Vikan


Vikan - 22.11.1962, Blaðsíða 7

Vikan - 22.11.1962, Blaðsíða 7
rifinu sinu og konan afS sínum betri helming. Hagmæltir karlmenn, sem ekki hafa fundiS rifið sitt holdi klædda, yrkja um hörmungar þessa rifjaleysis: Kvenmannslaus i kulda og trekki kúri ég volandi. Þetta er ekki, ekki, ekki, ekki þolandi. Og aðrir kvarta undan þránni: ge-rist þar sem kvenfólk sýslar um hluti og kvenleg umhyggja ræður rikjum. Undirritaður minnist þess með hrolli, er hann var ógiftur að rolast eftir aS föðurhúsum sleppti. íbúðin var eitt herbergi, alltaf inni i íbúð hjá öðrum, og svo hljóðbært, að ekki var hægt að komast hjá því að vita af hverri hreyfingu annarra íbúa íbúðarinnar. í þessum skons- um var ekki einu sinni aðstaða til þess að hita sér kaffi, og ef unnið Séð inn í eldhús Lárusar. LÁRUS INGÓLFSSON Mín þrá er sem úthafsins alda, sem ólmast við hrynjandi sker. Sætleiki kvenholdsins sverfur, siðferðisbjargið í mér. Öðru vísi er hljóðið í þeim, sem hafa fundið sína helft. Þeir heita henni trúnaSi og ást, hvað sem yfir dynur: Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber steinar tali og alt hvað er, aldrei skal ég gleyma hér. ‘'l Samt er það nú svo, aS margir lifa langa, viðburSaríka og hamingju- sama ævi, án þess að finna nokk- urn tíma rifið sitt. AS óreyndu gæti maður haldið, að hýbýli þeirra og umgengni væri frábrugðin þvi, sem var fram yfir hálf tólf á kvöldin, var ekki um annað að ræða en fara svangur í bólið. Einu sinni þurfti ég að vaka yfir nótt við að ljúka ákveðnu verki, og um þrjúleytið var sulturinn farinn að segja illilega til sín. Þá varð það mér til bjargar, að ég átti súpupakka, sem ég hafði fengið á hlutaveltu, og hafði nú ekki önnur ráð en að byrja að maula í mig duftið. Þetla var súpa fyrir átta, og hún smakkaðist prýðilega, ]mtt ósoðin væri, og sultarverkirnir hurfu. En það er ómögulegt að miða ævi- kjör ógiftra manna almennt viS holuhokur stráka, sem hirast ein- hvers staðar í nokkra mánuði eða ár, þar til einhver elskan miskunn- ar sig yfir búslagið og tekur mann- inn að sér. Þeir, sem búast við því, að þeir liitti sina útvöldu á morgun eða hinn daginn og hugsa ekki um kvenfólk sem Jónu eða Gunnu, held- ur sem möguleg eða ómöguleg efni i ektamaka, leggja ekki mikið í það að koma sér þægilega fyrir og nostra í kringum sig. Hinir, þeir sem fella sig bezt við það að vera cngri háðir og öllum frjálsir, haga sinu búskaparlagi i samræmi við það og reyna að lcoma sér fyrir eins og bezt hentar aðstöðu þeirra í lífinu. Þessi munur er glöggt sýndur í kvikmyndinni 79 af stöðinni. Annars vegar kompa Ragnars á Lindargöt- unni, óvistleg og fráhrindandi, ])röng og allt í óreiðu, og hins vegar rúmgóð og hreinleg ibúð Guðmund- ar. Annars vegar er ungur maður, sem lifir fyrir líðandi stund, og treystir því, að þetta ástand sé tíma- bundið, en hins vegar maður, kom- inn á miðjan aldur, rólegur og sátt- ur við sitt líf. Þar sem mikill meirihluti ís- lenzkra karlmanna hefur fundið sér rif, og kann þvi takmörkuð skil á heimilisháttum þeirra, sem eru sjálf- um sér nógir og kosið liafa að þramma sina ævibraut án sam- fylgdar konu, datt okkur í hug, að gaman væri að heimsækja noklcra ókvænta karlmenn — piparsveina, eins og þeir eru gjarnan kallaðir, og kynnast þvi, hvernig þeir búa. Við sömdum lista yfir 25—30 pipar- sveina, og höfðum svo samband við þá. Okkur datt ekki í hug, að menn- irnir gætu haft neitt á móti þessu, en það fór á annan veg. Sumir töldu Framhald á næstu síðu. yiKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.