Vikan - 08.02.1962, Blaðsíða 12
En mynd
þarf helzt
að fylgja
Séð nokkra fallega stúlku nýlega? Jú, það hlaut
reyndar að vera. Fallegar stúlkur eru hreint ekki
svo sjaldgæfur hlutur á Islandi. Þú þekkir ef til
vill einhverja, sem þú mundir álíta, að gæti fetað
í fótspor okkar ágætu fegurðardrottninga að
líndanförnu, sem hafa orðið landi og þjóð til sóma.
Jafnvel önnur, þriðju og fjórðu verðlaun eru mjög
eftirsóknarverð og bjóða tækifæri, sem annars er
erfitt að fá. Þú mátt gjarnan láta okkur vita, ef
þú veizt af einhverri stúlku, sem þér finnst af-
burða fögur. En það þarf helzt að fylgja mynd.
Það berast svo margar ábéndingar, að óhjákvæmi-
lega koma þær fyrst til álita, sem við höfum mynd-
ir af. En munið, að ábendingar þurfa að berast
mjög fljótlega, ef unnt á að vera að athuga málið.
1. verðlaun
2. verðlaun
Tvær sem notað
hafa tækifœrin
Sigurvegarinn í keppninni — Ung-
frú ísland 1962 — fær mikil verð-
laun fyrir utan drottningartitilinn.
Skal þar fyrst nefna ferð til Langa-
stands í Kaliforníu til þátttöku í
keppninni „Miss International
1963“ Þá verður flogið frá Reykja-
vík til New York og þaðan yfir
Bandaríkin til Langasands. Innifal-
ið í verðlaununum er hálfsmánaðar
uppihald á Hótel Lafayette á
Langasandi, bíll og bílstjóri allan
tímar.n og 100 Bandaríkjadalir í
skotsiífur. Þá fylgir einnig kvöld-
kjó 1 og undirfatnaður.
Ferð til Beirut í Libanon til þátt-
töku í keppninni „Ungfrú Evr-
ópa“ 1963. Þá verður flogið héðan
til Kaupmannahafnar, dvalið þar í
2 daga, flogið til Frankfurt í Vest-
ur-Þýzkalandi og dvalið þar einn
dag, flogið til Vínarborgar, þaðan
til Aþenu, Istambul og síðan til
Beirut. Þar verður dvalið í 12 daga
og þátttakendur í keppninni verða
gestir libönsku ríkisstjórnarinnar
og búa á Riviera Hótel.
Fegurðarsamkeppnin býður ekki aðeins utan-
ferðir og glæsileg verðlaun, heldur og tækifæri
sem mega teljast mjög óvenjuleg. Hér hafiö þið
myndir af tveim. íslenzkum fegurðardrottningum
sem vakið hafa hafa athygli og báðar hafa gripið
þau tækifæri, sem buðust. María Guðmundsdóttir
á þó eftir sjálfa eldskírnina, sem er keppnin á
Langasandi í sumar. Hún hefur að undanförnu
ferðazt um Suður-Ameríku með tízkusýningar-
flokki frá þekktu fyrirtæki í París og hefur mjög
góð laun. Sigriður Geirsdóttir — á myndinni til
hægri — starfar nú í Hollywood; hefur leikið þar
í kvikmynd, tekið þátt í sýningarferðum viða
um heim, er mjög eftirsótt fyrirsæta og hefur ca.
tíföld mánaðarlaun islenzkrar skrifstofustúlku.
3. verðlaun
4.-5. verðlaun
i
Ferð til Miami Beach í Florida,
Bandaríkjunum, til þáttöku í
keppninni Miss Universe 1962.
Flogið verður frá Reykjavík til
Parísar og staðið þar við í 4—6
daga og búið á Hótel Napoleon.
Flogið frá París til New York og
dvalið þar í 5 daga og síðan til
Miami Beach. Þar verður búið á
einu af hinum dýru lúxushótelum
á ströndinni frægu og skotsilfur
er hundrað Bandaríkjadalir.
Að öllum líkindum verða þessi
verðlaun fólgin í ferðum á „Miss
WorId“-keppnina í London og
„Miss Istambul“-keppnina í Tyrk-
landi. Það er þó ekki fyllilega
ákveðið, en ákveðið er, að þessi
verðlaunahafi fái vandað arm-
bandsúr frá Magnúsi Baldvinssyni
og módelkápu frá Kápunni h.f.
Það skal tekið fram, að einungis
5 stúlkur komast í aðalúrslit og
þær fá allar verðlaun eins og hér
hefur verið greint frá.
12 VIK