Vikan


Vikan - 04.01.1962, Qupperneq 17

Vikan - 04.01.1962, Qupperneq 17
eins og hann væri enn hjá mér. Að minni hyggju er þetta mjög mikil- vægt. Við erum öll samtaka um það á þessu heimili — heimilinu, sem hann unni svo mjög — að reyna að halda öllu sem næst því horfi, er við vitum að hann hefði sjálfur helzt kosið. Clark var húsbóndi á þvi heim- ili — og hann er það enn. Það verður hann alla tíð. Og ég mun aldrei mér að sjálfráðu breyta gegn vilja hans í neinu, eins og ég vissi hann i lifanda lífi. En það er svo erfitt að vera án hans. Samlíf okkar var svo unaðs- rikt. Og enn get ég ekki trúað að því sé lokið. Á stundum verð ég þess vör, að ég er að hlusta eftir létta og hraða fótatakinu hans fyrir dyrum úti og bíð þess, að hann opni dyrnar og ávarpi mig gæluorðinu gamla, „mamma", Clark ræddi svo oft um það hversu mjög hann þyrfti mín við. Nú verður mér það ljóst hversu mjög ég þurfti hans við — og svo margra hluta vegna. Kunningjarnir eru alltaf að segja mér að þetta verði allt léttbærara er írá líður. Ekki hirði ég um þá spá. Ég tek það fram, að ég er hvorki að vola né víla, Því að ég veit að honum mundi ekki falla það. Eg á einungis við það, að innst í hugskoti mínu muni mér alltaf veitast það örð- ugt að vera án hans, og ég geri ekki neina tilraun til að breyta því. En ég er staðráðin í að leitast við að verða sífellt sterkari og þrekmeiri. Og eins er ég staðráðin í að stjórna heimili hans eins vel og mér er unnt og annast son okkar og stjúpbörn hans. Líf okkar verður á allan hátt eðlilegt og hamingjurikt og við verð- um stöðugt umvafin ást hans. Ýmislegt annað hefur orðið mér til hughreystingar. Mér hafa borizt bréf svo tugþúsundum skiptir, sem ég geymi í öskjum í litla hvíta borð- inu minu, og þær samúðarkveðjur, sem þau hafa flutt mér, bera vitni slíkri góðvild, að mér hefur hlýnað um hjartaræturnar. Að sjálfsögðu hef ég alltaf gert mér grein fyrir þvi að hann var heimsfrægur maður. Ég vissi að hann átti milljónir aðdá- enda í bókstaflegum skilningi. Ég vissi að karlar sem konur og á öllum aldri og stéttum, dáðu hann og virtu. En þó ég hefði lengi gert mér allt þetta ljóst, varð ég í sannleika sagt bæði undrandi og djúpt snortin af þvi hversu almenn hluttekning mér var sýnd við andlát hans, og hve margir gerðust til að samfagna mér við fæð- ingu sonar hans. Vera má að undrun mín hafi átt rætur sínar að rekja til þess, að maðurinn, sem ég unni skyggði jafnan á þann mann fyrir mér, sem fólkið unni og þvi hafi ég ekki getað gert mér grein fyrir Því til hlýtar hversu djúplæg og sönn aðdáun þess var. Og Þó má vera aö sú ímynd, sem ég gerði mér af honum og sú ímynd, sem fjöldinn gerði sér af honum, hafi ekki verið svo ýkja ólíkar hvor annari. Ég sagði að öll þessi bréf hefðu snortið mig djúpt. Meira en það — fyrirbænir alls þessa fólks og víðtæk, næm samúð þess, hafa kennt mér sanna auðmýkt. Ég segi það af ein- lægni. Hafi nokkuð það verið í fari manna, sem eiginmaðurinn minn gat ekki þolað, var það að látast vera einlægur. Fjöldi fólks sendi gjafir; það sendi John ísaumaða skó, leikföng og bleyjunælur og mér sendi það fallega vasaklúta, jafnvel málaðar myndir af Clark og litla drengnum, sem gerð- Clark í einkennisbúningi — í al- vöru, því hann tók þátt í siðari heimstyrjöldinni sem flugmaður og og gat sér góðan orðstír. Þegar styrjöldinni lauk, var hann orðinn niajór í bandaríska flughernum. ar höfðu verið eftir blaðaljósmynd- um. Einnig bárust okkur verndar- gripir, sem höfðu verið sérstaklega vígðir og blessaðir. Fyrst eftir að öll þessi bréf tóku að berast reyndi ég að svara þeim sjálf. En ég komst brátt að raun um, að ég hafði ekki likt því við póst- inum, enda þótt ég nyti aðstoðar Elisabeth systur minnar og einkarit- ara Clarks. Og þegar svo þar við bættist, að fjöldi bréfritara bað mig að senda sér mynd af litla drengnum eða Clark, eða eitthvað til minningar um þá, furðar engan á þvi þótt ég gæti ekki orðið við þeim óskum. Hinsvegar er það ósk mín og von, að þessi bók megi flytja innilegustu þakkir mínar sérhverjum þeim, sem dáði eiginmann minn og þótti vænt um hann og sýnt hefur bæði mér og hinum unga syni hans góðvild sína. Nú vil ég veita þeim hlutdeild i un- aðsríkum endurminningum mínum um sambúð okkar Clarks, og ef til vill verða hugleiðingar mínar líka ein- hverjum þeim að liði, sem harma horfinn ástvin. Að sjálfsögðu áttum við Clark lika þau leyndarmál, sem ég geymi í hjarta mér og tek með mér í gröfina. Hvað myndirnar I bók þessari snertir, get ég ekki sagt með sanni að Clark hafi haft sérstakt dálæti á nokkurri þeirra. Hann hafði aldrei dálæti á neinni mynd af sér annarri fremur. I sannleika sagt varð ég þess aldrei vör, öll þau ár sem ég þekkti hann, að hann hefði minnsta áhuga á ljósmyndum af sér. Hann var ein- faldlega ekki þessháttar manngerð. Þegar honum voru tilkynnt úrslit síðustu skoðunarkönnunar varðandi almenningshylli hans, lét hann sig Það engu skipta. Sjálfur var hann ekki þannig gerður, að hann gæti dáð þann glæsilega draumaprins kvik- myndatjaldsins, Clark Gable. Samt er það ein af myndunum af honum, sem mér þykir vænzt um. Ég virði hana fyrir mér á hverjum degi, þar sem hún stendur í einfaldri silfurumgerð á náttborðinu við rekkju okkar. Og sama mynd í samskonar umgerð stendur á borði við vöggu Johns Clark i barnaherberginu. Clark furðaði sig dálítið á þvi að ég skyldi velja einmitt þessa mynd. „Þetta er gömul mynd,“ sagði hann. „Hefurðu tekið eftir hvað gerðin á fötunum er gamaldags? Að hvaða leyti finnst þér hún taka öðrum fram?" Mér fannst myndin sýna það, sem ég hef alltaf séð fyrst og fremst i fari og framkomu eiginmanns mins; heiðarleik og hreinskilni, kraft og karlmennsku — en um leið ljúf- mennsku hans og næman skilning. Og einnig það, sem ég dáði ekki hvað sízt, kímni hans, heillandi græzkulausa kímni. Vegna þess hve Clark var dulur maður að eðlisfari — hann var í rauninni ákaflega hlédrægur — voru Framhald á bls. 38. Clark Gable og síðasta eiginkona hans — Kalhleen — höfundur bók- arinnar, Clark Gable, eiginmaður minn, sem „Vikan“ flytur nú les- endum sínum í óstyttri þýðingu.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.