Vikan - 25.06.1964, Side 39
— Draugar? Nei, hér eru ekki
draugar. Og ef einhverjir eru, þá
eru það ómerkilegir draugar og
ekkert haldgóðir.
Það var miðvikudagskvöld í
júlí og blíðuveður. Hraunspildan
milli vegarins og vatnsins var
skreytt tjöldum og bílum og iðaði
af sumarlegu fólki. Einhvers
staðar úti á hvítkyrru vatninu
malaði þunglyndislegur bátamót-
or og himbriminn dýpkaði á sér.
En við hossuðumst til höfuðborg-
arinnar fram hjá bæjunum, sem
enn er eftir að heimsækja. Til
þess þarf annan dag.
Framhald í næsta blaði.
LÍKKISTA HANDA HR.
CASH
Framhald af bls. 15.
Hann kom bakdyramegin, svo
Danny yrði ekki á vegi hans, og ég
opnaði fyrir honum. Ég sagði
Danny, að ég ætlaði niður í
geymzlu að leggja mig. Hann átti
að vera á verði og ef einhver
hringdi, ætti hann að segja, að ég
væri upptekinn og myndi hringja
þegar ég kæmi. Líkurnar á því, að
einhver hringdi, voru ein á móti
þúsund. Svo laumuðumst við Al út
um hliðardyrnar.
Þetta var falleg nótt. Við geng-
um. Borgin var þögul. Skemmti-
staðirnir voru allir hinum megin.
Við fórum í gegnum fbúðarhverfi
og heyrðum barnagrát, kattarbreim
og hjónadeilur. Það var varla nokk-
ur á ferð. Við náðum klakklaust
heim í herbergi Als, sem hann not-
aði aðeins, þegar hann vildi fylgj-
ast með bankanum.
í myrku herberginu drógum við
stóla út að glugganum. Hinum meg-
in við götuna loguðu Ijós í glugg-
um bankans. Brynvarinn bíll ók upp
að stóra hliðinu, vörður kom út og
opnaði það, bíllinn fór innfyrir,
vörðurinn læsti hliðinu á ný og bíll-
inn ók aftur fyrir bankabygging-
una.
Niður á götunni fór lögreglubíll
framhjá.
Fyrst var mér heitt. Svo var mér
kalt. Ekkert gerðist. Ekkert, sem ég
gat séð, að minnsta kosti. En að
lokum hallaði Al sér áfram.
— Heyrðurðu þetta?
Ég hafði ekkert heyrt nema hljóð,
sem líktist því að skóflufylli af kol-
um væri látin detta.
— Þetta var múrsteinaveggurinn.
Nú eru Marty og strákarnir komn-
ir inn fyrir og teknir til óspilltra
málanna. Ef þjófabjallan glymur
ekki á næstu tveim mínútum, eru
þeir ofan á og þá er röðin komin
að okkur.
En það voru langar tvær mínút-
ur. Lögreglubíllinn ók af'ur inn göt-
una.
Það heyrðist ekkert í þjófabjöll-
unni.
Al stóð á fætur og virtist nú
heldur örari en venjulega.
Hrein
frísk
heilbrigð
húð
Þa8 skiptir ekki máli, hvernig hú8 þér hafiSÍ
Það er engin húð eins.
En Nivea hæfir sérhverri húð. Því Nivea-creme
eða hin nýja Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún
þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit.
Og þess vegna getur húð yðar
notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzf.
Hún getur sjálf ákveðið það magn, sem hún
þarfnast af fitu og raka.
Þetta er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og
Nivea-snyrta húð.
VIKAN 26. tbl.
39