Vikan


Vikan - 08.02.1962, Side 34

Vikan - 08.02.1962, Side 34
 A 10-7-5 y K-5 4 Á-G-7-2 4 K-10-6-3 A K-9-2 y G-8-4 4 K-10-8-6-3 « G-4 é> A-S y 10-6-2 4 9-4 4 Á-D-9-8-7-2 4 D-G-8-6-4 y Á-D-9-7-3 4 D-5 4 5 SpiliS í dag kom fyrir í rúbertu- bridge. Suður endaði í fjórum spöð- um, eftir að hafa sagt báða major- litina en austur hafði sagt lauf. Vestur spilaði út laufagosa, blindur lét kónginn og austur átti slaginn á ásinn. Það var augljóst með tilliti til sagnanna að suður átti bæði fimmlit í spaða og hjarta. Ennfrem- ur var óliklegt að vestur ætti hjón- in í tígli og þess vegna vissi austur að tiguisviningin myndi heppnast. Hvað gat suður þá hagnazt á iaufa- niðurkasti? Hann gat eiginlega ekki átt neina tapslagi nema þá í tromp- inu. Þess vegna spilaði austur i öðr- um slag laufadrottningu og fríaði þar með tíuna í borði. Suður tromp- aði með lágspaða og spilaði siðan út spaðasexi. Vestur lét tvistinn, blindur tíuna og austur átti slaginn á ásinn. Hann spilaði meira laufi og suður var varnarlaus. Hann kaus að henda tígli og vestur trompaði með níunni. Hefði hann trompað með háspili, verður vestur aðeins að passa að trompa ekki yfir. Suður getur samt unnið spilið. Hann verður að spila hátrompi að heiman þegar hann trompar út i fyrsta sinn. Þá þegar austur drepur slaginn og spilar laufi, getur sagn- hafi stungið frá. Trompi vestur yfir, þá getur suður tekið trompið af honum með tiunni i borði. Gefi vestur, þá spilar sagnhafi á 10—7 borðinu. Það borgar sig ekki alltaf að fria lit fyrir sagnhafa, en þegar staðan kemur upp, er auðvelt að koma auga á hana. Venjulega gefa sagn- irnar þá einna beztar upplýsingar en auðvitað geta afköst félaga einnig hjálpað töluvert til. Aldarspegill. Framhald af bls. 15. irnir skipulegir, enda vakað yfir þessu öllu af ódrepandi þrautseygju og áhuga. Gisli gengur um heimilið og allar stéttar þess oft á dag og litur eftir öllu, er mjög strangur og tiltektarsamur me'ð allt, enda hefur hann ekki lengi i þjónustu heimilisins, menn, sem ekki gegna störfum sínum af kostgæfni. Inni í heimilinu er allt í röð og reglu, allt bjart og hreint svo að hvergi sér gróm og er þó erfitt að halda slíku á elliheimilum. Gólfin hafa öll verið gljáborin og sama hvenær komið er í heimsókn þar má næstum spegla sig í gólfum og veggjum. Nú er i ráði að breyta nokkuð til hið innra og mun verða teppalagt. Þann- ig byggir Gísli Sigurbjörnsson upp smátt og smátt. En Gísli hefur ekki látið sér nægja eitt ellihemili. Hann setti upp sam- kvæmt beiðni elliheimilið í Hvera- gerði og rekur það eftir sömu regl- um og elliheimilið í Reykjavík. En í Hveragerði hefur hann meira oln- bogarými — og meiri umsvif. Hann kaupir hús, breytir þeim, gerir þau ný og vistleg. Hann setur og upp gróðurhús og kaupir gömul. Siðast keypti hann svokallaða „Lönguvit- leysu“. Það er orðið eitt lengsta og stærsta gróðurhús í Hveragerði og fékk nafnbótina af þvi, hvað það var langt, garðyrkjumönnum fannst það allt of langt. En Gísli keypti það og óttaðist ekki lengd þess. Kirkja á að koma í Hveragerði á fallega hæð fyrir framan hús elliheimilis- ins. Hann hefur mikinn áhuga á þessari kirkjubyggingu og hefur lof- að myndarlegu framlagi og allri þeirri aðstoð, sem hann getur í té látið. Hann er alltaf á þeysingi milli Reykjavikur og Hveragerðis. Á morgnana gengur hann um lönd heimilisins og á sumrum með vettl- inga, klæddur vinnufötum og með trjáklippur í hendinni eða einhvers- konar rifjárn. Þá klippir hann óþol- andi angalíur af trjánum, eða hann skefur upp grasskúfa, sem gægjast upp á milli hellnanna, en allt er hellulagt fyrir framan grindurnar og allar gangstéttir og allt eggslétt, snoturt og fagurt á að líta. Hann er að reyna að kenna þorpsbúum snyrtimennsku, en það gengur erfið- lega. Einu sinni kom sá er þetta rit- ar að grindunum umhverfis elliheim- ilið og hitti fyrir garðyrkjumann, sem var að vinnu. Hann sópaði og skóf og slcóf og sópaði: „Þið eruð nostursamir,“ sagði ég. „Hefur þetta ekki áhrif á nágrannana?“ Garð- yrkjumaðurinn leit upp og brosti. „0, jú,“ sagði hann. „Það kemur bráðum. Þeir eru að byrja að sópa kringum sig.“ IV. Hér hefur nokkuð af starfi Gísla Sigurbjörnssonar verið rakið, en 34 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.