Vikan - 04.01.1962, Blaðsíða 4
Úrval
I iiýjiim luíiiin^i
■
Tímaritið ÚRVAL flytur ÚRVALS-
greinar í samanþjöppuðu formi úr tíma-
ritum og blöðum í öllum heimsálfum,
þar á meðal íslenzkar greinar - einvörð-
ungu ÚRVALS-lestrarefni, fróðleik og
skemmtan fyrir alla. í hverjum mánuði
er ágrip af ÚRVALS-bók.
ÚRVALSTÍMARIT eru um heim allan vin-
sælustu tímaritin. T. d. er Reader's Digest
vinsælasta tímarit heims, selt á hverjum
mánuði í 21 milljón eintaka.
ÚRVAL verður yfir 200 síður í hverjum
einasta mánuði fyrir aðeins 200 krónur
á ári.
Beztu og ódýrustu bókakaup, sem völ er
á hérlendis
Til þess að fylgjast með því, sem er að ger-
ast í heiminum, verður þú að lesa ÚRVAL.
2 »00 KÍdui' fyrir
adeins
kr. 300 á ári
. *>• •— « — — M mm »• — mm m
Ég unriirr. gerist áskrifandi að ÚRVALI og óska eftir að
mér verði sent blaðið mánaðarlega.
Nafn: ..........................
Heimilisfang: ..................
Q] Greiðsla fylgir.
Q Vinsamlegast sendið póstkröfu sem greidd verður við móttöku.
VIKAM
BÍLAR — SEM „SEGJA SEX“.
Að undanförnu hefur oft verið
sagt frá hinum „vönduðustu og
glæsilegustu" bílum í þessum dálk-
um. En svo eru til aðrir bílar, og
ekki síður hin mikilvægustu farar-
tæki, sem varla verða taldir mjög
glæsilegir, miðað við þær ströngu
kröfur, sem nú eru gerðar varðandi
útlit bila — að minnsta kosti er
skrokkurinn ekki svo spegilgljáandi
og krómskreyttur að maður fái of-
birtu í augun langar leiðir frá, eða
línusamstillingin svo leikandi létt,
að þar sé um að ræða listaverk í
vissum skilningi. En vandaðir eru
þessir bílar, engu síður en þeir
glæsilegu, nema fremur sé og yfir-
leitt að öllu leyti sterkari og meiri
til allra átaka.
Þessir bilar eru skilgetin afkvæmi
herbilanna, sem fram komu í siðari
heimsstyrjöldinni — jeppanna og
slíkra farartækja, sem meðal annars
hafa átt sinn þátt í því að gera land
okkar byggilegra og auðveldara yf-
irferðar, þótt þeir hafi um leið unn-
ið það vafasama verk að útrýma
„þarfasta þjóninum" að miklu leyti
úr sveitunum. í þeim hópi eru til
dæmis Willys-jepparnir, Land-Rov-
erinn og rússnesku landbúnaðar-
jepparnir og fleiri slíkar tegundir.
Nú verður lítið eitt minnzt á tvær
nýjar gerðir af slíkum bílum, frá
framleiðendum, sem báðir hafa áður
getið sér mikinn orðstír á því sviði.
ÖRUGGASTI BÍLL í HEIMI.
„FERGUSON 1963“.
Þannig lítur „reynslubíllinn" frá
Ferguson út nú.
Harry Ferguson hefur oft verið
kallaður „dráttarvélakóngurinn", og
þótt sannnefni, því að verksmiðjur
hans hafa löngum haft forystuna i
þeirri framleiðslu, að öilum ólöst-
uðum. Fyrir nokkru siðan lýstu
framámenn Ferguson-dráttarvéla-
verksmiðjanna yfir því, að þeir
hefðu 1 hyggju að láta einnig, til sin
taka i bílaframleiðslunni — og það
svo um munaði. Kváðust þeir nú
hafa í undirbúningi framleiðslu á
öruggasta bil í heimi, og ekki nóg
með það, heldur mundi sá bíll valda
gerbyltingu í allri bílasmíð og bíla-
framleiðslu á næstunni. Minna mátti
það ekki kosta ... og þeir, sem eitt
hvað þekktu til þeirra hjá Fergu-
son, fullyrtu að þeir væru vísir til
að standa við hvert orð, sem þeir
segðu, svo ekki er að undra, þótt
þess liafi verið beðið með eftirvænt-
ingu, að eitthvað heyrðist frekara
um þennan merkilega bíl.
Þótt bíll þessi komi í sinni endan-
legu mynd varla fyrr fyrir almenn-
ingsaugu en árið 1963, hefur sifellt
meira verið látið uppskátt um gerð
hans, enda hafa nokkrir þegar verið
fullsmiðaðir og reyndir um nokkurt
skeið — með takmarkaðri leynd —
og er sagt að þeir hafi jafnvel farið
fram úr þeim vonum, sem verkfræð-
ingarnir hjá Ferguson gerðu sér,
og mun þá mikið sagt. Þótt þessir
reynslubilar hafi verið taldir full-
smíðaðir, er það ekki með öllu rétt,
því að enn hefur ekki fyllilega verið
afráðið hvernig yfirbyggingin verð-
ur, en þó hefur verið upplýst að hún
muni verða allsvipuð og á nýjustu
gerðinni af „Ford Taunus“ aftur-
byggðum. Hreyfillinn, sem hefur
En þannig er gert ráð fyrir að hann
verði.
verið reyndur í akstri í full fimm
ár, verður annaðhvort fjögurra
strokka, 2,2 lítra og 90 hestafla mið-
að við 5000 snúninga, eða sex
strokka og þá 120 hestafla.
Það „byltingarkenndasta“ við
þennan „öruggasta bíl i heimi“ verð-
ur þó „sjálfskiptingin“ og kraft-
færslan á öll hjól, en hvorttveggja
er með nýjum hætti — og verður
meðal annars til þess, samkvæmt
upplýsingum Ferguson-verkfræðing-
anna, að um 70% af eldsneytinu
gernýtist i orku. Skífuhemlar verða
og á öllum hjólum.
Sem sagt — þess verður nú
skammt að biða að það komi í ljós
hvort þeir hjá Ferguson geta staðið
við „stóru orðin“.
„SCOUT“ — NÝR LANDBÚNAÐAR-
JEPPI FRÁ HARVESTER.
Það er ekki meiningarlaust, að
þessum nýja „vegleysubíl“, eða iand-
búnaðarjeppa frá Harvesterverk-
smiðjunum hefur verið gefið heitið
„Scout“ — eða „Skátinn“ — því að
verksmiðjurnar láta einkunnarorð
skátanna fylgja honum: „Alltaf við-
búinn“. Nánast tiltekið mun það
eiga að merkja, að bíll þessi sé stöð-
ugt viðbúinn að mæta öllum farar-
tálmum og torfærum — og sigrast
á þeim. Það mun líka láta sönnu
nærri, ef marka má þær upplýsingar,
sem fyrir liggja.
„Skátinn“ er fáanlegur bæði með
drif á afturhjólum eingöngu og drif
á öllum hjólum, og er síðarnefnda
gerðin með „fríkúpplingu“, þannig
að aka má með drifi á afturhjólunum
eingöngu, sé um góðan veg að ræða.
Framh. bls. 42.
Að framan er „Skátinn“ sterklegur
eins og vörubíll, en þó stílhreinn á
sina vísu.
4 VIKAN