Vikan


Vikan - 01.11.1962, Blaðsíða 18

Vikan - 01.11.1962, Blaðsíða 18
SVAVAR GESTS SKRIFAR UM LOKSINS ÁNÆGÐUR MEÐ HLJÓMSVEITINA Hljómsveit Svavars Gests skrapp í sjóferð um daginn o.g að sjálfsögðu var ljósmyndari viö- staddur slíkan merkisviðburð. Frá vinstri: Ragnar Bjarnason, Gunnar Pálsson, Reynir Jónas- son, Garðar Karlsson, Svavar Gests og Magnús Inpimarsson. Við fréttum af breytingum í hljómsveit Svavars Gests, og þar sem hljómsveitin er valinkunn og talin bezt í kosningunum hjá okkur í vor, þá datt okkur í hug, að ræða við Svavar um þessar breyt- ingar og fá hann til að leysa frá skjóðunni um eitt og ann- að varðandi hljómsveitina. -- Við höfum heyrt, að þú ætlir að breyta til um menn. Reynir Jónasson er um þessar mundir að taka sitt gamla sæti í hljómsveitinni og þess vegna hættir Finnur Eydal og þá um leið Helena. — Er ekki óþægilegt að þurfa að skipta oft um menn? — Jú, vissulega. Til að byggja upp góða hljómsveit þarf maður að vera í friði með mannskapinn í minnst ár. Það er ekki þægilegt þeg- ar þeir hlaupa í aðrar hljóm- sveitir eftir fáeina mánuði og búið að leggja mikla vinnu í æfingar og mikla peninga í útsetningar. — Og tekst þér þá að halda mönnum í eitt ár? — Já, þeir eru ráðnir þann- i :. Breytingar eiga sér aðeins st:;ö í október ár hvert, hvorki f/rr e./U seinna þó stundum h’ fi verið heppilegra að skipta um mann. Þetta trygg- ir vinnufrið ef svo má segja 18 VIKAN og tryggir meðlimum hljóm- sveitarinnar góða vinnu í eitt ár. — Þú segir, að stundum hafi verið heppilegra að skipta um mann á öðrum tíma en október, hvað óttu við með því? — Til dæmis það, að góður maður kann að losna í ann- arri hljómsveit og eins getur samvinnan innbyrðis hafa versnað. Satt að segja hefi ég verið að leita fyrir mér með menn undanfarin þrjú ár og loksins núna er ég með þá fimm menn með mér, sem ég er fullkomlega ánægður með. Þú getur meira að segja haft það í fyrirsögn á greininni. — Ánægður með? — Já, góðir hljóðfæraleik- arar, líflegir á sviðinu, reglu- samir. Ef sex manna hljóm- sveit á að vera fær um að skemmta nokkur hundruð manns í viku hverri, þá ber svo sannarlega margs að gæta. - Hvernig músík spilið þið? — Dansmúsík, alla algenga dansmúsík. Nýjustu lögin, gömul lög, al'lt milli himins og jarðar. Nefndu lagið og við skulum spila það fyrir þig. Rétt lagaval á hverri skemmt- un eða hverjum dansleik, er alls ekki svo lítið atriði. Margar hljómsveitir hér hafa ekki gert sér grein fyrir þessu og það beinlínis orðið þeim að falli. — Og þetta er kannski leyndardómurinn að hinum miklu vinsældum hljómsveit- ar þinnar? - Getur verið, en hins ber að gæta, að við náum til fleira fólks heldur en nokkur önnur hljómsveit vegna þess að við höfum leikið í þannig veit- ingahúsum. Fyrst í Sjálfstæð- ishúsinu og svo í Lídó. Við leikum fyrir fólk á Öllum aldri, börnin á jólatrés- skemmtununum, fullorðna fólkið á árshátíðunum og unga fólkið, og átti það sérstaklega við þegar við lékum í Sjálf- stæðishúsinu. — Og ekki má gleyma hljómleikaferðum ykkar út á land? — Nei, við höfum farið í þrjú sumur. Þessar ferðir hafa að sjálfsögðu verið erfiðar, við höfum verið með skemmtanir á hverju kvöldi meðan ferðin stóð og stundum tvær. En þetta hafa verið ánægjulegar ferðir, við höfum kynnzt fólki um land allt og eignazt marga kunningja. Og þó að Framhald á bls. 33. ISLAimO SUNNAN Suðurpól. Kæri Björn. Við vorum að tala um dagblöðin í Reykja- vík, ef ég man rétt. Útlendur maður hefur sagt mér, að blaðaútgáfan í