Vikan - 23.01.1964, Blaðsíða 36
Sjá upplýsingar um nýju bílana á bls. 26-34.
Hvar
fæst hver?
Orka: Fiat, Jaguar.
Sólfell h.f.: Citroen, Panhard.
Bifreiðar og landbúnaðarvélar: Moskvitz, Volga,
GAZ.
Þ. Þorgrímsson: Morris.
Garðar Gíslason: Austin.
O. Johnson & Kaaber: Daffodil.
Tékkneska bifreiðaumboðið: Skoda.
Kólumbus: Renault.
Fálkinn h.f.: NSU.
Hekla h.f.: Volkswagen, Rover.
Raftækni h.f.: Rootes motor (Hillman, Singer,
Sunbeam).
Bergur Lárusson: Simca.
SÍS: General Motors (Chevrolet, Chevy, Chev-
elle, Corvair, Buick, Cadillac, Vauxhall,
Opel).
Sveinn Egilsson og Kr. Kristjánsson: Ford
(Anglia, Taunus, Consul, Zephyr, Zodiac,
Comet, Falcon, Mercury, Thunderbird, Lin-
coln).
Almenna verzlunarfélagið: Leyland Motor
(Triumph).
Ræsir h.f.: Chrysler Corporation (Chrysler,
Dodge, Plymouth), Mercedes Benz og DKW.
Sveinn Björnsson & Co.: SAAB.
Egill Vilhjálmsson: Kaiser Corporation (Jeep,
Wagoneer).
Peugeot umboðið, Sigurður Steindórsson:
Peugeot.
Gunnar Ásgeirsson: Volvo.
Jón Loftsson h.f.: Rambler.
*
ll
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
ÖHrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Honfur eru á því að allt muni ganga þér í hag
eins og ráð hefur verið fyrir gert. Það gæti staðið
í sambandi við breytingar á heimili þínu. Þú ert
áhyggjufullur út af erfiðleikum sem þú veizt að
bíða þín, en eru ekki fullkomnlega á valdi þínu að leysa.
©Nautsmerkið (21. apríl 21. maí):
Þú skalt láta til skarar skríða með að koma því í
lag sem dregizt hefur um of á langinn. Þú skalt
skipuleggja vinnu þína og láta ekkert utanaðkom-
andi trufla áætlanir þínar, hvað svo sem á dynur.
Það gæti reynzt happadrjúgt að gera leynilega samninga#
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ert að leggja lokahönd á verk, sem hefur kost-
að þig talsvert umstang, en þú þarft ekki að sjá
eftir því vegna þess hve vel þér hefur tekizt til.
Það kemur þér ýmislegt á óvart og þú munt njóta
þess að vera til. Fjölskyldulífið verður mjög hamingjuríkt.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Samstarfsmenn þínir munu reynast þér vel, er þú
þarft að leita aðstoðar þeirra. Vikan getur reynzt
þér nokkuð útlátasöm en þú skalt gæta hófs 1
aðgerðum þínum. Þú færð ekki mikinn tíma til að
sinna hugðarefnum þínum, því þú hefur í nógu öðru að snúast.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú veizt vel hvers þú mátt þín og notfærir þér það,
en hafðu samt gát á, að þú skaðir ekki neinn með
gerðum þínum. Gerðu nauðsynlegar ráðstafanir til
þess að vernda efnahag þinn. Haltu þig að þeim,
sem hafa upplífgandi áhrif á þig.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú hefur tilhneigingar til að dvelja í einverunni
og hafa hægt um þig, en nú skaltu hressa þig upp
og ef þú finnur ekki næg verkefni heimafyrir eru
nógir sem þarfnast aðstoðar þinnar. Það mun ýmis-
legt koma þér óvænt og gleðja þig.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú ert afkastamestur ef enginn er til að trufla þig.
Þú vinnur leynilega að verkefni, sem þú ætlar svo
öðrum að njóta, þetta verk mun veita þér mikla
ánægju og uppfyllingu. Efnahagur þinn er ef til
vill ekki sem beztur, en með hugkvæmni og nýtni þarf hann
alls ekki að vera svo bágborinn.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú skalt gera þig ánægðan með ástandið eins og
það er, því það er orðið of seint að ráða bót á því,
í bili. Vikan verður þér ánægjuleg og hátíðleg á
margan hátt og muntu njóta tilverunnar og sam-
skipta þinna við aðra. Heillatala er 7.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú varst hyggin að vera búinn að undirbúa þenn-
an annasama tíma, og þú munt njóta þess, þó þú
hafir samt sem áður mikið meir en nóg á þinni
” könnu. Þú færð fréttir úr fjarlægð, sem munu gleðja
þig. Heimilislíf þitt færir þér mikla ánægju.
©Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Ráðleggingar og aðstoð náinna félaga þinna koma
þér að miklu gagni, eins og málum er nú háttað.
Það er ekki ólíklegt að þú fáir kunningjaheimsókn
langt að. Þótt þú eigir annríkt mun þér liða mjög
vel og að öllu leyti vera sáttur við guð og menn.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar);
Þú tekur þátt í einhverju skemmtilegu, sem snert-
ir þá mest sem næst þér standa. Þú færð tækifæri
til að endurgreiða gamla skuld. Persóna, sem þú
hefur átt í einhverju brasi með, hýður þér nú vin-
áttu sína, og skaltu ekki hafna henni þó þér sé dálítið þungt
niðri fyrir.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú veltir mikið vöngum yfir fjármálum þínum, og
hvort þú getir veitt þér eitt og annað, en þar sem
þú ert yfirleitt ekki svo örlátur við sjálfan þig,
skaltu nú einu sinni veita þér það sem þig langar
til. Þú átt hamingjuríka daga í vændum.
m