Vikan


Vikan - 06.02.1964, Blaðsíða 29

Vikan - 06.02.1964, Blaðsíða 29
REX HARRISON FRAMHALD AF BLS. 18. fyrir göniguferSir. Þau hafa geng- ið fram og aftur um allar iiæðirn- ar í nágrenninu og talað enda- laust saman á þeim ferðum. „Hér iiöfum við frið, sem við höfum mikla hörf fyrir“, segir Raehel Harrison, „og hingaS komum við alltaf aftur til að safna kröftum." „Hann er ákafur maður, en hann er ekki ráðríkur.“ Það er eitt viðurnefni, sem Rex Harrison, þessum rólega inanni, finnst fremur óvirðulegt og léttúðugt, en það er nafnið, sem honum hefur verið gefið á stundum „sexy Rexy“. „Mér líkar betur að horfa á eitthvað en að láta liorfa á mig“ segir hann. Þessi setning leiðir í ljós hlé- drægni hjá þessum annars fram- sækna manni, og kemur heim við það eðli lians, sem fær hann til að velja sér dvalarstað í svo af- skekktum kima sem Portofino. I’að hefur alltaf verið einhver villtur þráður í skapgerð Harri- sons, sem liefur gefið lilefni til aS ætla að hann væri bardaga- maður, þegar skap hans hefur veriS ýft — en bardágamaður- inn er líka efasemdamaður. Játn- ing ihans er á þessa leið: „Ég hef verið kviðinn frá því ég var tveggja ára.“ „Þessi kvíði kem- ur,“ segir liann, „af þvi að vera fæddur undir Fiskamerkinu — fimmta mars. Þvi fólki hættir við að sjá of margar hliðar á hlut- unum samtimis. Þú verður þreytt- ur á sjálfum iþér fyrir sífellda óákveðni og efa ■— og svo neyð- irðu þig allt í einu til að steypa þér út eitthvað.“ Slikt „steypti" honum út í fyrsta sönghlutverkið hans í.My Fair Lady og Ceasar i Cleopötru. Svo má lika nefna „veiklundaS- an, kvæntan skólastjóra" í Chekov leikritinu „Platanov" sem leikið var í litlu Londonarleik- liúsi, en þar lék Rachel Roberts á móti honum. Harrison segir: „Rachel er komin af welskum baptistaprest- uin lið fram af lið og af kola- námumönnum. Þetta er stórkost- legt, ástriðufullt og jarðbundið fólk — og það skýrir að nokkru aðdráttarafl konunnar minnar á mig og varpar ljósi á mikilvægan þátt i eðli niínu. Raohel er mi'klu skapbráðari en ég. Það er dásam- legt að fuðra upp — og segja allan sannleikannl“ Frú Harrison, sem er 35 ára gömul, lýsir sjálfri sér sem „frek- ar eirðarlaus“. „Rex hefur róað mig meira en nokkuð annað. Hann hefur kennt mér meira um heilbrigt og rólegt lif en jafnvel um ást. En hann hefur meiri orku en ég. Hann er ákafur maður — en hann er ekki ráðrikur. Ef hann elskar þig eða fellur vel við þig, er hann stórkostlegur — hlýr, blíður, glaður og ástríðufullur. Hann er minn Rex, og heimur- inn mundi verða eyðilegur án hans.“ Harrison hjónin voru sanian í Ítalíu og á Spáni, þegar kvik- myndin uin Cleopötru var gerð, og frú Harrison var iþar til að- stoðar. Hún ólst upp í Wales með Richard og Sybil Burton. Harri- son heldur að Cleopatra megi teljast allsæmileg mynd. Hann ■gerir allt með vandvirkni og al- úð, og hann las mörg bindi af mannkynssögu til að öðlast inn- sýn í persónuleika Ceasars og hafði sérstakan áhuga á stjórn- málaerjum þessa tima. En hann tapaði aldrei sjónar á mannlegu hliðinni: „Lang mest „sexy“ tel- um Joe Mankiewicz leikinn milli mín og Elízabet Taylor. Geasar var ekki ástfanginn af Cleopötru og luin ekki af honum. Valda- græðgi réði gerðum þeirra beggja. Hann vildi eignast ríkisarfa. Ast- aratriði okkar byrjar mjög há- tíðlega, eftir að hún hefur lokkað mig í höllina lil sín. Það endar i rúminu. Við eignumst son sam- an. í Cleopötru fannst mér ræður Ceasars erfiðastar. Leikarinn þarf að vera eins og æfður hátiða- ræðumaður, en ekkert er leikur- um jafnfjarri." Hið nýja verkefni Harrison er kvikmyndin My Fair Lady, sem hefst í júli. Það tengir nú- tiðina við leiklistarsigur hans í sama leikriti i New Þork (i tvö ár) og í London (eitt ár) — og hann hefði getað leikið Henry Higgins stanzlaust síðan. Leikrit- ið er enn sýnt á Drury Lane leik- húsinu í London. „Það er erfitt fyrir leikmann að skilja, að leikstarfsemi er eins og hver önnur vinna. í My Fair Lady var ég um ellefu leytið, þegar flestir leikarar eru að byrja á fyrsta drykknum, en í fullu starfi. Það eru heldur engar ró- legar helgar fyrir leikara i vin- sælu leikriti.