Vikan


Vikan - 22.11.1962, Qupperneq 41

Vikan - 22.11.1962, Qupperneq 41
nýtt merki iDoniiie ný snið Heildsölubirgðir: E. Valdemarsson og Hirst h.f. Sími 38062. prj. með mynztri eftir skýringar- myndinni, prj. þá 1 umf. með brugðnu prjóni frá réttu. Aukið nú út 14 1. með jöfnu millibili. Prjónið sléttprjón, og aukið út 1 1. í hvorri hlið, í 10. hv. umf., 6 sinn- um. Nú eru 76 1. á prjóninum. Þeg- ar stykkið mælist um 18 cm (mátið hæfilega ermarlengd) er fellt af báðum megin fyrir handvegum 3 1., 2 1. og 3 sinnum 1 1. Þegar stykkið mælist 20 cm eru prj. saman önnur og 3ja hver lykkja, 20 sinnum, með jöfnu millibili. Látið 40 1. sem eftir eru á öryggisnælu. Prjónið aðra ermi eins. Herðastykki: Prjónið nú á hring- prjóninn 32 1. af afturstk., 40 1. af annarri erminni, 62 1. af framstk., 40 1. af hinni erminni og 34 1. af hinum helmingi afturstykkis, í allt 208 1. Prjónið nú 1 umf. sl. frá röngu og síðan 11 umf. sléttprjón. Mynzt- urbekkurinn (7 umf.), er prjónað- ur í miðju þessara 11 umf. Prjónið lykkjurnar á jöðrunum að aftan, áfram með garðaprjóni alla leið að hálsmáli. Takið nú úr 22 1. í einni umf. með jöfnu millibili, þá eru 186 1. eftir á prjóninum og þær síðan prjónaðar með stuðlaprjóni 1 1. br. og 3 1. sl. (frá réttu) 8 umf. Takið þá úr frá röngu þannig: * 1 1. sl., 2 1. br. saman, 1 1. br. * endurtakið frá * til * umf. á enda. Prjónið 6 umf. 1 1. sl. og 2 1. br. og takið þá úr með því að prjóna saman brugðnu lykkjurnar frá röngu, þá eru 96 1. á prjóninum. Prjónið nú 4 umf., 1 1. sl, og 1 1. þr. Takið þá úr 14 1. með jöfnu millibili, þar til lykkjurnar verða 82, prj. þá 11 umf. sléttprjón og mynzturbekkinn 7 umf., í miðju þeirra. Prj. 1 umf. sl. frá röngu og að lokum 10 umf. sléttprj. Fellið laust af. Brjótið nú innaf ermum, hálsmáli og að neðan og leggið niður við með þynntu ullargarninu. Saumið saman ermar og hliðar- sauma með aftursting og þynntum garnþræðinum. Saumið 3 litlar hneppslur á klaufina að aftan, og festið tölur. Leggið rakan klút yfir kjólinn og látið þorna. Maður fær vont bragð ... Framhald af bls. 15. — Eitthvert geðvonzkuhjal? — Já, eittlivert geðvonzkuhjal. — Og staflarðu því upp þarna hjá Skeljungi? — Það fer i ruslakörfuna, þegar ég er búinn að skrifa það sex sinn- um. — Er það um atómskáld? — Já og ekki siður um pólitik. Þvi pólitíkusa tel ég enn síðri atóm- skáldum. — Hefurðu reynt að skrifa eitt- hvað í góðu? — Ég skrifaði ástarbréf til kon- unnar, þegar ég átti hana og varð að vera veturinn að heiman. — Voru þau bréf nokkurn veginn laus við skammir? — Geri ráð fyrir því, já. — Það hlýtur að vera gott að sinna andlegum hugðarefnum í næturvörzlu. — Ég geri ráð fyrir þvi, að þú þættist hafa unnið allgott og þarft verk, ef jíú kæniir mér í það starf er ég gæti síður sinnt andlegum hugðarefnum i. Og þó munar líklega lítið um mig. — Ég gæti trúað, að einhver fái hiksta að næturlagi, þegar þú hug- leiðir skáldskaparmál í einverunni í Skerjafirði. — Þeir sofa svo fast þcssir moð- kálfar, að þeir verða þess ekki var- ir þó þeir hiksti i syefni. — Nokkrir draugar þér til sam- neytis þarna útfrá? — Nei, ég er einn og fer vel á þvi. Það hallast þá ekki á um gáf- urnar, þegar maður talar við sjálfan sig. — Yrkirðu ekki um olíu i návist þessara hrikalegu olíutanka? — Nei, en einstaka næturstemn- ingar. Til dæmis þessa: Ótt nú styttist til óttu af hefur myrkur svifið birtast bjartlega snyrtar bárur, en vindar stórir velta valtar í keltu vindi fastlega hrundnar móður æðandi óðar argandi hranna borgir. Og þessi vísa fæddist um nótt í Skerjafirði: Hrærist alda, nærri ný nærist skvaldur gjólu. Færist kalda ærinn í ærist galdur njólu. — Mikið er framlag Skeljungs til hefðbundinnar Ijóðlistar að gefa þér kost á þessu næturvarðarstarfi. — Já, hugsa sér. Og þegar ég er allur, fer vel á því, að yfir mig komi sama grafskriftin og Steinn Stein- arr orti eftir Konmhmistaflokkinn sáluga: En minning hans mun lifa ár og aldir, þótt allt hans starf sé löngu fyrir bí. Á gröf hins látna blikar benzíntunna frá Britisli Petroleum Company. Nema tunnan á að sjálfsögðu að vera frá Skeljungi. gísli. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.