Vikan - 22.11.1962, Blaðsíða 43
SNIÐAÞJON USTA
VIKUNNAR
Þessi ljómandi iallegi betri kjóll er úr 1. flokks efni,
48% „Acetate, 52% Spun rayon, „sanserað“ og ber sig vel.
Litir: 1. Blár-silfraður svartur, 2. brúngyllt svart, 3. grá-
silfrað svart. Hann er einfaldur í sniði enda puntar efnið
sig sjálft. 1 stykki að framan, 2 að aftan og lokufalli, ermum
niður að olnboga og fleginn, rúnnaður að aftan og framan.
Efnisprufur færðu sendar gegn frímerktu umslagi með
nafninu þínu á. Kjóllinn kostar kr. 577,50, kr. 24,20 fyrir
saumtillegg.
Sniðaþjónusta Vikunnar sníður hann fyrir þig og merkir
fyrir saumum og föllum, sendir til þín í póstkröfu ásamt
saumatilsögn.
Utfyllið pöntunarseðilinn með upplýsingum um stærð og
lit, stærðir 46, 48, 50 og sendið Sniðaþjónustu Vikunnar
ásamt kr. 100,00. Allar frekari upplýsingar eru gefnar í
síma 37503 á þriðjudögum og föstudögum frá kl. 2—5.
Kjóllinn er til sýnis í Kjörgarði.
Pöntunarseðillinn er á bls. 32.
„M0LLY“
VIKAN 43