“ Þar sem tclku Cleopötru er nú loks lokið, horfa Harrisonhjónin björtum augum fram á langa dvöl í Californíu, meðan hann lei’kur í My Fair Lady. „Að hugsa sér þá ánægju að sjá allt ]iað nýja og skemmtilega i Ameriku i fyrsta sinn sem frú Rex Harrison!“ segir konan hans. GVENDARBRUNNAR FYLLAST FRAMIIALD AF BLS. 15. Það var bakkað og ekið áfram, troðizt, flautað, pípt og kallað, hrópað, æpt, blótað og bölsótazt, en allt til einskis, nema fyrir þá, sem fremstir voru í röðinni, og mjökuðust hægt áfram í rétta átt. Hraunið rann nær og nær, stund- um runnu skyndilega út úr því lækir af þunnri, rauðglóandi leðju, sem teygði sig í áttina til bílanna. Menn sátu við stýrið á bílunum og börðu hnefunum af örvæntingu í stýrið, fylgdust með öðru auganu með því hve- nær þeir kæmust áfram, en með hinu horfðu þeir vanmátta á hraunjaðarinn, sem þokaðist æ nær veginum í áttina til þeirra. Þeir létu vélina ganga og flaut- una hamast, — en ekkert gekk. Loks fór samt að þynnast þvagan, enda höfðu lögreglu- þjónar raðað sér á veginn og ýtt á eftir mönnum að aka eins hratt og hægt væri í burtu, svo að þeir tefðu ekki fyrir hinum, sem eftir voru. En þegar síðasti bíllinn var lagður af stað eftir vegarspottanum sem var í mestri hættunni, þá var logandi hraun- ið í aðeins 5—6 metra fjarlægð frá honum. Tveir bílar komust aldrei í bæ- inn, og hurfu undir hraunið eft- ir skamma stund, en fólkið, sem í þeim var, hafði forðað sér löngu áður. Annar þeirra hafði farið út af veginum og runnið niður af vegarkantinum, svo að ógern- ingur var að ná honum upp, nema með aðstoð kranabíls. en framöxull hafði brotnað und- an hinum, sem lá á nefinu utan við veginn og þurfti líka krana- bíl til að koma honúm af staðn- um. Þeir voru báðir horfnir eftir klukkutíma. Niðri við Selás stöðvaðist bílalestin aftur og tafðist um stund, því þar stóðu lögreglu- þjónar á veginum og beindu um- ferðinni til suðurs, eftir vegin- um sem liggur meðfram Elliða- ánum, yfir að Vatnsenda og það- an til Reykjavíkur fyrir vestan Blesugróf. Umferð yfir Elliðaár- brýrnar var takmörkuð aðeins við þá, sem þar áttu brýnt er- indi í sambandi við tilraunir borgaryfirvaldanna til að bjarga mannvirkjum og öðrum verð-i mætum frá hraunflóðinu, sem óttazt var að gæti runnið þar til sjávar. Fyrir neðan hraunjaðarinn, sem var að þoka sér hægt og sígandi vestur af Sandskeiðinu, niður að Lækjarbotnum, höfðu lögreglumenn og skátar dreift sér. Þeir gengu á undan hraun- inu, eins og til að vísa því vegar, og gættu þess vel að þar væri engin lifandi vera á ferli. Skát- arnir dreifðu sér á sumarbústað- ina fyrir neðan, brutu þá upp og fullvissuðu sig um að þar væri enginn maður, hlupu til hvers kofa, sem þeir sáu og rannsökuðu þá, ráku hesta, kind- ur og kýr á undan sér og hreins- uðu svæðið. Víða voru eigendur bústað- anna komnir til að bjarga því, sem þeir áttu þar verðmætt, og biðu skátar þá hjá þeim, þar til allri voru örugglega farnir, en í síðustu eftirleit komu svo lög- regluþjónarnir, sem gengu á und- an hrauninu. ÞAÐ ER SPARNAÐUR I AÐ KAUPA GÍNU Öskadraumurinn viS heimasaum Ómissandi fyrir allar konur, sem sauma sjálfar. Stærðir við allra liæfi. Verð kr. 550.00 m/klæðningu kr. 700.00 Biðjið um ókeypis leiðarvisi Fæst i Reykjavik hjá: Dömu- & herrfibúðinui Laugavegi 55 og Gísla Marteinssyni Garðastræti 11, sími 20G72 í suðri bar gosstrókinn hátt við himin, þar sem glóandi hraunleðjan þeyttist 300 -500 metra í loft upp, áður en hún féll til jarðar og rann niður hlíð- ar gígsins í stríðum straum og beindist í farveg undan brekk- unni. Drunurnar og dynkirnir heyrð- ust langar leiðir, og reykur og aska bólstruðust enn hærra til himins, þar sem austanvindur- inn þyrlaði því í áttina til Reykjavíkur og út á Faxaflóa. Það vissu færri, að annar hraunstraumur var á hraðri leið vestur yfir Húsafellsbruna og Hólmshraun og stefndi þar niður VIKAN 6. tbl. — 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.