torfa af silfurgljáandi fiskum með langa, hvasstennta trjónukjafta skreið flughratt fram hjá honum, þar sem hann svamlaði enn í kafi, og hélt á eftir flýjandi fiskinum. Barracúdatorfa! Harry brá sér úr kafi eins skjótt og hann kunni, og vonaði að barrakúdarnir, grimmasta og gráðugasta illfiskið í sjó á þessum slóðum, hefðu ekki veitt honum athygli eða gleymdu honum i eltingaleik sinum við fiskinn. — Horfðu upp, hvíslaði röddin. Gættu þess umfram allt, að láta ekki skelfinguna ná tökum á þér. Honum varð hugsað til Jims Task, og þeirra hinna félaga sinna; mannanna, sem hann mundi aldrei fá tækifæri til að kynnast nánar, og hann óskaði þess, að hann gæti stefnt tímanum aftur á bak. Þá skyldi hann svo sannarlega setj- ast við borðið hjá þeim og fá sér slag með þeim. Þeir höfðu að öllum líkindum verið skemmtilegustu og beztu náung- ar, en hann hafði sjálfur komið í veg fyrir að nokkur kynni tækjust með þeim og honum, af ótta við að hann mundi ekki samrýmast þeim. Lágur gnýr barst að eyrum hans gegnum báruniðinn. Hann lagði við hlustirnar. Flugvél ... Gnýrinn nálgaðist stöðugt. Hann lyfti grímunni og tók út úr sér öndunarslönguna. Hann hrópaði og kallaði og sveiflaði skutlinum. — En ég get ekki komið auga á flugvélina, sagði hann allt í einu við sjálfan sig. Og um leið varð honum það ljóst, sér til sárrar örvænt- ingar, að þeir í flugvélinni gátu því vitanlega ekki heldur komið auga á hann ... Hann leitaði aftur á náðir hafsins. Hann heyrði hreyfil- gný fiugvélarinnar beint yfir höfði sér nokkur andartök; síðan fjarlægðist hann og dó að síðustu út í fjarska. Þögnin umlukti hann skelfingu sinni. Hann æ.pti og kallaði, eingöngu í þeim tilgangi að rjúfa vald hennar. Framh. á bls. 32.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.