Reykjavík muni vera heimsmet — miðað við fólksfjölda, auðvitað. Ég held þegar á allt er litið; að þessi blöð séu alltaf að batna ár frá ári. í gamla daga voru miklu hatrammari skammir í dagblöðunum og það var talað enn verr um pólitíska andstæð- inga. Þetta þykir kannski afturför, en mér finnst það frekar bera vott um menningu. Ástæðan er að miklu leyti sú, að það er komin upp blaðamannastétt á íslandi. Blaðamenn eru orðnir ópólitískir atvinnumenn eins og vera ber, -eða svo er mér tjáð. Þeir skipta oft um, fara af einu blaði á annað. Það hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum. Þá urðu allir blaðamenn við Morgunblaðið að vera sjálfstæð- ismenn og Þjóðviljamennirnir kommar. Reynd- ar er það þannig enn á Þjóðviljanum að því mér er tjáð, enda hentar það vart trúleysingj- um að lifa og hrærast í því umhverfi. Ef það hefur komið fyrir í sumar, að ég hafi skroppið út úr bænum um helgar, hef ég stund- um verið að því kominn að skrifa Velvakanda eða Hannesi á Horninu, svona rétt til þess að fá útrás. Því miður er ég á þeirri skoðun, að það hafi ekki mikil áhrif, þótt ein og ein rödd heyrist um það sem miður fer, ef flestallir þegja og sætta sig við hvað sem er. Hvernig stendur á því, að við þurfum að búa við svona vegi -— jafnt á fíölförnustu leiðum landsins sem afdala- vegum. Sannleíkurinn er nú sá, að afdalavegir eru undantekningarlaust miklu betri, því þar er engin umferð. Það er ómögulegt að koma því ínn í kollinn á mér að fiölförnustu vegir lands- ins eins og leiðin upp í Mosfellssveit úr Reykja- vík og austur yfir fjall, verði að vera svona. Ég hef séð það einhvers staðar á prenti, að komnir séu rúmlega 2000 nýjir bílar til lands- ins síðan um áramót. Það stendur svo sem ekki á ríkisvaldinu að hirða 100% tolla og þaðan af meira af innkaupsverði þessara bíla. Það mætti halda að eitthvað yrði nú gert, sem um munaði. En bíddu bara við, Björn á Norðurpól. Þú skalt sjá, að það verður ekkert gert frem- ur en venjulega. Þótt bílainnflutningurinn tvö- faldaðist og það yrðu fluttir inn 5000 bílar á næsta ári, svo hvergi yrði hægt að komast áfram — þá yrði heldur ekkert gert. Ekkert annað en það að pota mold eða grjóti ofan í hvörfin, sem myndast í öllum vegum á vorin, þe^ar klakinn er að fara úr. Ég var um tíma í sumar á hótelinu á Laug- arvatni og ók þar um næsta nágrenni. Vegur- inn upp að Laugarvatni er svo mjór að það er varla nokkurs staðar hægt að mætast á honum svo vel sé. Og austur Laugardal má heita ger- samlega ófært nema á jeppum eða fjallabifreið- um. Þó er það splunkunýr vegur. Ég veit, að það þýðir ekki néitt að tala um betta. Öllum finnst sjálfsagt, að svona sé það. En hvers vegna gerir ekki einhver stjórnmála- flokkur þetta að pólitísku stórmáli. Það mundi kannski róta við málinu. Við töluðum einhvern tíma um ríkisvaldið og hina dauðu hönd þess. Fyrir mér eru ríkis- afskipti það sama og kyrrstaða og dauði. í nú- tíma þjóðfélagi er það að vísu venjulegt, að ríkið sjái um hluti eins og vegi. En það er líka til, að vegir séu einkafyrirtæki. Þá byggir ein- hver auðugur aðili góða vegi og síðan greiðir maður ákveðið gjald fyrir það að nota veginn. Ef ég byggði steinsteyptan, beinan og breiðan veg norður á Akurevri og tæki 100 krónur fyrir bílinn þinn á þeirri leið — hvað mundir þú gera? Borga mér hundraðkallirm og vera fimm Þ'ma á leiðinni eða hökta á þvottabrettinu í tíu tíma. Vertu blessaður. Þinn einlægur, Brandur á Suðurpól.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.