Vikan


Vikan - 03.12.1964, Side 5

Vikan - 03.12.1964, Side 5
Með fyrirfram þakklæti. Kona úr Fir'ðinum. Ja, nú er það ljótt, kæra kona. Sannleikurinn er nefnilega sá, að þeir léku báðir í þessari mynd, kapparnir. Að vísu hefur þú vafalaust rétt fyrir þér að því leyti að Clark Gable lék þar eitt aðal- hlutverkið (stýrimanninn Fletcher), en Errol Flynn var að- eins ómerkilegur statisti, sem fáir munu hafa tekið eftir, enda var það ein af hans fyrstu kvik- myndum, tekin árið 1935. DVERGBIFHJÓL. Kæri Póstur. Ég var að glugga í gömul VIKU-blöð um daginn og rakst þá á, meðal annars, dvergbif- hjólið svokallaða í þættinum Vikan og tæknin. Ég fékk strax áhuga á þessu og þess vegna skrifa ég þér til að spyrja nánar um þetta. Eru þessi hjól flutt hér inn? Ef svo er, hver gerir það? Hvað mundi það kosta hér á landi? í blaðinu (41.tbl. 1961) eru þau sögð kosta frá 100 og upp í 300 dollara Með fyrirfram þakklæti fyrir greinargóð svör. Finnur. P.S. Þið ættuð að halda áfram með þáttinn VIKAN og tæknin, það sakna hans áreiðanlega margir. Sami. Við vitum ekki til þess, Finnur sæll, að nokkur flytji þessi hjól inn, og auðvitað ekki heldur hvað það mundi kosta hér á landi. Sennilega getur þú reiknað með að hver dollari í slíkum tækjum „komi upp á“ að vera yfir 100 krónur íslenzk- ar. Þátturinn, VIKAN og tækn- in“ hætti í VIKUNNI vegna þess að áhugi fyrir honum reyndist ekki nægur. DÝR VIKA. Kæri Póstur! Mér þykir Vikan vera orðin nokkuð dýr að hún skuli kosta 100 kr. eða að minnsta kosti varð ég að láta 100 kr. fyrir hana þegar ég keypti hana síðast. Þannig var mál með vexti að ég var stödd í rútu á B.S.Í. og ætlaði út á land, kom þá dreng- ur inn í bílinn, sem var að selja Vikuna og Úrval. Ég bað um eina Viku, en ég hafði bara 100 kr. og ég rétti honum þær en hann sagðist ekki geta skipt en geta farið inn á afgreiðslu B.S.Í. og skipt. Hann fór og skildi blaðið eftir. En drengurinn var ekki kominn eftir 15 mín. þegar bíll- inn fór af stað. Drengurinn var horfinn með 75 kr. G. G. Þetta er ljótt að heyra. Að vísu erum við á þeirri bjarg- föstu skoðun, að VIKAN sé dýr- mætt blað, en viðurkennum skilyrðislaust að 100 krónur fyr- ir eintakið sé fullmikið. Og svo er það þetta með drenginn. Ef hann hefur gert þetta viljandi og notað 75 krón- urnar til að kaupa lakkrís og kók, þá á hann flengingu skilið, ef ekki meira. En svo getur hitt aðeins komið til mála, — að hann hafi ekki fengið skipt inni í afgreiðslunni, því þar er oft mikið að gera. Kannski hefur hann beðið árangurslaust, eða jafnvel hlaupið milli staða laf- móður, til að fá skipt, og komið svo niðureftir með afganginn, þegar bíllinn var að renna úr hlaði. Kannski hefur hann hlaupið langar leiðir á eftir bílnum, hágrátandi og veifað peningunum um leið og hann kallaði: „GG, elsku GG, stopp- aðu og taktu peningana þína GG, því ég afber ekki að hafa þetta á samvizkunni. GG, GG, GG“. Við höfum yfirleitt ekki orðið varir við annað en að sölu- börn Vikunnar væru fullkom- lega heiðarleg. En við vonum að þú hafir haft ánægju af blaðinu. SELTJARNAMÁL. Kæra Vika. Leystu úr deilu okkar. Við eigum heima vestur á Nesi eins og það er kallað, en við erum ekki á eitt sáttar, hvort það heitir Seltjarnarnes með r eða Seltjarnanes. Jórunn og Bjössi. Spurningin er: hversu margar Seltjarnir eru á nesinu. Eftir umfangsmikla rannsókn, höfum við komist að þeirri niðurstöðu, að það sé þar aðeins ein með því nafni og þar af leiðandi er nafnið skrifað með r. YAXA er óefað vinsælasta svitameðalið á íslandi og hinum Norðurlöndunum. Reynið YAXA strax og þér munuð sannfærast. HtllMn Péturs Pttvrssmr Suðurgötu 14 — Sími 19062. VIKAN 48. tbl. — r

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.