Vikan


Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 27

Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 27
CONDOR litaðist um á listasafninu og gætti þess vandlega að láta ekki á því bera, að hann hefði neinn sérstakan áhuga á hinu fræga Tineretti málverki, en i hugan- um sá hann fyrir sér verðmiðann, sem ekki var neitt smáræði: 30.000 pund! Það glampaði á ermahnappa úr gulli, um leið og hann tók utan um snotra, ljóshærða stúlku, sem var í fylgd með honum. — Nú eru aðeins tvær mínútur, Þang- að til safninu verður lokað, sagði hann i ofvæni. — Það er ágætt að við getum bráðum tekið til starfa! — Þú ert ekki í neinum vafa um hvað þú átt að gera? — Þetta finnst mér nokkuö langt geng- ið hjá þér Max, sagði hún gröm. — Það mætti halda að ég hefði engan áhuga á fyrirtækinu, viðvíkjandi peningunum meina ég. Condor hló með sjálfum sér. Lola ætti bara að vita, að hann ætlaði að vera búinn að losa sig við hana löngu áður en hinn geggjaði listasafnari í Hollandi hefði borgað hinn stolna Tineretti: „Kon- an i grasgarðinum“. Hann leiddi hana inn í salinn, þar sem vatnslitamyndirnar Sakamálasaga eftir Ron Davis voru geymdar. Þau námu staðar við stóra, nokkuð ormsmogna eikarkistu frá 14. öld. — Hérna átt Þú að gista í nótt, ástin mín! Hún hélt á hitabrúsa og matarskríni, og smeygði sér niður í kistuna, eins fim- lega og hún hefði gert áður fyrr, þegar hún vann sjá sjónhverfingamanni i fjöl- leikahúsi, og þurfti að smeygja sér inn og út um skápa og skúffur. Hún leit á hann, þar sem hún lá á koddanum, sem var samanvafið minkasláið hennar. Hún var svo yndisleg, að hann hefði sennilega orðið ástfanginn af henni, ef hugur hans hefði ekki verið bundinn við allt annað — sem sé peninga. — Ertu nokkuð taugaóstyrk, Lola? Dökk augun hennar skutu gneistum. — Ég? Taugaóstyrk?, sagði hún og fékk sér tyggigúmmí. — Ég hef ekkert á móti því að dvelja eina nótt innan um þessi gömlu, rykföllnu málverk. Þau bíta ekki, og ég veit að þú hefir skipulagt þetta allt með þinni venjulegu ná- kvæmni — og það var mikil forsjálni hjá þér að koma mér fyrir i þessari gömlu kistu, sem er svo ormsmogin, að engin hætta er á að ég kafni í henni. Hann lyfti hendinni í aðvörunarskyni, þegar safnvörður, sem var að fara fram í stóra salinn, gekk fram hjá. — Góða nótt, ástin mín, sagði hann fljótmæltur. Nú verður þú alls ráðandi í allri dýrð- inni, þegar starfsfólkið er farið. Við sjá- umst á morgun! Hún brosti út i annað munnvikið. — Sofðu vel i fína hótelrúminu þínu, Max. Á morgun veitir þér ekki af að vera út hvildur! Hann kinkaði kolli. — Ég sef áreiðan- lega vært, sagði hann brosandi. Síðan lokaði hann kistunni, og gekk rólega fram að dyrunum. Á leiðinni til gisti- hússins, varð honum hugsað til þess, sem Lola hafði sagt um nákvæmni hans og forsjálni. Það var orð að sönnu. Hann hafði byrjað að undirbúa þetta af stök- ustu nákvæmni, fyrir hálfu ári síðan, þegar hann las blaðafyrirsögnina: Auð- kýfingur gefur verðmætt Tinerettimál- verk. Ný sjúkrahúsálma og stækkun al- menna bókasafnsins. Hann brosti til stúlkunnar, sem sat við skiptiborðið í forsal gistihússins. — Mig langar til að biðja yður að vekja mig kl. 5:45 í fyrramálið, ungfrú. Það er herbergi nr. 23. •— Ætlið