Vikan


Vikan - 08.02.1962, Page 17

Vikan - 08.02.1962, Page 17
Breið <*ð ofon mjð um mjuðmir jltór brjóst breiðnr mjnðmir BREIÐ AÐ OFAN, MJÓ UM MJAÐMIR. Yið þann- ig vöxt er ekki rétt að nota flíkur, sem liggja fast að mittinu og betra er að línurnar brotni á bring- unni, t. d .með því að hneppa kjólunum að framan. Aðalatriðið er að fá réttan brjóstahaldara, sem lætur brjóstin sýnast minni. Efnin í fötunum eiga að vera mjúk og snið kjólanna einfalt, ermarnar þröngar. Tvískiptir kjólar fara venjulega vel og mega jakkarnir þá ná niður fyrir mitti, og ef vasar eru hafðir eiga þeir að snúa beint. STÓR BRJÓST OG BREIÐAR MJAÐMIR. Þá á mittið að vera á sínum stað, og stórar síðar peysur eru bannfærðar. Ermarnar eiga að vera þröngar, bolerojakkar eru klæðilegir og klukkusnið, eða prins- essusnið á kjólum og kápum. Drag- ið athyglina að mittinu eða fótun- um, ef hægt er. LONG í MITTIÐ OG STUTTIR FÆT- ur. Síðir jakkar eru óheppilegir, sama er að segja um víðar og síðar peysur og þröng og stutt pils. Það er gott að leggja sem mesta áherzlu á mittið og nota háa hæla, þó ekki hærri en 6 cm. BREIÐAR AXLIR, GRANN- AR MJAÐMIR. Stoppaðar axlir koma auðvitað ekki til greina og stíf og þykk efni og karlmannleg snið mega ekki sjást. Ferköntuð hálsmál eru óheppileg og reynið að draga ekki at- hygli með neinu að öxlun- um. Raglanermar geta verið fallegar og föt, sem víkka út að neðan. Ermalausir og flegnir kjólar að kvöldlagi eru sjálfsagðir fyrir þetta vaxtarlag. Lóng í mittið stuttir^ fmtur Breidnr uxlir groosur mjoðmir VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.