Vikan - 09.07.1964, Page 17
'wwmi.i.
Maður er nefndur Edward Stone, bandarískur
arkitekf og raunar einn sá frægasti þar í landi.
Hann hefur teiknað margar stórbyggingar um víða
veröld og virðist hafa orðið fyrir nokkrum áhrif-
um af persneskri og indverskri byggingarlist. Hon-
um var falið það vandasama verk að teikna svo
nýstárlegt einbýlishús fyrir heimsýninguna, að mark-
aði tímamót. Það gerði hann og nú stendur hús-
ið næst aðalinnganginum og hefur vakið verð-
skuldaða athygli.
Stone sagði: „Við förum ósparlega með landið,
borgirnar stækka meira en góðu hófi gegnir. Við
verðum að byggja þéttara. Við verðum að byggja
einbýlishús því sem næst hvert upp að öðru, en
til þess að vernda einkalíf íbúanna, þá verður
hvert hús að snúa inn á við í stað þess að snúa
gluggum sínum út að umhverfinu". Þetta er ein-
mitt mergurinn máisins. Húsið snýr inn að yfir-
byggðum garði. Auk þess eru fjórir minni garð-
ar við hvert horn hússins, en allir lokaðir þannig
að veggirnir í kringum þá eru jafn háir veggjum
hússins.
Inngangurinn og forstofan eru með venjulegu
móti en síðan er komið inn í forkunnar fallegan
skála, sem raunar er yfirbyggður garður. Þar er
tjörn með gosbrunni og tré, sem teygir sig lang-
leiðina upp að glerþakinu yfir garðinum. Lítil borð
og stólar stóðu þarna við tjörnina og þar var ein-
sfaklega friðsælt við nið af rennandi vatni.
Ur þessum yfirbyggða garði er gengið inn í öll
herbergi hússins. Stofan borðstofan og eldhúsið
koma í röð á tvær hliðar, en svefnherbergi á hin-
ar. Stofan er nálægt 60 fermetrum en sýnist ekki
stór. í loftinu þar og annarsstaðar í húsinu eru
hvítmálaðir furubitar, 8 tommu breiðir, en hljóð-
einangrunarplötur á milli. Ég geri ráð fyrir því, að
húsgögnin hafi verið teiknuð og framleidd sérstak-
lega fyrir þetta hús, en þau voru framúrskarandi
á margan hátt og nýstárleg. I þessu húsi var það
fegursta samsafn gólfteppa, sem ég hef séð og
sumar viðarklæðningarnar eru hreint augnayndi.
Eldhúsið var á engan hátt nýstárlegt og mun
aftar í tímanum en framtíðareldhús General Electric
þarna á heimsýningunni. Hinsvegar var það búið
ö'lum þeim tæknilegu ágætum, sem nú fást í eld-
hús og eldavélin var í „eyju" á miðju gólfi. Borð-
stofan var iburðarmikil en þess eðlis, að líklega
hefur Stone gert ráð fyrir, að hún yrði einungis
notuð á hátíðum og tyllidögum. Svefnherbergin
voru hvert öðru fegurra, eitt þeirra búið húsgögn-
um úr plexigleri. Baðherbergi var inn af hverju
svefnherbergi og auk þess gengt út í lokaðan garð
með terrassólagningu og rennandi vatni.
Þeir sem einkum gangast fyrir útsýni mundu
síðastir manna byggja svona hús; þaðan sést hvorki
eitt eða neitt. En því eru menn vanastir í útlendum
borgum að njóta einskis útsýnis, það er hlutur,
sem ekki er reiknað með. Hinsvegar er augljóst,
að fólk getur haft alla sína hentisemi vegna for-
vitinna nágranna í húsi eins og þessu og mætti
segja mér að jafnvel hér á íslandi þætti sumum
það talsverður munaður.
G.
Einbýlishús framtíðarinnap á
heimsýningunni
yy Borðstofan var rúmgóð og búin mjög vönduðum húsgögnum. Kringlótt borð. Dökkur viður á veggnum, hvítir bjálkar og plötur í loftinu. 0 Úr
eldhúsinu. Eldavélin er í „eyju" á miðju gólfi. Borðkrókur næst. Q Stofan var um 60 ferm. Langur leðursófi. Skrifborð fjærst. Bitar í loftinu.
Q Eitt svefnherbergjanna var búið plasthúsgöngnum. Utan við hvert þeirra er lokaður garður með rennandi vatni. 0 „Verndun einkalífsins" var
móttóið hjá Edward Stone, þegar hann teiknaði þetta nýstárlega hús. Takið eftir glerhjáiminum í miðju og lokuðum garði. p í skálanum sem
verður undir glerhjálmnum er falleg tjörn, gosbrunnur og tré. Úr þessum yfirbyggða garði er gengið inn í herbergin.
VIKAN 28. tbl
17