þér að fara svona eldsnemma sneri sér beint að efninu án þess að gefa gaum að kvíðasvipnum, sem færð- ist yfir andlit hennar. — Eins og Þú sérð, er þetta afar auðvelt. Lola, sagði hann og fitlaði við smápeninga, sem hann hafði í vasanum. — Þú þarft bara að aðstoða mig við að komast yfir eina smámynd, og þú færð 2000 pund að launum. Hún hafði ekki augun af löngum, rauð- um nöglum sinum. — Mér þykir þetta leitt, Max, sagði hún að lokum. Ég get ekki tekið þátt í þessu. — Þér er ekki alvara, Lola? Hún brosti. — Lestu ekki blöðin? Það hvíla einhver álög á þessari mynd. Ólán- ið hefir elt alla, sem hafa átt hana, og hún er í okkar eigu, þangað til við af- hendum hana. Condor áttaði sig strax. Það var alveg rétt að auðkýfingurinn, sem hafði arf- leitt listasafnið að málverkinu, hafði framið sjálfsmorð, og marga fyrri eig- endur þess hafði hent einhvers konar ógæfa. Hann kveikti i sígarettu, meðan Lola hellti víni í glösin. Hann varð að reyna að ráða fram úr þessu. Lola var spengileg og stælt, og mjög vel til þess fallin, að inna það hlutverk af hendi, sem hann hafði ætlað henni. á fætur? sagði hún brosandi. — Þér eigið kannske annrikt á morgun eins og borgarstjórinn? — Hvað eigið þér við? Hún benti á stórt auglýsingaspjald á veggnum. — Hann á að opna hina nýju deild bókasafnsins, og síðan þarf hann að vera viðstaddur vígsluhátíð í nýju sjúkrahúsálmunni, og að lokum á hann að veita málverkinu viðtöku við opin- bera athöfn á listasafninu. Þetta verður mikill merkisdagur í sögu bæjarins. Condor kinkaði kolli með óræðu brosi. •— Já, svaraði hann hikiaust. — I’að er ég sannfærður um! Þegar hann var háttaður, fór hann að hugsa um, hversu heppinn hann hefði verið að fá Lolu sér til aðstoðar. Hún var kæn stúlka, enda Þótt hún væri nokkuð skapmikil og hjátrúarfull. Hún hafði legið á legubekknum, þegar stúlkan hleypti honum inn i ibúðina hennar. —- Max! hrópaði hún forviða. — Setztu hérna hjá mér á legubekkinn. Ég var einmitt að lesa það í stjörnuspánni, að ég mætti eiga von á manni í heimsókn, sem heföi einhverja góða tillögu fram að færa. — Hún er alveg stórkostleg! Hann —• Hvað er að heyra til þín, Lola, sagði hann rólega. — Þú leggur þó ekki trúnað á slíkan þvætting? — Það er svo margt, sem við ekki skiljum, Max, sagði hún. — Gagnvart því má maður ekki sýna neina léttúð. — Það var ekkert yfirnáttúrlegt við sjálfsmorð auðkýfingsins, sagði Max dá- lítið óþolinmóður. — Kona hans hljóp á brott með öðrum manni — þetta er ekki nema það sem gengur og gerist, og ef þú athugar dálítið nánar, það sem hefir hent hina eigendur málverksins, muntu einnig fá raunhæfa skýringu viðvíkjandi því. Loksins tókst honum að sannfæra hana, en það hafði ekki verið auðvelt, en samt hafði honum tekizt Það, og hann óskaði sjálfum sér til hamingju með þessi góðu málalok um leiö og hann lagðist til svefns. Morguninn eftir vaknaði hann strax þegar hótelþernan barði að dyrum. Hann rakaði sig, klæddi sig og snæddi morg- unverð, síðan hlóð hann skammbyssuna og gekk út í hálfrokkið dagsljósið. Þetta var dýrðlegur morgun, sem myndi ná hápunkti sínum, þegar safnverðirnir yrðu þess varir, að hin dýrmæta Tiner- Framhald á bls. 34. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.