Vikan


Vikan - 08.02.1962, Blaðsíða 29

Vikan - 08.02.1962, Blaðsíða 29
* T '4 'HUpnaf0 ciju, öcíu S HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.). Vikan verður í flesta staði hin ánægjulegasta, þó gæti samt smáatvik orðið til þess að varpa skugga á hana, ef þú ert tilfinningasamur. Þú hefur vanrækt eitt skyldustarf þitt undanfarið, og ef Þú lætur nú ekki hendur standa fram úr ermurn, mun fara illa. Ann- ars er mikil rómantík yfir vikunni. Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Allt sem þú gerir í vikunni, virðist fremur tilviljunarkennt. Þú verður að setja þér einhverjar framtiðaráætl- anir, í stað þess að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Þú virðist hættur að taka nokkrum framförum i bili. Gamall kunningi þinn kemur skyndilega talsvert við sögu. Heillalitur grænleitt. TviburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þessi vika er vika húsmæðranna — allt virðist leika í lyndi fyrir þeim. Þó þurfa þeir, sem ekki sinna hús- móðurstörfum ekik að örvænta, því að vikan virðist ætla að verða mjög þægileg fyrir flest- alla. Nú virðist rétti tíminn til þess að glíma við það verk- efni, sem varð þér ofviða fyrir skemmstu. Krábbamerkiö 22. júní—23. júlí): Þú munt þurfa að glíma við erfitt verkefni í vikunni, og hætt er við að það verði ýmis ljón á veginum. En ef þú gefst ekki upp, munu endalokin verða góð. Þú verður að fara varlega með peningana — sann- leikurinn er sá, að þú hefur sóað þeim í einskisnýta hluti undanfarið. Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Það virðist flest leika við Þér í þessari viku, og gangur það svo langt, að þér virðist þú fær í flestan sjó og leggur því út í eitthvað, sem þér er algerlega ofviða. Endalok þess máls verða þó allt annað en leiðin- leg. Einhver fjölskyldumeðlimur kemur þér þægilega á ó- vart-ríim eða eftir helgina. ^ Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Vikan verður yfirleitt mjög ánægjuleg. Þó gæti gagnrýni orðið til þess að koma þér í illt skap — því miður er þó sannleikurinn sá, að þessi gagnrýni er fyllilega réttmæt, og ef þú er gæddur nokkrum mapn- dómi, ættir þú að sýna þeim, sem þig gagnrýna, að þú getur gert betur. Þú ferð í skemmtilegt samkvæmi um helgina. VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú virðist allt of svartsýnn þessa dagana, og það mun koma i Ijós innan tíðar, að svartsýni þín hefur verið al- gerlega ástæðulaus. Að vísu mun allt ekki ganga sem bezt á fimmtudaginn, en það mótlæti verður einungis til þess að kenna þér mikilvæga lexíu. DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú munt eiga mjög annríkt í vikunni, og hætt er við að þú ráð- ir alls ekki fram úr því, sem ætlazt er til af Þér. Leggðu samt ekki árar í bát, því að þín biða ró- legar vikur. Þér græðist fé skyndilega og óvænt. Þú sagðir eitthvað í vikunni sem leið, meira í gamni en al- vöru, en í Þessari viku muntu komast að því að þetta er háalvarlegt mál. Heillatala 5. Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Þessi vika verður mjög ánægjuleg, einkum þó heima við, því eitthvert smáatvik á vinnustað gæti orðið til þess að valda þér talsverðum áhyggjum Þú færð að glíma við nýstárlegt verkefni í vikunni, og verður það til Þess að áhugi þinn á einhverju svipuðu vaknar. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú munt eiga óvenju annríkt í vikunni, svo að þú getur naum- ast gert þér neinar vonir um frístundir. Ef þú verður að velja milli skyldustarfa og áhugamála, skaltu umfram allt láta skyldustörfin verða ofan á. Það verður einhver breyting á lifi þínu í vikunni, og verð/.r líklega einhver ættingi þinn til þess að þessi breyt- ing (jfer fram að ganga. Heillalitur rautt. SVatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.) :Áberandi meðvindur i vikunni. Gömui ósk þín rætist til einhverra muna, en allt virðist benda til Þess að hún rætist ekki að fullu fyrr en svo sem að ári liðnu. Þetta verður mjög ánægjuleg vika fyrir unga elskendur, og ef eitthvað hefur valdið þeim kvíða til þessa, mun sá kvíði hverfa eins og dögg fyrir sólu. FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Það gerist fremur lítið markvert í þessari viku, en allt bend- ir þó til þess að hún verði síður e nsvo leiðinleg, Þér gefst nægur tími til hvildar, og þú þarfnast einmitt hvíldar eftir amstur síðustu viku. Þú ættir að nota frístundir þínar til þess að svara nokkrum bréfum. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til föstudags. CERTINA-DS Hér er úrið, sem heíir alla þá kosti- sem karlmaður óskar eftir. Hér er heimsins sterkasta úr. Samt er það svo fallegt, að hver og einn getur notað það við öll tækifæri. Oss heíir tekizt að framleiða - með algerlega nýrri tækni - úr, sem standast högg, sem myndu gersamlega eyðileggja önnur úr. Ennfremur eru CERTINA-DS sjálf-vindandi, vatns- og höggþétt (reynd undir 20 loftþyngdarþrýstingi). Og að sjálfsögðu afar nákvæmt og reglulegt....sem sæmir CERTINA. & CERTI NA-DS Selt og viðgert i rúmlega 75 löndum , CERTINA Kurth Fréres, S.A. Grenchen, Sviss

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.