Vikan


Vikan - 08.02.1962, Page 2

Vikan - 08.02.1962, Page 2
þúsundir króna árleRa með ]iví að kaupa mjólk í eigin umbúöum. Þessir plastbrúsar eru algjör nýjung hér, tilvaldir fyrir bæði heita og kaida drykki. ÓBRJÓTANDI FISLÉTTIIt ÞOLA SUÐU Þeir kosta í heildsölu kr. 89.00 — 4ra lítra og kr. 65.70 — 2ja lítra. Valafcll Garðastræti 2, sími 16976. Forsíðan Halldór Pétursson hefur teiknað ofurlitla hugleiðingu urn samgöngu- mál utan á Vikuna að þessu sinni. Fjölskyldan á rauða bílnum hefur hætt sér út á ókunna stigu, hvort sem það var að þörfu eða óþörfu. Bíllinn hefur líklega drepið á sér í ársprænunni og fjölskyidan hefur neyðzt til að fara út og ýta. En það tók ekki betra við, þegar upp úr ánni kom: I brekkunni var semsagt aur upp í mjóalegg og þar sat far- kosturinn endanlega fastur, allur útmakaður í rnold og mannskapur- inn þó sýnu verri ásýndum. Þá ger- ist það, að piltur einn kemur að- vífandi á Faxa gamla og Faxi á ekki í neinum erfiðleikum með að komast áfram. Faxi gamli er nefni- lega öllu heppilegra farartæki en bíll á mörgum af þessum svoköll- uðu vegum. Og það kemur fyrir ekki, þegar bílstjórinn býður slétt skipti á Faxa og þeim rauða í aurnum. Drengurinn skilur, að Faxi er miklu öruggari og hann hafnar boðinu með fyrirlitningu. Einkaritarinn minn skilur mig ekki, Pálína! Æ-já. Það er alveg satt. Sjúkling- urinn á 15 er hitalaus, hefur engan púls og enga öndunarerf- iðleika lengur, — og það er allt!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.