Vikan - 23.01.1964, Blaðsíða 13
• V' ■
.! ” j
’■ • .. , v-?.
.. ** í
:>v
,.i •
BRENNUR HRAUN VIÐ
BLÁFJÖLL II HLUTI
EGENDURTEK:
VIÐSJAUM
mrnrn
EIDGOS
EFTIR GK.
FLUGMENN LOFTLEIÐA SÁU GOSIÐ FYRST.
ELDSÚLAN SKAR SVARTAN
NÆTURHIMININN AUSTUR VIÐ BLÁFJÖLL.
ÞEIR LÉTU FLUGTURNINN VITA
UMSVIFALAUST...
Frásögnin hófst í síSasta blaði. Þar gerðist þetta
m. a.:
Styrmir blaðamaður er sendur í síðdegisdrykkju, þar sem verið er að opna
nýja verzlun í Háaleitishverfinu. Hann stendur ásamt öðruin gestum, með vín-
glas í hendinni, og hlustar á ræðu eigandans, þegar hann sér skyndilega að
allir hlutir fara að titra og skjálfa, svo fer að hrynja úr hillum verzlunarinnar,
og loks falla hillur niður á gólf.
Hann raknar við sér undir einni hillunni, en honum er bjargað þaðan og
kemst að raun um að hann sé ómeiddur, þótt aðrir gestir liafi ekki allir verið
svo heppnir. Hann man eftir fjölskyldu sinni, sem býr á 8. hæð í háhýsi, og
hleypur heim, yfirkominn af ótta við að húsið hafi hrunið í jarðskjálftunum.
En húsið hefur staðizt raunina, og allir íbúar eru komnir út.
Nokkru síðar fer hann niður á skrifstofu kvöldblaðsins, sækir þar jeppa og
fer á honum um bæinn ásamt Magga ljósmyndara.
Allt er á tjá og tundri í bænum, bílar farnir út af, rúður brotnar í verzlun-
um, fólk flúið út í tjöld, þar sem það ætlar að vera um nóttina. Styrmir skrifar
frétt um ástandið, og fer heim aftur. Þá er konan komin aftur upp í íbúðina
með börnin, þrátt fyrir jarðhræringar, og hann lætur sér það vel lynda.