Vikan - 09.07.1964, Blaðsíða 12
ólíklegt, að ýmis þau tæknilegu undur, sem sýn-
ingargestir fá smjörþefinn af, verði komin í al-
menna notkun eftir svo sem áratug eða jafnvel
fyrr. Samt er mottó sýningarinnar hvorki tækni né
framfarir, heldur ,Peace through understanding";
eða friður vegna skilnings, afskaplega göfugt yfir-
varp. Samt varð ég ekki var við, að ég fengi
neinn nýjan skilning á neinu öðru en því, að
heimur tækninnar er stórkostlegur og lítil takmörk
virðast því sett, hvað menn geta afrekað á því
sviði. Ekki má ég heldur gleyma öðru mikilvægu
atriði: Þessi heimsýning er líka óður til fegurðar-
innar í formum, litum og línum. Hvergi hef ég
séð á einum stað annan eins unað í djörfum og
nýstárlegum arkitektúr.
Maður lætur berast með straumnum og virð-
ir fyrir sér fagurlega spúandi gosbrunna,
iðgrænar grasflatir, hringlaga pavilíóna,
burstarlaga timburskála og mjallhvít
plastkúluhús. Svo þegar þreytan í fót-
unum fer að segja til sín, þá hoppar maður uppá
hjólatrillu frá ameríska gráhundafélaginu, sem ann-
ast alla mannflutninga innan sýningarsvæðisins. Það
geta tveir setið á svona hjólatík, en ökumaður-
inn lætur dæluna ganga, ef þess er óskað, um
allt sem forvitinn ferðalang fýsir að vita um. Ég
ákvað að byrja á því, sem mest er talið og veg-
legast: sýningarhöll General Motors, þess fyrirtækis
sem stærst verður fundið í heiminum. Þar hopp-
aði ég af hjólatikinni og tók mér stöðu í biðröð,
sem sýndist í fljótu bragði ískyggilega löng, en
þeir hafa tæknina á valdi sínu hjá General Motors
og afgreiða þrjú þúsund manns á klukkustund
hverri. „Estimated waiting time one hour" stóð á
skilti og það stóð heima,- að klukkustund liðinni
settist ég ásamt fjölskyldu frá Japan uppí opna
lest, sem leið inn í myrkur unz undrin birtust.
Þá er þar fyrst til máls að taka, að fyrir okk-
ur urðu þau svæði ýmiskonar hér á jörð, sem enn
hafa ekki verið numin að ráði. Það eru til dæmis
sárgrætilega fáir mannabústaðir í hafdjúpum bor-
ið saman við einstaka alltof þéttbyggða staði
ofan jarðar og mátti skilja, að bráðlega yrði
bætt úr þessu jafnvægisleysi í byggð jarðarinnar.
Því lestin brunaði inn í mjög ókennilega birtu en
þörungar og fiskatorfur á báða bóga. Fór ekki
framhjá neinum, að hér var lestin stödd í haf-
djúpum og hafði þar verið byggður neðansjávar
skemmtistaður. Sást gerla, að menn stóðu innan
Xæknifræðingar General Motors telja að byggja megi í sjávardjúpunum sem annarsstaðar. Hér
er neðansjávar skemmtistaður, sem sýndur er á sýningunni. Til hægri sést farartæki, sem ætlað er til smá-
ferðalaga um hafsbotninn út frá húsinu.
, ' :
......
;
við gluggana og skoluðu niður drykkjum
sínum meðan þeir rýndu út í djúpið. Mun
þetta allt saman vera á döfinni, líklega
helzt í Miðjarðarhafinu og verður væntan-
lega fengur fyrir alla þá, sem löngu eru
orðnir þreyttir á bardrykkju ofan sjávar. Auk
þess verður hægt að fá einskonar hafdjúps-
þyrlur með þreyfurum til þess að skreppa
í smá ferðalög út frá skemmtistaðnum og
voru nokkur þessháttar farartæki á sveimi
þarna.
Hingað til hefur þótt harðræði nokkuð að
hafast við á heimskautum, en General
Motors telur að þar megi viðhafa
flestan munað, sem annarsstaðar
fæst. Það sjá sýningargestir, þegar
lestin rennur hljóðlega yfir Suðurskautsland-
ið, þar sem heimskautafólk hefur reist nokk-
ur frumleg hús á fjórum fótum. Sjást menn
þar að bagsa við farartæki nokkurt, sem er
í ætt við sjóskrímsli og fornaldardýr. Tvennt
er það enn, sem hefur aftrað mönnum frá
því að byggja og nema land: Frumskógar
og eyðimerkur. En allt er þetta harla gott
og mæta vel byggilegt, verði réttri tækni
við komið. Eina maskínu hafa þeir svo úr
garði gert, að framendi hennar ræðst á
frumskóg og brýtur hann umsvifalaust und-
ir sig. Síðan sést ekki gerla hvað gerist
nema hvað aftur undan vélinni kemur hinn
fegursti vegur, malbikaður og markaður ak-
reinum. Skilst manni að það fólk, sem enn
iðkar hausaveiðar og mannakjötsát í frum-
skógum Brasilíu, fái nú brátt samgöngur til
að komast burtu til menningarinnar líkt og
afdalafólk á Vestfjörðum. Eyðimerkur verða
hins vegar ræktaðar með áveitum og er
það sýnt í sólsviðnum eyðimerkurdal, hvernig
það gerist.
r