Vikan


Vikan - 06.02.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 06.02.1964, Blaðsíða 32
,v.v.v-X/.;-v.; - ■ " : ■ ■mmm ‘■9Sk . - • ÉKÉlil ^ * “ p < <■ *'í [ J*;« j f «í<%í'ÍN Á | -xr- vs^- •.; ~9&9l!?m<>P!X!*JMWTrP iliiiili® , 1!,K,oeo ' "-r***n*T! >..;•: >y« )9-<y *«**»!*►« aer> c)iA eim ttrrl Þrjú skref til að auka og vernda ungleika húðarinnar — eingöngu Yardley. — 1. Djúpt hreinsandi krem; 2. Frískandi andlitsvatn, sem gefur húðinni unglegan blæ; 3. Næringarkrem, sem gerir húðina heilbrigða og silkimjúka; Síðan — lítið í spegil og sjáið hinn undraverða árangur. Fyrir venjulega og þurra húð: Dry Skin Cleansing Cream. Skin Freshner. Vitamin Skin Food. Fyrir feita húð: Liquefying Cleansing Cream. Astringent Lotion. Vitamin Skin Food. YARDLEY TILAUKINS YNDISÞOKKA GLÓBUS h.f. Vatnsstíe: 3. - sími 11555 g2 — VIKAN 6. tbL II 4 >biima r> Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ÖHrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Nokkurrar óánægju mun verða vart meðal félaga þinna. Þetta mun skipta þig nokkru og mundu að fara gætilega 1 sakirnar og láta ekki stjóm- ast af augnablikstilfinningum. Fjármunir sem þú hefur ekki hugsað mikið um, koma nú í góðar þarfir. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður beðinn um að vera millgöngumaður í máli, sem þér er fremur ógeðfellt, þú skalt samt ekki skorast undan því, vegna eftirkastanna sem það kann að hafa í för með sér. Fjölskyldulíf þitt hefur eitthvað sérstakt upp á að bjóða, sem mun auka á hamingju þín?.. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Náin persóna, kemur þér talsvert á óvart vegna afstöðu sinnar til viss málefnis. Þú munt verða þátt- takandi í miklum hátíðahöldum, sem verða nokkuð útlátasöm fjárhagslega séð. Varastu að taka nokkr- ar afgerandi ákvarðanir varðandi kaup og sölu. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú átt miklar breytingar í vændum varðandi heimili þitt, sem munu verða öllum hlutaðeigandi til mikillar gleði. Þú hefur óvenju lítið fyrir stafni, og munt eiga margar frístundir. Eyddu tíma þínum sem mest heimafyrir. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Einn fjölskyldumeðlimurinn mun dveljast í fjar- lægð um tíma. Þér berast óvænt verkefni, sem gefa þér smá tekjur. Vikan verður fremur tilbreyt- ingarlítil, líkur benda til þess að þú verjir nokkr- um hluta hennar til að létta undir með kunningja þínum. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Vinur þinn, sem dvelst mjög fjarri þér, sennilega í útlöndum, hugsar til þín, vegna smá vanrækslu þinnar, það mundi gleðja hann ef þú kipptir því í lag. Þú færð óvæntar fréttir um trúlofun aðila sem standa þér nærri. Þú verður þátttakandi í miklum gleð- skap. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú munt umgangast fjölskyldu þína óvenju mikið en það er aðallega vegna þeirrar hjálpar, sem þú sækir til hennar. Eldri maður nákominn þér, veld- ur þér vonbrigðum, sem verða til þess, að þú breyt- ir afstöðu í vandasömu máli. m DrekamcrkiS (24. októbcr — 22. nóvcmber): Þú munt eiga einhver viðskipti, sem þú hagnast talsvert á, en ættir þó ekki að hafa hátt um. Þú tekur á þig rögg og lýkur af heimsókn til kunn- ingjafólks þíns, sem þú hefur trassað mánuðum saman. Þú rifjar upp tómstundagaman, sem þú hefur lengi látið iiggja niðri. __ Bogmannsmerkið 23. nóvcmber — 21. desember): Það hafa orðið breytingar á högum þínum, sem þú jð erl mi°g ánægður með. Einhverjir erfiöleikar eru í vændum, ef til vill í sambandi við húsnæðismál. Öll viðskipti eru hagstæð. Þú tekur til við að liðka þig í einhverju, sem þú hefur numið fyrir löngu. ©Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Ef þú vilt halda heimilisfriðinn skaltu láta undan kröfu maka þíns, sem þú innst inni viðurkennir að er réttmæt og sjálfsögð. Þú hefur sýnt mikla ókurteisi með viðbrögðum þínum gegn hamingju kunningja þinna, sýndu að þú kunnir að skammast þín. ®Vatnsberamerkið (21. janúar — 18. febrúar); Þú ert mjög önnum kafinn og verður það áfram. Þú munt verða að sjá af félagsskap fólks, sem þú hefur umgengizt mikið og átt margt sameiginlegt með. Þú færð fréttir eða sendingu, sem kemur langt að. Það verður venju fremur gestkvæmt á heimiii þínu. ©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Þú hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar undanfarið, en nú geturöu glatt þig við að þvi versta er lokið. Þú verður eigandi að hlut, sem þig hefur iengi dreymt um og á eftir að þjóna þér dyggilega. Kvöld- unum væri bezt varið í hópi kátra félaga. I

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.