Vikan


Vikan - 01.11.1962, Blaðsíða 4

Vikan - 01.11.1962, Blaðsíða 4
For e l<l rai*! Leiðbeinið barninu er það velur sér skólapennann. ¥ Einn þekktasti skóla- frömuður íslenzkra barnaskóla hefur mælt með rKRElJZER pennanum. H KREWZER-pennaverksmiðjan í Ronn, V.-Þýzkalandi átti 25 ára afmæli á s.l. ári og selja framleiðslu sína í 48 löndum í sívaxandi mæli. EF ÞÉR VILJIÐ SKRIFA VEL ÞARF PENNINN AÐ VERA GÓÐUR. K R E W Z E R - penninn f æst í næstu búð. Einkaumboð: H. A. Tnlinins Heildverzlun. Fullhá rukkun ... Kæri Póstur. Ég var að fá rukkun frá einu dagblaðinu hér í bænum fyrir september. Upphæðin var upp á greiðslu fyrir allan mánuðinn. Ég man ekki betur en prentaraverkfall hafi verið um % hluta september- mánaðar, og kómu blöðin þá ekki út. Ég vil fúslega greiða það, sem mér ber, en ekkert þar fram yfir. Að vísu má segja, að mig eða hvern annan einstakling muni ekki mikið um 12—15 krónur, en mér skilst, að þetta verði álitleg upphæð í vasa blaðanna. Upplag blaðanna mun vera frá 5000 til 25000 eintök, svo að þau eru með þessu að næla sér í frá 25000 til 375000 krónur. Ég er ekki prentari og átti engan þátt í þessu verkfalli, svo að blöðin hafa enga kröfu á hendur mér vegna þess. Ég er algjörlega mótfallinn því að gefa blöðunum nokkuð, ég held, þau þarfnist þess ekki, svo að það er áskorun mín til þeirra, að þau gefi þetta, sem þau eru að snuða mig og aðra um í einhvern líknarsjóð. Spælegg ... Kæri Póstur. Mér hefur yfirleitt fundizt Vikan svona heldur sæmilegt blað, en um daginn varð mér ekki um sel. Fyrst kom heil síða, sem bókstaflega ekk- ert var á, annað en svört klessa og áskorun til auglýsenda um að aug- lýsa í Vikunni. En bíðum við — í næstu viku á eftir kemur heil opna, sem ekkert er á nema einhver glóð- araugu eða spælegg eða ég veit ekki hvað, og svipuð áskorun! Ég trú varla, að nokkur auglýsandi vilji auglýsa í blaði, sem vantar stórlega efni, ýmist á eina síðu eða tvær opnur. Reynið heldur að fylla blaðið af efni og auglýsingum, því þangað leitar auðurinn, sem hann er fyrir, og svo hlýtur einnig að vera með auglýsingarnar. Með fyrirfram þökk. Gósi. -------Það er ekki oft, sem les- endur skrifa Vikunni einungis til að minnast á auglýsingn í blaðinu, en þetta er þá eitt dæmi þess. Tilgangurinn með auglýs- ingum er, að eftir þeim sé tekið — og þú hefur greinilega tekið eftir þessum auglýsingum okkar svo um munar — og þá er til- ganginum náð! 65 kall ... Heiðraði Póstur! Mig langar að vita, hvernig á því getur staðið, að miðinn á 79 af stöðinni kostar 65 krónur — segi og skrifa sextíu og fimm kall! Venjulega kosta bíómiðar 21 krónu, og maður gæti skilið það, ef þessir miðar kostuðu helmingi meira — 42 krónur. En 65, drottinn minn sæll og góður. Ég vissi ekki betur, en þessi mynd væri gerð með utan- landsmarkað fyrir augum, og hvað á það þá að þýða, að okra svona á manni! Ef myndin væri einungis gerð fyrir innanlandsmarkað, gæti maður skilið að miðaverðið þyrfti að vera hátt, en ég býst ekki við, að nokkur maður — í hve hárri stöðu sem hann er — sé svo vitlaus að gera dýra kvikmynd eins og 79 af stöðinni og ætli að ná kostn- aðinum upp á innanlandsmarkaði. Fátækir barnamenn sem hafa gam- an af að lesa Indriða hafa bara alls ekki efni á svona ráðslagi, og ég er viss um, að þessum skagfirzka náttúrukrafti er enginn greiði gerð- ur með því að gera fólki svona erfitt að kynnast verkum hans. Með svona gauragangi fer Edda film á hausinn áður en hún hefur nokurn tíma komizt á fæturna. Jón Guðmundsson, Reykjavík. --------Edda film um það — og við um það, hvort við látum plata okkur til að kaupa miða. t Kannski er þeim einhver vor- kunn. Ég er ekki viss um að það sé mikill markaður erlendis fyr- ir svona mynd. Ætli t. d., ja, segj- um Tyrkir myndu hugsa sig um lengi, ef þeir ættu að velja á milli þess að sjá mynd með C. Gable og S. Loren annars vegar og G. Eyjólfsson og K. Kjeld hins vegar? Jómfrú ... Kæri Póstur! Hvað þarf maður að vera og kunna, til þess að geta orðið jóm- frú á skipi —- skipsjómfrú? Ég er 17 ára gömul og hef landspróf, og í sumar var ég þerna á hóteli úti á landi. Nú langar mig svo mikið að komast í millilandasiglingar, en það er ekki hægt, af því maður er ekki strákur, nema vera skipsjóm- frú. Ég er sterk og ekki sjóveik og alveg ólöt — er það ekki nóg? Alda Bára. --------Ég held þetta hljóti að vera miklu meira en nóg. Ég óska þér svo góðs gengis, í þeirri von að þú hreppir jómfrúartit- ilinn. Þú mátt jafnvel fljótlega búast við að hækka í tign — eða a. m. k. skipta um titil. í skólanum ... Kæra Vika. Ég var að hugsa um að fara í heimavistarskóla næsta vetur (gagnfræðaskóla) á Norð-Austur- eða Suðurlandi. Og ætlaði að biðja þig að vísa mér á einhvern góðan skóla og gefa mér einhverjar upp- lýsingar. Ein 15 ára. P.S. Vonast eftir svari fljótlega. Á þessu svæði eru þó nokkuð margir skólar, Laugaskóli, Eiða- skóli, Skógaskóli og Laugarvatns- skóli — guð fyrirgefi mér, ef ég hef gleymt einhverjum. En ég er hræddur um, að það yrði illa upp tekið, ef ég færi að taka einn þessara skóla fram yfir aðra, en samkvæmt minni reynslu myndi ég helzt kjósa þann skóla, sem fæsta hefur nemendurna. Nú skaltu skrifa þessum skólum og spyrja, hve margir nemendur

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.